Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 46
Jólablað 22. desember 201642 Lífsstíll Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is Dan Wiium Hdl, lögg. fasteignasali, Sími 896-4013 Ólafur Guðmundsson Sölustjóri, sími 896-4090 Þórarinn Friðriksson Lögg. fasteignasali, sími 844-6353 Rakel Salóme Eydal Skjalagerð Sigurbjörn Skarphéðinsson Lögg. fasteignasali, skjalagerð Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár Ásta María Benónýsdóttir Lögg. fasteignasali, Sími 897-8061 Átta skotheld sparnaðarrÁð n Biddu um afslátt, skiptu um tryggingafélag og gerðu verðsamanburð Skiptu um tryggingafélag Ertu með ábyrgðartryggingu, kaskó, heimilistryggingu, sjúkra-, slysa-, innbús- og jafnvel gæludýratryggingu? Trygginga- félögin eru í harðri samkeppni og keppast við að laða að sér viðskiptavini. Egndu þeim saman með því að leita eftir tilboðum í allar tryggingarnar. DV þekkir skýr dæmi um að okrað sé á viðskiptavinum tryggingafélaga sem telja sig njóta sérstakra afsláttarkjara vegna hollustu þeirra við fyrirtækið. Ekki láta bjóða þér hækkun á bílatryggingum þótt þú lendir í tjóni. Nýtt félag mun ekki rukka fyrir það. Nýlega var lögum breytt sem gera viðskiptavinum kleift að segja upp tryggingunum hvenær ársins sem er. Ekki hika við það, ef þér bjóðast betri kjör. Verslaðu á netinu DV hefur undanfarið sýnt fram á það með óyggjandi hætti að vöruverð í nágranna- löndunum er oft miklu lægra en á Íslandi. Á vefsíðunni tollur.is er að finna þægilega reiknivél sem sýnir þér hvað tiltekin vara kostar hingað komin. Athugaðu að fá upplýsingar um flutningsverð áður en þú pantar. Þú getur sparað þúsundir, jafnvel tugþúsundir króna með því að kaupa vöru (sem þú þarft ekki að máta eða sjá) á netinu. Nú er til dæmis mjög hagstætt að kaupa frá Bretlandi. Notaðu leitarvélar Til eru frábærar leitarvélar sem spara þér mikla vinnu við netverslun í útlöndum. Með því að nota þær geturðu auðveldlega fundið lægsta verðið á hverjum tíma. Í Danmörku er þægilegt að nota pricerunner.dk og í Noregi prisjakt.no. Í Bretlandi er pricerunn- er.co.uk tilvalin. Taktu bensín á Breiddinni Ef þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og átt leið um Kópavog, þá er þar rétti staður- inn til að taka bensín. Lítraverð á stöð Orkunnar, hjá Bónus, skammt frá BYKO á Breiddinni, er að jafnaði um 8 til 10 krónum lægra en annars staðar. Þetta hefur hingað til ekki farið hátt. Þarna getur munað 500 krónum á einum tanki. Frystu ávexti Íslendingar eru svo lánsamir að eiga neysluvatn í miklu magni. Það getur verið freistandi að kaupa vatn á flöskum, kannski með bragðefni, til að svala þorstanum. Miklu hag- stæðara er að búa slíkt til sjálfur. Sniðugt húsráð er að skera appelsínur eða epli niður í hæfilega bita og frysta. Láttu kalt vatn renna í könnu og settu bita af frosnum ávöxtum út í, með svolitlum fyrirvara. Þannig slærðu tvær flugur í einu höggi; vatnið verður ískalt og bragðið ekta. Reyktu frekar rafrettu Best er vitaskuld að hætta að reykja. Þeir sem reykja geta þó sparað með því einu að skipta yfir í rafrettu, sem flestar rannsóknir sýna að séu ekki eins skað- legar heilsunni. Á ritstjórn DV er maður sem reykir rafrettu. Rettan kostar um 10 þúsund og 10 millilítra glas af vökva – sem endist honum í um fimm daga – kostar um 1.500 krónur. Kostnaðurinn á ári, með kaupum á rettunni sjálfri, nemur 120 þúsund krónum. Ef þú reykir pakka á sígarettum á dag kostar það ríflega hálfa milljón á ári. Munurinn er tæplega 400 þúsund á ári, sem er tala sem maður með þokkaleg meðallaun fær útborgað á hverjum mánuði. Biddu um afslátt Verslunarmenn segja gjarnan, þegar DV krefur þá um svör vegna hárrar verðlagningar, að fáir kaupi vörurnar þeirra á fullu verði. Þetta vita sjálfsagt ekki allir. Gott ráð er að biðja alltaf um afslátt, þegar vara á borð við dekk og raftæki er keypt á Íslandi. Í versta falli færðu ekki afslátt og getur tekið ákvörðun í samræmi við það. Aldrei gefa til kynna að þú sért búinn að ákveða að kaupa vöruna af viðkomandi aðila. Kauptu varahluti í útlöndum Íslensk bílaumboð okra sum hver á varahlutum, og bílavörur, svo sem dekk, eru stundum sérstak- lega dýrar á Íslandi. Áður en þú kaupir varahlut í bílinn er tilvalið að athuga hvort hún fáist á vefnum rockauto.com en þar er um að ræða flottan bílavarahlutavef. Camskill.co.uk er dæmi um vefsíðu sem selur dekk á góðu verði. Þá þekkir DV dæmi þess að góðar rúðuþurrkur sé hægt að fá á hlægilegu verði á Ali Express. Prófaðu að skrifa inn tegundarheiti bílsins og árgerð og bættu við orðinu „blades“. DV mælir þó alltaf með að láta fagmenn annast viðgerðir á bílum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.