Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Page 46
Jólablað 22. desember 201642 Lífsstíll
Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík
Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is
Dan Wiium Hdl, lögg.
fasteignasali, Sími 896-4013
Ólafur Guðmundsson
Sölustjóri, sími 896-4090
Þórarinn Friðriksson Lögg.
fasteignasali, sími 844-6353
Rakel Salóme Eydal
Skjalagerð
Sigurbjörn Skarphéðinsson
Lögg. fasteignasali, skjalagerð
Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár
Ásta María Benónýsdóttir
Lögg. fasteignasali, Sími 897-8061
Átta skotheld
sparnaðarrÁð
n Biddu um afslátt, skiptu um tryggingafélag og gerðu verðsamanburð
Skiptu um
tryggingafélag
Ertu með ábyrgðartryggingu, kaskó,
heimilistryggingu, sjúkra-, slysa-, innbús-
og jafnvel gæludýratryggingu? Trygginga-
félögin eru í harðri samkeppni og keppast
við að laða að sér viðskiptavini. Egndu þeim
saman með því að leita eftir tilboðum í allar
tryggingarnar. DV þekkir skýr dæmi um að
okrað sé á viðskiptavinum tryggingafélaga
sem telja sig njóta sérstakra afsláttarkjara
vegna hollustu þeirra við fyrirtækið. Ekki
láta bjóða þér hækkun á bílatryggingum
þótt þú lendir í tjóni. Nýtt félag mun ekki
rukka fyrir það. Nýlega var lögum breytt
sem gera viðskiptavinum kleift að segja
upp tryggingunum hvenær ársins sem er.
Ekki hika við það, ef þér bjóðast betri kjör.
Verslaðu á netinu
DV hefur undanfarið sýnt fram á það með
óyggjandi hætti að vöruverð í nágranna-
löndunum er oft miklu lægra en á Íslandi.
Á vefsíðunni tollur.is er
að finna þægilega
reiknivél sem sýnir
þér hvað tiltekin
vara kostar hingað
komin. Athugaðu
að fá upplýsingar
um flutningsverð
áður en þú pantar. Þú
getur sparað þúsundir,
jafnvel tugþúsundir króna með því að
kaupa vöru (sem þú þarft ekki að máta
eða sjá) á netinu. Nú er til dæmis mjög
hagstætt að kaupa frá Bretlandi.
Notaðu
leitarvélar
Til eru frábærar leitarvélar
sem spara þér mikla vinnu við
netverslun í útlöndum. Með því
að nota þær geturðu auðveldlega fundið
lægsta verðið á hverjum tíma. Í Danmörku
er þægilegt að nota pricerunner.dk og í
Noregi prisjakt.no. Í Bretlandi er pricerunn-
er.co.uk tilvalin.
Taktu bensín á
Breiddinni
Ef þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og átt
leið um Kópavog, þá er þar rétti staður-
inn til að taka bensín. Lítraverð á stöð
Orkunnar, hjá Bónus, skammt frá BYKO á
Breiddinni, er að jafnaði um 8 til 10 krónum
lægra en annars staðar. Þetta hefur hingað
til ekki farið hátt. Þarna getur munað
500 krónum á einum tanki.
Frystu ávexti
Íslendingar eru svo lánsamir
að eiga neysluvatn í
miklu magni. Það
getur verið freistandi
að kaupa vatn á
flöskum, kannski með
bragðefni, til að svala
þorstanum. Miklu hag-
stæðara er að búa slíkt
til sjálfur. Sniðugt húsráð er
að skera appelsínur eða epli niður í hæfilega
bita og frysta.
Láttu kalt
vatn renna í
könnu og
settu
bita af frosnum ávöxtum út í, með svolitlum
fyrirvara. Þannig slærðu tvær flugur í einu
höggi; vatnið verður ískalt og bragðið ekta.
Reyktu frekar
rafrettu
Best er vitaskuld að hætta
að reykja. Þeir sem reykja
geta þó sparað með því
einu að skipta yfir í
rafrettu, sem flestar
rannsóknir sýna að
séu ekki eins skað-
legar heilsunni.
Á ritstjórn DV er
maður sem reykir
rafrettu. Rettan
kostar um 10
þúsund og 10
millilítra
glas af
vökva – sem endist honum í um fimm daga
– kostar um 1.500 krónur. Kostnaðurinn á
ári, með kaupum á rettunni sjálfri, nemur
120 þúsund krónum. Ef þú reykir pakka
á sígarettum á dag kostar það ríflega
hálfa milljón á ári. Munurinn er tæplega
400 þúsund á ári, sem er tala sem maður
með þokkaleg meðallaun fær útborgað á
hverjum mánuði.
Biddu um afslátt
Verslunarmenn segja
gjarnan, þegar DV
krefur þá um svör
vegna hárrar
verðlagningar,
að fáir kaupi
vörurnar þeirra á
fullu verði. Þetta
vita sjálfsagt ekki
allir. Gott ráð er að
biðja alltaf um afslátt, þegar vara á borð
við dekk og raftæki er keypt á Íslandi. Í
versta falli færðu ekki afslátt og getur tekið
ákvörðun í samræmi við það. Aldrei gefa til
kynna að þú sért búinn að ákveða að kaupa
vöruna af viðkomandi aðila.
Kauptu varahluti
í útlöndum
Íslensk bílaumboð okra sum hver
á varahlutum, og bílavörur, svo
sem dekk, eru stundum sérstak-
lega dýrar á Íslandi. Áður en þú
kaupir varahlut í bílinn er tilvalið að
athuga hvort hún fáist á vefnum
rockauto.com en þar er um að
ræða flottan bílavarahlutavef.
Camskill.co.uk er dæmi um
vefsíðu sem selur dekk á góðu
verði. Þá þekkir DV dæmi þess
að góðar rúðuþurrkur sé hægt
að fá á hlægilegu verði á Ali
Express. Prófaðu að skrifa inn
tegundarheiti bílsins og árgerð
og bættu við orðinu „blades“. DV
mælir þó alltaf með að láta fagmenn
annast viðgerðir á bílum.