Fréttablaðið - 29.06.2017, Side 38
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
Gestir geta komið og gætt sér á ólíkum kaffidrykkjum.
Íslendingar eru mikil kaffiþjóð og það er metnaður margra fyrir-tækja að bjóða upp á gott kaffi,“
segir Helgi Jóhannesson, sölustjóri
fyrirtækjasviðs Danól. „Hvaða leiðir
eru valdar í þeim efnum er afar mis-
jafnt eftir því hvernig aðstæður eru
hverju sinni en hér hjá Danól geta
allir fundir eitthvað við sitt hæfi.“
Danól býður upp á metnaðar-
fulla kaffiþjónustu. „Við flytjum
inn hágæða ítalskt kaffi frá Lavazza,
danskt gæðakaffi frá Merrild og
ýmsa kaffidrykki og vörur frá
Nestlé. Þá leigjum við út kaffivélar
af öllum stærðum og gerðum,“ lýsir
Helgi.
Danól þjónustar fyrirtæki, hótel,
kaffihús og veitingastaði með
heildarlausnir í kaffiþjónustu. „Við
veitum ráðgjöf varðandi kaffi og
hjá okkur starfa sérmenntaðir kaffi-
þjónar.“
Glæsilegur sýningarsalur
Danól tók í gagnið nýjan og glæsi-
legan sýningarsal að Tunguhálsi 19
á vordögum. „Þangað geta áhuga-
samir viðskiptavinir komið og
gætt sér á ekta ítölskum espresso
meðan þeir skoða allar þær kaffi-
vélar sem við bjóðum upp á,“ segir
Helgi og hefur þessari þjónustu
verið afar vel tekið. „Nýjum og
núverandi viðskiptavinum finnst
gott að koma og upplifa mis-
munandi bragðtegundir af kaffi.“
Salurinn er einnig nýttur undir
námskeið en veitingastaðir og
kaffihús sem kaupa þjónustu hjá
Danól geta sent starfsfólk í þjálfun
hjá sérþjálfuðum kaffibarþjónum.
Fjölmargir möguleikar
Fyrirtækjaþjónusta Danól sér-
sníður lausnir að þörfum við-
skiptavina. „Möguleikarnir eru
óteljandi og leiðirnar sem farnar
eru fara eftir því hvaða sérstöðu
viðskiptavinir vilja draga fram.
Meðan sumir vilja uppáhellt kaffi
vilja aðrir geta valið úr ólíkum
drykkjum á borð við espresso,
café latte og capuccino. Við erum
með mismunandi bragðtegundir
af möluðu kaffi, kaffihylkjum og
kaffibaunum.“
Helgi segir starfsfólk Danól ekki
hafa neinar fyrirframákveðnar hug-
myndir þegar viðskiptavinir leiti
til þeirra. „Við hlustum og leitum
leiða til að koma til móts við allar
óskir. Sérsníðum síðan lausnir eftir
þörfum viðskiptavina til að mæta
væntingum þeirra viðskiptavina
og starfsmanna. Við bjóðum ólíkar
lausnir fyrir fyrirtæki, hótel og
veitingastaði og leggjum metnað
okkar í að sérhver kaffibolli verði
að töfrandi upplifun.“
Þeir sem vilja kynna sér nánar kaffi-
þjónustu Danól geta farið á vefinn
www.danol.is.
Hluti af kaffimenningu Íslands
Fyrirtækjaþjónusta Danól býður fyrirtækjum, hótelum, kaffihúsum og veitingastöðum heildar-
lausn í kaffiþjónustu. Í nýjum sýningarsal að Tunguhálsi 19 er hægt að bragða á ólíkum kaffidrykkj-
um, allt frá cappuccino til espresso, og skoða hinar ólíku kaffivélar sem standa til boða.
Stöð 2 var stofnuð að frum-kvæði brautryðjendanna Jóns Óttars og Hans Kristjáns
Árnasonar. Jón Óttar var spurður
hvers vegna Lyngháls hefði orðið
fyrir valinu undir starfsemi
Stöðvar 2. „Hans Kristján og ég
leituðum með logandi ljósi um öll
úthverfi Reykjavíkur að húsnæði
sem var laust og nægilega stórt til
að hýsa sjónvarpsstöð. Þegar við
fundum risastórt autt húsnæði á
horni Lyngháls og Krókháls sáum
við strax að hér væri frábært hús-
næði fyrir sjónvarpsstöð,“ svarar
hann. „Húsið var í eigu eins stærsta
plastfirma landsins, Plastos. Ekki
aðeins voru eigendurnir til-
búnir að leigja okkur húsnæðið
heldur máttum við auk þess greiða
leiguna að hluta til í sjónvarpsaug-
lýsingum. Þessi lykilsamningur
var ein af ástæðum þess að þetta
ævintýri okkar varð að veruleika,“
útskýrir Jón Óttar sem nú starfar
og býr í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum ásamt konu sinni, Margréti
Hrafnsdóttur.
Það var mikill spenningur í
þjóðfélaginu fyrir þessari nýju
sjónvarpsstöð á sínum tíma og Jón
Óttar segir að mikið hafi þurft að
gera fyrir húsið svo það hentaði
starfseminni. „Húsnæðið var
algjörlega hrátt. Til allrar ham-
ingju var snillingurinn Valgerður
Matthíasdóttir, bæði arkitekt og
innanhússarkitekt, með í frum-
herjahópnum. Vala vann það
stórvirki að hanna umgjörð utan
um starfsemina sem var í senn
svo glæsileg og framúrstefnuleg
að Stöð 2 varð næstu ár á eftir
leiðandi afl í hönnun og tísku.“
Þegar Jón Óttar er spurður
hvort mikil uppbygging hafi verið
í þessu hverfi árið 1986, svarar
hann: „Ég er ekki rétti maðurinn
til að svara því. Ég var einfaldlega
alltof upptekinn við að hleypa
þessu spútnikævintýri af stokk-
unum til að fylgjast með því. Samt
fannst mér við alltaf frekar mikið
út úr á þessum tíma sem hentaði
stórvel því við þurftum frið og
næði til að finna eigin sál og eigin
ritma.“
Stöð 2 var mikið ævintýri á
sínum tíma og allt sem þar var
gert komst í fréttirnar. Bæði var
skrifað um fólkið sem kom að
stöðinni og nýja þætti sem fóru í
loftið. Margir eftirminnilegir
íslenskir þættir voru kynntir fyrir
þjóðinni.
Jafnvel mætti líkja komu Stöðvar
2 á fjölmiðlamarkaðinn við opnun
Costco í Garðabæ. Um byltingu var
að ræða í íslensku samfélagi sem
einungis hafði haft eina sjónvarps-
rás sem tók sér frí á fimmtudögum
og allan júlímánuð. Umtalið var
gífurlegt og þeir voru margir sem
trúðu því ekki að þetta ævintýri
myndi verða til frambúðar. Stöð
2 hefur hins vegar dafnað vel og
þroskast á þessum rúmu þrjátíu
árum sem hún hefur verið starf-
andi. Jón Óttar segir að þetta hafi
verið skemmtilegir tímar. „Ég held
ég tali fyrir munn ansi margra
sem unnu að því að koma Stöð 2
á laggirnar að þetta var einhver
skemmtilegasti tími ævi okkar.
Fátt eða ekkert er eins stórkostlegt
og verða vitni að því þegar stórir
draumar rætast. Vonandi verður
þessi magnaða eyþjóð ávallt nógu
hugrökk til að kveða draum-
þjófana í kútinn og láta ævintýri
sín rætast hvað sem umheimurinn
tautar og raular,“ segir hann.
Draumar rættust á Lynghálsi
Stóð 2 fór í loftið 9. október 1986. Starfsemin var á Lynghálsi 5 og sjónvarpsstjórinn var Jón Óttar
Ragnarsson. Valgerður Matthíasdóttir hannaði útlitið fyrir stöðina sem þótti afar glæsilegt.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
9. október 1986, fyrsta útsending Stöðvar 2. Jón Óttar
flytur opnunarávarp.
Frumkvöðlar í fjölmiðlun, Jón Óttar, Ólafur Jónsson,
Hans Kristján Árnason og Valgerður Matthíasdóttir.
„Vonandi verður þessi magnaða
eyþjóð ávallt nógu hugrökk til að
kveða draumþjófana í kútinn og
láta ævintýri sín rætast hvað sem
umheimurinn tautar og raular,“ segir
Jón Óttar.
Danól tók í gagnið nýjan og glæsilegan sýningarsal að Tunguhálsi 19 á vordögum.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . J ú n Í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
2
9
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
9
-7
E
6
C
1
D
3
9
-7
D
3
0
1
D
3
9
-7
B
F
4
1
D
3
9
-7
A
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K