Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Side 12
Helgarblað 25.–28. nóvember 201612 Fréttir Skipum Havila lagt og sjómönnum sagt upp n Reyna að forða norska skipafélaginu frá þroti n Þurfa samþykki Arion og Íslandsbanka Þ remur olíuþjónustuskipum norska skipafélagsins Havila Shipping ASA var lagt á þriðjudag og 70 starfsmönnum sagt upp störfum. Eigendur fyrirtækisins vinna nú að sinni þriðju tillögu að fjárhagslegri endurskipulagningu í von um að óánægðir kröfuhafar samþykki hana og fyrirtækinu verði forðað frá gjaldþroti. Arion banki og Íslandsbanki þyrftu að sam­ þykkja nýja tillögu en þeir lánuðu skipa félaginu jafnvirði 5,7 milljarða króna árin 2013 og 2014. Höfnuðu með 71% Hópur óveðtryggðra skuldabréfa­ eigenda Havila hafnaði tillögu fyrir­ tækisins um fjárhagslega endur­ skipulagningu þann 11. nóvember síðastliðinn líkt og DV greindi frá. Stjórnendur fyrirtækisins sögðu þá gjaldþrot blasa við en þeir höfðu tveimur dögum áður, sigri hrósandi, sent tilkynningu til norsku kauphallarinnar (Oslo Børs) um samkomulag við lánveitendur og stærsta hluthafa fyrirtækisins. Þess hafði þá verið beðið síðan í febrúar þegar óveðtryggðir skuldabréfa­ eigendur félagsins höfnuðu fyrri tillögu um endurskipulagningu. Samningurinn í byrjun nóvember átti að tryggja áframhaldandi rekstur skipaflota Havila, sem telur 27 fley, og sigla félaginu út úr þeim ólgusjó sem skapaðist þegar olíuverð fór að hrynja seinni hluta árs 2014. Ósáttu skuldabréfaeigendurnir lögðu aftur á móti fram sína eigin áætlun um að þeir breyti kröfum sínum í hlutafé og eignist meirihluta í skipafélaginu. Þeir höfnuðu svo formlega tillögu Havila á miðvikudag með 71 pró­ senti atkvæða. Arion banki studdi tillögu Havila eins og kom fram í frétt DV þann 15. nóvember. Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi bankans, sagði hana tryggja Arion kauprétt á hlutafé skipafélagsins og 15 prósenta endur­ heimtu af láni hans til Havila sum­ arið 2014 sem nam 300 milljónum norskra króna eða fjórum milljörð­ um króna. Íslandsbanki vildi ekki svara spurningum blaðsins en fyr­ irtækið lánaði Havila jafnvirði 1,7 milljarða króna í árslok 2013. Bank­ arnir vildu í janúar síðastliðnum ekki svara DV því hvort farið hefði verið fram á að floti eða aðrar eignir norska skipafélagsins yrðu veðsett­ ar sem trygging fyrir endurgreiðsl­ um. Havila hefur ekki greitt vexti né afborganir af höfuðstól lána síð­ an vinna að fjárhagslegri endur­ skipulagningu þess hófst í fyrra. Mannar skip Fáfnis Havila tilkynnti á miðvikudag að skip­ um þess Borg, Fortune og Mercury hefði verið lagt og 70 starfsmönnum verið sagt upp. Norska skipafélagið var stofnað árið 2003 og stærsti hlut­ hafinn Havila Holding AS er í eigu stjórnarformannsins Per Sævik og fjölskyldu hans. Samkvæmt til­ lögunni sem kröfuhafarnir höfnuðu átti Havila Holding að halda meirihluta sínum í fyrirtækinu og í staðinn leggja fram 118 milljónir norskra króna í nýtt hlutafé og víkj­ andi lán upp á 46,2 milljónir. Sævik­fjölskyldan er einnig meirihlutaeigandi í norsku skipa­ smíðastöðinni Havyard sem á sex prósenta hlut í íslenska olíuþjón­ ustufyrirtækinu Fáfni Offshore. Nýtt fimm milljarða króna skip Fáfn­ is er í smíðum hjá Havyard en af­ hendingu þess var í október síðast­ liðnum seinkað í annað sinn eða um tvö ár. Ástæðan er verkefnaskortur hjá fyrirtækjum sem þjónusta olíu­ iðnaðinn eða sú sama og hefur leitt til vandræða Havila. Eldra skip Fáfnis, Polarsyssel, sinnir verkefnum fyrir Sýslumanninn á Svalbarða í níu mánuði á ári. Samkvæmt upp­ lýsingum DV hefur Havila séð um að manna Polarsyssel og daglegan rekstur skipsins. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Reyna að forða gjaldþroti Rekstrarörðugleikar Havila Shipping ASA hófust með lækk- un olíuverðs sem leiddi til verkefnaskorts hjá fyrirtækjum sem þjónusta olíuiðnaðinn. Lán Arion banka og Íslandsbanka til Havila hafa verið niðurfærð að stóru leyti í bókum þeirra. Hringsjá Náms- og starfsendurhæfing ER EKKI KOMINN TÍMI TIL AÐ GERA EITTHVAÐ Fjölbreytt námskeið framundan Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á hringsja.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.