Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Qupperneq 4
Jólablað 22. desember 20164 Fréttir Hentar vel í matargerð, ofan á brauð, til að poppa popp, í baksturinn, í þeytinginn, á húðina eða til inntöku. „Síðustu jól Jobba eiga að vera frábær“ n Jósep berst við krabbamein n Vinir hans safna fé til þess að gera síðustu mánuðina bærilega Þ etta verða síðustu jólin hans Jobba og hann þarf hjálp. Eftir rúmlega þriggja ára baráttu við krabba- mein þá eru allir sjóð- ir fjölskyldunnar uppurnir og það er ósk okkar að allir leggist á eitt um að veita honum frábær síðustu jól í faðmi fjölskyldu sinnar,“ segir Svavar Þór Svavarsson, vinur Jóseps Hjálmars Sigurðssonar, Jobba. Jósep Hjálmar hefur barist eins og ljón gegn krabbameininu og far- ið í ótal uppskurði og lyfjameðferð- ir á undanförnum árum. Skömmu fyrir jól fékk hann þær fregnir að meinið hefði dreift sér og ekkert yrði við ráðið. „Hann er bara sigr- aður og núna snýst allt hjá honum um að eiga gæðastundir með sín- um nánustu, eiginkonu og þremur sonum. Njóta þess tíma sem hann á eftir með þeim,“ segir Svavar. Fjárhagsáhyggjur á dánarbeði ómanneskjulegar Hann hefur heimsótt Jobba reglu- lega á spítalann og fylgst með honum hraka undanfarið. „Hann hefur hrunið niður í þyngd undan- farið, ég held að það hafi farið um fimm kíló á síðustu viku,“ segir Svavar Þór, sem missti föður sinn úr svipuðum veikindum fyrir um áratug og þekkir því af eigin raun hvernig það er fyrir einstakling og nánustu aðstandendur að standa í slíkum slag. „Að þurfa að hafa fjár- hagsáhyggjur ofan í allt annað er ómanneskjulegt. Að mínu mati á ríkisvaldið að koma til móts við fólk sem er á dánarbeðinum svo það geti notið síðustu stundanna í þessu jarðlífi. Algjört lágmark væri að fólk fengi ókeypis lyf til þess að létta undir. Lyfjakostnaður Jobba slagar hátt í hundrað þúsund krón- ur á mánuði,“ segir Svavar. „Helst myndi ég vilja að einstaklingar á dánarbeðinum fengi tiltekna upp- hæð í eingreiðslu sem gæti gert síðustu mánuðina bærilega,“ segir Svavar Þór. Viðbrögðin hafa verið hjartnæm Svavar vakti, ásamt félögum sínum, athygli á aðstæðum Jobba og fjöl- skyldu hans á Facebook. „Ég hafði rætt við hann um nóttina og upp- lifði hve honum leið illa yfir því að geta ekki gert síðustu jólin sín bæri- leg. Hann veitti mér leyfi til þess að setja söfnun á laggirnar og þá fór- um við í það verkefni nokkrir fé- lagar,“ segir Svavar Þór. Jobbi starf- aði við bílaviðgerðir og bjó um árabil í Grindavík og á þar marga vini og kunningja. „Það hefur verið hjartnæmt að sjá viðbrögð fólks og margir hafa lagt hönd á plóginn. Það hafa borist nokkrar matargjaf- ir auk þess sem einhver peningur hefur safnast. Betur má þó ef duga skal og ég vona að sem flestir taki höndum saman til þess að hlaupa undir bagga með vini mínum. Síð- ustu jólin hans Jobba eiga að vera frábær,“ segir Svavar Þór. Lesendum, sem vilja aðstoða Jobba, er bent á reikning 325-26- 0085, kennitala 050861-5979. n „Að þurfa að hafa fjárhagsáhyggjur ofan í allt annað er ómanneskjulegt. Jobbi og Svavar Félagar Svavars hafa blásið til söfnunar til þess að Jobbi geti haldið síðustu jólin sín hátíðleg. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Vilja tryggða fjármögnun Dettifossvegar S tjórnir verkefnanna Raufarhöfn og framtíðin og Öxarfjörður í sókn skora á þingmenn að tryggja fjármögnun Dettifoss- vegar í fjárlögum. Þetta kemur fram í ályktun stjórnanna sem segja yfir- vofandi niðurskurð í fjárlagafrum- varpinu 2017. Segir að byggðarlögin tvö, Öxarfjarðarhérað og Raufarhöfn treysti á uppbyggingu í ferðaþjónustu til að snúa vörn í sókn. Íbúaþing verk- efnanna hafa lagt áherslu á mikilvægi þess að klára Dettifossveg til að auð- velda ferðafólki aðgang að svæðinu. Samþykkt fjögurra ára samgöngu- áætlunar í október hafi verið talin lokasigur í þeirri baráttu. „Fregnir af yfirvofandi niðurskurði vegaáætlunar í fjárlagafrumvarpi er því mikið bakslag.“ Þá segir að á meðan fregnir berist af miklu álagi á helstu ferðamanna- stöðum á suðvesturhorninu og að dreifing ferðamanna á landinu þurfi að vera meiri, skjóti skökku við að skera niður í málaflokknum í fjár- lögunum. n mikael@dv.is Niðurskurðar- áform bakslag Dettifoss Fjármögnun Dettifossvegar er í upp- námi í ljósi fjárlagafrum- varpsins. Íbúar töldu sig hafa unnið slaginn í þessu hagsmunamáli sínu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.