Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Page 31
Helgarblað 25.–28. nóvember 2016 Kynningarblað - Brot af því besta 9 Gjafabréf í dekur og vellíðan er góð gjöf H úðslípun er afar öflug og örugg húðmeðferð sem Abaco Heilsulind á Akur­ eyri býður upp á. Með­ ferðin er framkvæmd með Silk Peel­húðslípunartæki. Þetta er heildræn húðmeðferð þar sem ysta lag húðarinnar er fjarlægt með notk­ un örsmárra kristalla og demanta. Árangurinn er sléttari, mýkri og þétt­ ari húð, auk þess sem áferð húðar­ innar verður fallegri. Húðslípun er meðferð sem hentar fólki á öllum aldri og er örugg fyrir allar húðgerð­ ir. Strax eftir fyrstu meðferð fær húð­ in ferskan blæ, verður þéttari, mýkri, hreinni og unglegri. Þessi einstaka húðmeðferð lætur húðina líta betur út og endurheimta ljóma sinn. Dauðar húðfrumur eru fjarlægðar, blóðflæði örvað og vöxtur nýrra fruma og bandvefur örvast. Meðferðin bætir áferð og vinnur gegn öldrun húðarinnar. Eldri húð sem farin er að þynnast styrkist og þéttist. Meðferðin veitir örugga hreinsun á yfirborði húðar­ innar, dregur úr húðstíflum og opn­ ar húðholur dragast saman. Sjáan­ legur munur á húðinni er eftir hvert skipti og verða stöðugar framfarir á ástandi hennar. Húðslípun vinnur meðal annars á eftirtöldum vandamálum: n Ótímabær öldrun n Fínar línur og hrukkur n Ör eftir skurði og bólur n Hörundslýti og húðþykkildi n Unglingabólur og óhrein húð n Exemhúð n Húðslit Mælt er með að taka þrjár með­ ferðir með u.þ.b. tveggja vikna milli­ bili til að ná sem bestum árangri. Fjöldi meðferða fer þó alltaf eftir á hvaða vandamáli er verið að vinna. Eitt skipti frískar verulega upp á húðina og gefur ljóma og gott útlit. Fyrir óhreina og bólótta húð er mælt með að lágmarki 6 meðferðum með tveggja til þriggja vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Sama á við um meðferðir við húðsliti. Eftirmeðferð Bera skal rakakrem á meðferðar­ svæði og nota rakamaska fyrstu dag­ ana eftir meðferð. Forðast ber sól og ljósabekki í a.m.k. þrjá sólarhringa eftir meðferð. Forðast jafnframt sund og heita potta í a.m.k. þrjá sólar­ hringa. Sleppa skal líkamsrækt sama dag og meðferð á sér stað. Nota á SPF 30­sólarvörn eða sterkari í viku eftir meðferð. Um Abaco Heilsulind Abaco Heilsulind er staðsett að Hrísalundi 1 á Akureyri. Þetta er ein best búna heilsulind landsins, einstakur staður til að slaka á, endur­ nærast og njóta lífsins. Abaco býður viðskiptavinum sínum upp á herða­ nudd og kaldsteinanudd ofan í heit­ um potti. Steinanuddið er einstakt og mjög sérstök upplifun: Herðar, háls, bringa og andlit eru nudduð með köldum steinum, sem vekur mikla vellíðan. Þetta hentar fyrir pör og hópa. Einnig er boðið upp á and­ litsmaska í pottinum. Viðskiptavinir Abaco eru hvattir til að nýta sér aðgang að baðstofunni þegar komið er í nudd eða snyrti­ meðferðir, en aðgangur er innifalinn í öllum meðferðum. Vínveitingaleyfi er á staðnum og gestir geta hresst sig á víni, bjór eða gosdrykkjum. Í Abaco Heilsulind er boðið upp á allar helstu snyrtimeðferðir, eins og litun og plokkun, hand­ og fótsnyrtingu, vaxmeðferðir, Guinot­andlitsmeð­ ferðir og demantshúðslípun. Abaco Heilsulind er eina stofan á Akur­ eyri sem býður upp á St.Tropez­ brúnkumeðferðir. Auk þess eru í boði lasermeðferðir til háreyðingar og til að vinna á háræðasliti. Enn fremur er til staðar frystipenni sem virkar á húðflipa og vörtur. Boðið er upp á flestar tegundir af nuddi, eins og slökunarnudd, heils­ unudd, íþróttanudd, ilmolíunudd og heit­ og kaldsteinanudd. Einnig er í boði meðgöngunudd en á stofunni er sérstakur meðgöngubekkur. Í Abaco starfa hjúkrunarfræðing­ ur, snyrtifræðingar og nuddarar. Í Abaco er auk þess glæsileg ljósastofa og eru fjórir Ergoline­ljósabekkir. Hægt er að kaupa gjafabréf í Abaco Heilsulind og eru þau afar vinsæl gjöf. Þá má geta þess að á staðnum er til sölu úrval húðsnyrtivara, meðal annars frá Guinot, Sothys, Alessandro, St. Tropez og margt fleira. n Síminn í Abaco Heilsulind er 462- 3200 og netfangið er abaco@abaco. is. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni abaco.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.