Fréttablaðið - 29.06.2017, Síða 36

Fréttablaðið - 29.06.2017, Síða 36
Glastonburyhátíðin er ekki bara fyrir aðdáendur tón­listarinnar heldur safnast þarna saman margir af þeim best klæddu á Englandi. Glastonbury er á fallegum stað í Somerseth á Englandi. Uppselt var á hátíðina en hún verður ekki haldin aftur fyrr en eftir tvö ár. Í fyrra voru margar stúlkur með blómakrans í hárinu. Það sást ekki núna en litrík sólgleraugu eru komin í staðinn. Þá virtust stígvél vera í hátísku, sérstaklega Hunter Original. Það var hlýtt í veðri um helgina í Glastonbury og galla­ buxnastuttbuxur því algeng sjón. Þó féllu nokkrir regndropar á mannskapinn. Meðal þekktra gesta voru Liam Gallagher, Jeremy Corbyn, Johnny Depp, Beckhamhjónin Vict­ oria og David, Stella McCartney, Sienna Miller, Alexa Chung, Margot Robbie og Suki Water­ house svo einhverjir séu nefndir. Þá tróðu margar stórstjörnur upp á hátíðinni og má þar nefna Kate Perry, Ed Sheeran, Radiohead, Foo Fighters, Jamie Culum, Barry Gibb ásamt mörgum öðrum. Hátíðin fór fram um síðustu helgi en gestir skildu eftir sig ómælt magn af dósum og gler­ flöskum. Um eitt þúsund sjálf­ boðaliðar hafa unnið við flokkun á rusli til endurvinnslu eftir að hátíðinni lauk. Glastonburyhátíðin var fyrst haldin árið 1970, daginn eftir að Jimmy Hendrix féll frá. Um 175 þúsund manns koma venju­ lega saman á þessa frægu útihá­ tíð sem stendur í fimm daga og er sú stærsta í Evrópu, jafnvel í öllum heiminum. Hátíðin er talin mikilvæg fyrir breska menningu. Michael Eavis kúabóndi hefur staðið fyrir hátíðinni ásamt dóttur sinni, Emily Eavis. Ástæða þess að Glastonburyhátíðin verður ekki haldin á næsta ári er sú að landið þarf að jafna sig eftir átroðning undanfarinna ára, að sögn Mich­ aels. Hann segir að eitt geti þó breytt þeirri ákvörðun sinni, það er ef hljómsveitin The Smiths væri tilbúin að koma aftur saman og leika á hátíðinni. Stígvélatíska á Glastonbury Tónlistarhátíðin Glastonbury dregur til sín mikinn fjölda fólks á hverju ári. Stórstjörn- urnar stíga á svið og gestirnir fylgja tískunni. Suki Waterhouse lét sig ekki vanta á hátíðina frekar en margir aðrir þekktir einstaklingar. Suki er þekkt fyrirsæta og leikkona. Hún var lengi fyrirsæta fyrir Burberry. Hér er Suki Waterhouse búin að skipta um föt en er enn í stígvélunum góðu. Hún var kærasta Bradleys Cooper í tvö ár en þau slitu sambandinu. Alexa Chung er í lágum Hunter-stíg- vélum. Alexa er rithöfundur, fyrir- sæta og tískuhönnuður. Margot Robbie er áströlsk leikkona. Hún lék m.a. í Neighbours og The Wolf of Wall Street. Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Glæsilegir jakkar Verð 11.900 kr. Stærð 38 - 44 Opið virka daga kl . 11–18 Opið laugardaga k l. 11-15 333 krá dag* 365.is Sími 1817 *9.990.- á mánuði. 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . j ú n í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 2 9 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 3 9 -9 2 2 C 1 D 3 9 -9 0 F 0 1 D 3 9 -8 F B 4 1 D 3 9 -8 E 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.