Morgunblaðið - 07.01.2017, Síða 12

Morgunblaðið - 07.01.2017, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 Morgunblaðið/Golli Heilsa Anna Katrín Ottesen sjúkraþjálfari hreyfir sig regluleg en hún fer m.a. í sjósund með eiginmanni sínum. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Móttakan var að venju góðhjá Önnu Katrínu Otte-sen sjúkraþjálfara enég hef nokkrum sinnum leitað til hennar vegna tognana, vöðvaslita og annarra verkja sem fylgja reglulegri knattspyrnuiðkun. Hún er með sinn eigin rekstur ásamt syni sínum Hannesi Pétri Jónssyni á Hraunteigi 14, ekki svo ýkja langt frá Laugardalslauginni. Ilmurinn í loft- inu er einstakur, einhvers konar blanda af nuddolíu, greni eða smyrslum, sem Anna hefur örugg- lega blandað sjálf. Spennan sem fylgir undirbúningi jóla og áramóta svo gott sem hverfur þegar inn er komið. „Hér er ekkert hátíðarstress, ég legg meira upp úr því að njóta jólanna og áramóta með fjölskyldu og vinum en að gera allt fullkomið fyrir hátíðarnar,“ segir Anna en ég var einmitt kominn til að ræða við hana um heilsuna, þ.e. hvernig er hægt að standa við öll áramótaheitin, þið vitið að hreyfa sig meira, borða betur og bæta heilsuna! Farðu þína eigin leið „Í þá áratugi sem ég hef starfað í heilbrigðisgeiranum hef ég séð fólk fara ólíkar leiðir við að bæta heilsu sína. Undirstaðan er alltaf sú sama, þ.e. hreyfing, gott mataræði og góður svefn. Hvernig þú hreyfir þig og hvaða mataræði þú venur þig á er undir þér komið. Þú verður að finna þína leið, finna það sem hentar þér. Sumir synda, aðrir hjóla eða ganga og enn aðrir gera eitthvað allt annað eða sitt lítið af hverju,“ segir Anna sem sjálf hefur hlaupið, synt, hjólað og gengið til að halda sér í formi. „Síðustu tíu ár hef ég lagt meira upp úr styrkjandi æfingum til að við- halda beinmassa en hljóp töluvert hér áður fyrr. Þá finnst mér góð regla að tala um að bæta heilsuna í stað þess að einblína á formið. Góð heilsa snýst um meira en að líta vel út.“ Spurð hvort hún mæli með ein- hverju umfram annað fyrir þá sem vilja fara rólega af stað, t.d. sund, segir Anna mikilvægt að hlusta á lík- amann sama hvaða sport er valið. „Sund er mjög góð hreyfing og hentar mörgum. Það er minna álag á liðamót í sundi en t.d. hlaupi. Sund er því góð alhliða þjálfun. Ég set það helst fyrir mig að sundiðkun fer að miklu leyti fram í klórlaugum hér á landi en klórinn er að mínu mati allt of mikill í vatninu og við mættum gera meira af því að finna leiðir til að takmarka hann,“ segir Anna og bendir jafnframt á að þeir sem vilja alfarið losna við klórinn ættu að kynna sér sjósund. „Sjálf finnst mér sjósund alveg einstakt og það hentar mér vel enda bætir það ónæmiskerfið og er gott fyrir liði og vinnur á alls konar kvill- um.“ Borðar betur og fastar Eftir jól og áramót er hætt við því að vigtin sýni nokkuð fleiri kíló en í byrjun desember. Margir lofa bót og betrun á nýju ári en oftar en ekki er allur dampur farinn úr áramóta- heitum um miðjan janúar. Mat- aræðið er gjarnan það fyrsta sem brestur enda auðvelt að láta freistast og taka eitt súkkulaðistykki eða koma við á skyndibitastað á leið heim úr vinnu í skammdeginu. „Hér gildir það sama og með hreyfinguna. Fólk verður að finna hvað hentar. Það hefst hins vegar ekkert nema við viðurkennum fyrir sjálfum okkur hvar veikleikar okkar liggja þegar kemur að þægindamat. Sjálf er ég veik fyrir kökum en hef þá reglu að eiga ekkert óhollt heima fyr- ir, því nóg er af því annar staðar, seg- ir Anna og bendir á að börn sem venjist hollustu heima fyrir séu lík- legri til að halda sig við hollustu síðar á lífsleiðinni. Maturinn er að hennar sögn stór þáttur í að losa líkamann við alls kon- ar óþverra og eiturefni. „Við höfum val. Ef við viljum sjá breytingar eða ná bata, verðum við að viðurkenna að eiturefni eru ekki örugg fyrir líkama okkar og að stærstum hluta er ónæmiskerfi okk- ar háð virkni þarmastarfseminnar og flóru. Já, ég sagði nefnilega eiturefni. Þetta snýst ekki bara um það að borða minna og ná af sér nokkrum kílóum. Það eru atriði sem ég hef út- skýrt fyrir fólki sem kemur í meðferð til mín sem er að kvarta undan ýms- um kvillum s.s. svefnleysi, maga- og meltingarvandamálum, höfuðverk, síþreytu, vefjagigt, húðvandamálum, stoðkerfisvandamálum o.fl, o.fl að ein af ástæðum fyrir kvillum er ósýni- legur óvinur eða eiturefni sem við er- um uppfull af.“ Anna segir margt hægt að gera til að snúa vörn í sókn, t.d. breytt mataræði, að taka inn góð næring- arefni, hreyfing og hreinsun eða svo- kallað detox. „Þegar kemur að því eru fjöl- margar leiðir til. Allt frá því að fasta með vatni og safa, takmarka dag- legan kaloríufjölda sem borðaður er, fasta sem á sé stað með jöfnu millibili eða svokölluð intermittent fasting, fasta þar sem 500 kaloríur eru borð- aðar einn daginn og venjulegur mat- ur þann næsta eins og t.d. 5:2 fasta en þá eru borðaðar um 500 kaloríur með jöfnu millibili tvisvar sinnum í viku en það eru til tvær leiðbein- ingabækur með uppskriftum um slíkt, m.a. önnur eftir kollega minn Lukku í Happi og hin er skrifuð af lækninum Michael Mosley og þýdd á íslensku.“ Hreinsun hugans Hjá Önnu er ákveðin ró yfir öllu enda leggur hún upp með að skapa rólegt og gott andrúmsloft á stofunni hjá sér. „Slökun og hvíld er hluti af bata. Það er mikilvægt að hreyfa sig og borða rétt en ekki er síður mikilvægt að hvíla sig á milli og ná slökun fyrir alla vöðva og liði líkamans. Það gildir líka um heilann og hugsunina.“ Við þurfum ekki að vera vel þjálfaðir búddamunkar til að ná and- legu og líkamlegu jafnvægi að sögn Önnu sem mælir með að fólk stundi hvort tveggja öndunaræfingar og hugleiðslu. „Við þurfum að hreinsa hugann eins og líkamann en það má gera það t.d. í göngutúr eða sundi þar sem við erum ein með sjálfum okkur. Fólk getur líka tekið sér stutta pásu í vinnu, sest niður og einbeitt sér að andardrættinum í nokkrar mínútur. Ég er viss um að ef þú hreyfir þig ör- lítið meira, borðar aðeins hollari mat og tekur þér tíma til að njóta augna- bliksins verður árið 2017 gott ár,“ segir Anna með bros á vör. Jafnvægislistin að halda góðri heilsu Anna Katrín Ottesen sjúkraþjálfari hefur rannsakað og leiðbeint fólki við að bæta heilsu sína í áratugi. Hún segir að finna þurfi jafnvægi hjá hverjum og einum. Limsfélagið er félags- skapur fólks sem keypti folann Lim í kreppunni, til að sporna gegn leiðindum og þunglyndi. Limurinn var seldur úr landi en fjórir ný- ir folar eru í eigu félagsins. Í kvöld, laugardag, blæs Limsfélagið til árlegrar há- tíðar til að fagna nýju ári en hátíðin sú gengur út á mikið hrossakjötsát en þó fyrst og fremst að koma saman og hafa gaman. Hrossakjötsveisla Limverja verður í Fáksheimilinu í Reykjavík og húsið opnað kl. 19 en borðhald hefst kl. 20. Í tilkynningu segir að ræðumaður kvöldsins muni hrista upp í karl- pungafélaginu. Hrossaket- ið verður reitt fram að hætti Silla Ægis, sem ku vera einkar laginn við það, hvort sem ketið er lifandi eða dautt. Allir skemmti- legir hestamenn og aðdá- endur þeirra eru velkomnir. Endilega … Gæðingur Hér gefur að líta Liminn sjálfan. …graðgið í ykkur hrossakjöt Fyrirtækið Ukulele Reykjavík var stofnað fyrir nokkrum árum í Vesturbæ Reykjavíkur af Haraldi R. Sverrissyni, en hann gerði það með það fyrir sjónum að öll börn ættu að geta upplifað ánægjulega stund með vinum og vinkonum við hljóð- færaleik. Þetta kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins ukulele- reykjavik.com, en einnig kemur þar fram að þar sé áherslan ekki á að framleiða afreksfólk en hæfi- leikaríkir einstaklingar fái sín þó notið til fulls. Bæði er kennd ákveð- in tækni sem nauðsynlegt er að ná tökum á og einnig læra nemendur að nota hljóðfærið sem verkfæri sem þau sjálf ráði yfir en ekki öf- ugt. Á heimasíðunni kemur einnig fram að Haraldur R. Sverrisson hafi starfað sem grunnskólakennari ásamt því að kenna á ukulele, gítar, bassa og tónlistarforrit. Nemendur Haraldar eru á öllum aldri og spanna vítt aldursbil. Haraldur er sérmenntaður sem kennari á yngsta stigi grunnskóla og hefur nýtt sér þekkingu sína á því aldursstigi við hljóðfærakennslu. Yngstu nemendur hafa verið tveggja ára en þeir elstu um sjötugt. Haraldur hefur sótt fjölda námskeiða í kennslufræðum í Noregi og kynnt sér nám grunn- skólabarna í Bretlandi, Lettlandi, Noregi og Svíþjóð. Vert er að taka fram að hægt er að fá lánuð uku- lele í tímum og að Ukulele Reykja- vík er aðili að Frístundakorti Reykjavíkur. Skráning er hafin á ukulele- námskeið sem hefjast í næstu viku 9.-13. janúar og tímar fyrir full- orðna, börn og unglinga. Skráning á heimasíðunni ukulelereykjavik.com Vefsíðan: www.ukulelereykjavik.com Yngstu nemendur tveggja ára, en þeir elstu um sjötugt Morgunblaðið/Ómar Ukulele Slík hljóðfæri hafa notið vaxandi vinsælda. Drykkur sem minnkar bólgur og eykur meltingarvökva. 2½ tsk. túrmerik malað 1½ tsk. kanill malaður 1 tsk. pipar malaður 1 tsk. negull malaður 1 tsk. engifer malað 1 tsk. hunang eða 1 tsk. lakkrísrót 1 tsk. eplaedik eða sítrónusafi Setja allt saman í pott ásamt tveimur lítrum af vatni, ná upp suðu, slökkva á hellunni og láta standa nokkrar klst. eða yfir nótt, sía síðan og geyma í ísskáp. Drekka ½ bolla 15-20 mín. fyrir máltíð. Gott að drekka í þrjár vikur og hvíla í eina viku. Heilsudrykkur Önnu MATUR OG DRYKKIR Skannaðu kóðann til að lesa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.