Fréttablaðið - 29.06.2017, Síða 2
Framkvæmdir við Sundhöllina
Framkvæmdir við Sundhöll Reykjavíkur eru nú í fullum gangi og þegar Fréttablaðið leit þar við í gær var verið að múra, slétta og gera fínt. Gert er
ráð fyrir að framkvæmdir kosti aðeins yfir milljarð króna en viðbyggingin verður um 1.140 fermetrar og útisundlaugin er um 750 fermetrar. Við-
bygging er byggð eftir vinningstillögu VA Arkitekta ehf. í kjölfar hönnunarsamkeppni sem haldin var árið 2013. Fréttablaðið/anton brink
Veður
Hæg suðvestlæg eða breytileg átt
í dag og á föstudag. Skýjað með
köflum og stöku skúrir, einkum
vestan til á landinu. sjá síðu 36
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7070 • volvopenta.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM
hjá volvo penta á íslandi
Öflug Volvo Penta þjónusta
Hjá Volvo Penta á Íslandi | Brimborg starfar framúrskarandi
teymi sem samanstendur af öflugum fagmönnum
Brimborgar og samstarfsaðilum um land allt.
Komdu í dag og ræddu við ráðgjafa.
HAFÐU SAMBAND Í DAG
• Sími: 515 7067 | 869 7537 Guðmundur Gísli
• Netfang: volvopenta@brimborg.is
• Heimasíða: volvopenta.is
Kauptu bestu varahlutina
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg er með gott úrval varahluta
á lager og á mjög hagstæðu verði. Varahlutasérfræðingar
okkar veita þér fyrirtaksþjónustu og ráðgjöf við kaup.
Volvo Penta Kubbur_10x10_20170615_Draft1.indd 1 20.6.2017 13:47:16
Menntun Prófgögn í námi til lög-
gildingar fasteigna- og skipasala
við Háskóla Íslands týndust í pósti í
maí á leiðinni til Austurríkis. Náms-
stjóri hjá Endurmenntun HÍ harmar
að úrlausnir nemenda í áfanganum
Fasteignakauparéttur hafi ekki enn
fundist en þær voru ekki sendar sem
rekjanlegur ábyrgðarpóstur.
Nemendur á fyrsta ári í námi End-
urmenntunar Háskóla Íslands til
löggildingar fasteigna- og skipasala
þreyttu prófið þann 6. maí síðast-
liðinn. Rúmum þremur vikum síðar
var þeim tilkynnt að gögnin hefðu
ekki borist kennara námskeiðsins,
en hann er búsettur í Austurríki. Í
tölvupósti frá starfsmanni HÍ sagði
að skólinn ynni í samstarfi við
Póstinn við að finna prófgögnin.
Af þessum sökum hefði ekki verið
hægt að leggja mat á árangur nem-
enda og tilkynna um einkunnir í
áfanganum. Rúmri viku síðar barst
nemendum annað bréf um að
starfsfólk HÍ og Póstsins
væri þá enn engu nær.
„Það verður komin
niðurstaða í málið
fyrir helgi og þá
munum við tilkynna
um hana. Við erum
búin að ráðfæra
okkur við lögfræð-
inga og bindum enn
vonir við að þetta
finnist. En við gerum
okkur grein fyrir að
niðurstaða þarf að
fást í málið og að við
getum ekki beðið
lengur. Okkur þykir
þetta mjög miður
enda hefur eitthvað
líkt þessu aldrei komið fyrir áður,“
segir Erna Guðrún Agnarsdóttir,
námsstjóri hjá Endurmennt-
un HÍ.
Erna segir að svo virð-
ist sem mannleg mis-
tök hafi leitt til þess
að prófgögnin voru
ekki send sem rekjan-
legur ábyrgðarpóstur.
Allar aðrar sendingar
Endurmenntunar í
gegnum tíðina hafi
farið þá leið.
Fréttablaðið ræddi
vi ð n e m e n du r í
áfanganum sem telja
skólann hafa tekið
sér of langan tíma til
að komast til botns í
málinu. Þeir benda á
að sjúkrapróf fyrir þá nemendur
sem komust ekki í prófið í byrjun
maí, voru haldin 12. júní og að
þeim hafi verið send stundaskrá
fyrir haustönn þrátt fyrir að ekki sé
ljóst hvort þeir uppfylli kröfu um
fullnægjandi meðaleinkunn.
haraldur@frettabladid.is
Próf týndust í pósti
á leið til Austurríkis
Nemendur í námi til löggildingar fasteigna- og skipasala hafa ekki fengið ein-
kunnir því prófgögn sem voru send til Austurríkis eru týnd. Kennarinn býr þar í
landi og voru úrlausnirnar sendar utan í maí en ekki sem rekjanlegur póstur.
Viðskipti Gengi hlutabréfa í Högum
lækkaði um 0,44 prósent í gær í 153
milljóna króna viðskiptum. Gengi
bréfa í Högum, sem reka meðal
annars verslanir Bónuss og Hag-
kaupa, hefur nú lækkað um 15 pró-
sent frá því að verslun Costco var
opnuð í Kauptúni þann 23. maí
síðastliðinn.
Markaðsvirði Haga hefur lækkað
um níu milljarða á tímabilinu, úr
61 milljarði króna í 51,9 milljarða.
Forsvarsmenn Haga hafa undirbúið
sig undir komu Costco og áhrif þess,
meðal annars með því að minnka
verslunarpláss nokkurra verslana
en einnig með því að festa kaup á
Lyfju og Olís.
Frá áramótum hefur gengi bréfa í
Högum lækkað um 16,7 prósent. Á
sama tímabili hefur úrvalsvísitalan
hækkað um 3,3 prósent. – sg
Markaðsvirði
Haga lækkað
um 9 milljarða
Viðskipti Eigendur Arctic Advent-
ures og Extreme Iceland hafa komist
að samkomulagi um kaup Arctic
Adventures á Extreme Iceland og
miðast kaupin við 1. júlí 2017. Yfir
300 starfsmenn munu starfa hjá
Arctic Adventures og dótturfélög-
um eftir kaupin en um 35 starfs-
mönnum verður sagt upp störfum
í tengslum við þau segir í tilkynn-
ingu.
Extreme Iceland heldur áfram
starfsemi sem sjálfstætt félag í eigu
Arctic Adventures og verða núver-
andi eigendur Extreme Iceland
hluthafar í Arctic Adventures eftir
kaupin.
„Fyrirtækin hafa bæði notið mik-
illar velgengni síðustu ár en með
kaupunum skapast tækifæri til að
samnýta kerfi beggja fyrirtækja og
byggja á styrkleikum hvors félags
fyrir sig. Með aukinni samvinnu
fyrirtækjanna skapast veruleg sam-
legðaráhrif, sem gera fyrirtækjunum
enn betur kleift að takast á við
þær breytingar sem eiga sér stað í
íslenskri ferðaþjónustu,“ segir Jón
Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Arctic Adventures og dótturfélaga.
Fram kemur í tilkynningu að
verði ytri aðstæður greininni hag-
stæðar næstu misserin sé ljóst að
starfsfólki Arctic Adventures muni
fjölga enn.
Ákveðið hefur verið að Straum-
hvarf, dótturfélag Arctic Advent-
ures, muni frá og með 1. október
2017 sjá um framkvæmd allra ferða
Extreme Iceland. – sg
35 manns sagt
upp störfum
tilvonandi fasteigna- og skipasalar á fyrsta ári í HÍ bíða enn eftir einni loka-
einkunn og þurfa að bíða eitthvað aðeins lengur. Fréttablaðið/anton brink
Okkur þykir þetta
mjög miður enda
hefur eitthvað líkt þessu
aldrei komið fyrir áður.
Erna Guðrún Agnars-
dóttir, námsstjóri
hjá Endurmennt-
un HÍ
kaupin á Extreme iceland miðast við
1. júlí 2017.
2 9 . j ú n í 2 0 1 7 F i M M t u D A G u R2 F R é t t i R ∙ F R é t t A B L A ð i ð
2
9
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
9
-6
5
B
C
1
D
3
9
-6
4
8
0
1
D
3
9
-6
3
4
4
1
D
3
9
-6
2
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K