Morgunblaðið - 07.01.2017, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 07.01.2017, Blaðsíða 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 Hugmyndin umskort á tímaveldur vanlíðanog rýrir lífs- gæði okkar. Við herðum okkur upp, viljum ekki falla á tíma, hlaupum hraðar, hendumst frá einu í annað, andardrátturinn hraður og grunnur, súrefnisskortur tilfinnanlegur og við njótum ekki andartaksins, lifum ekki í núinu. Hlaupum í kapp við tímann sem er ekki til en er samt til, í hug- anum og tungumálinu: Tím- inn er peningar, tíminn er dýrmætur, látum ekki tím- ann fara til spillis, nýttu tímann vel. Þeir sem tapa í baráttunni, gefast upp og láta sér leiðast fá það ráð að drepa tímann. Aðrir muna tímana tvenna, jafn- vel þá tíma er Tíminn var og hét en svo stóðst hann ekki tímans tönn og var sleginn af og margir kannast við mátt orðanna: Minn tími mun koma. Við mælum tímann og samt grunar okkur að það sé eitthvað galið við mælinguna, til dæmis er aðfangadagur lengri en aðr- ir dagar hjá börnum en mun styttri hjá fullorðnum þrátt yfir sama fjölda stunda. Við erum löngu hætt að hugsa um að mannkynið hafi fund- ið upp þessa mælistiku eða velta fyrir okkur hvort það sé gott að miða allt í lífinu við klukkustundir, vikur, mánuði og ár. Aldurinn færist yfir, árunum fjölgar og við förum að telja niður. Við hver tímamót, eins og áramót, rembist ég við að finna tímann á eigin skinni. Ekki bara í hrukkufjölda og kílóum, mæði eða slappleika heldur í huganum. Og eftir að hafa í hálfa öld reynt að finna þessi skil finn ég bara ekki neitt, finn ekkert breytast við áramót en finn að lífið gefur mér alltaf meira eftir því sem ég lifi lengur, fleiri minningar, meiri yfirsýn, meiri gleði og hamingju yfir því að vera til. Og ég hallast að því að tímamælingar séu ekki góð leið til að velta fyrir sér lífsins gangi heldur sé betra að horfa inn á við, leita í eigin höfði og hjarta að björtustu minningunum, bestu tilfinning- unum, mestu rónni og reyna að endurskapa þær aðstæður sem gefa okkur mest. Hætta að hafa áhyggjur af hvað maður eigi eftir af tíma, njóta hvers augnabliks eins og það kemur til manns. Sitja lengur með góðum vinum á góðri stundu og taka hraðar til fótanna frá leiðinlegum samræðum eða inni- haldslausum verkefnum. Hika ekki við að velja það sem færir hamingju og skiptir þá engu máli hvaða „tíma“ það tekur því hvert spor er gæfuspor í sjálfu sér við gefandi verkefni. Það er ekki áfangastaðurinn sem skiptir máli heldur að njóta leiðarinnar. Staldra lengur við á stöðum sem heilla, hlusta betur á fólk sem talar um það sem yljar manni. Dýrmæt augnablik lifa með okkur alla ævi, bæði þau sem færðu okkur gleði og sorg. Jafnvel sorgin gef- ur okkur fyllingu í lífið, hún sýnir að við höfum átt samleið með einhverjum sem við nutum augnabliksins með hvort sem þau voru mörg eða fá, stutt eða löng. Augnablikin í lífinu eru óteljandi og ógreinileg eins og Vatnsdalshólarnir og renna saman og út í eitt ef út í það er farið. Tímans tönn hefur nagað enn eitt árið Tungutak Lilja Magnúsdóttir liljam@simnet.is Morgunblaðið/Sverrir Það er margt sem leitar á hugann við lesturbókar Steinunnar Sigurðardóttur rithöf-undar um fjalldalabóndann Heiðu, sembókaforlagið Bjartur gaf út nú fyrir jólin, en Heiða er ung kona, innan við fertugt, sem býr á Ljót- arstöðum, efsta bæ í Skaftártungu. Mín fyrsta hugsun við lestur þessarar bókar sner- ist um föðurömmu mína, sem hét Vilborg Runólfs- dóttir og var fædd að Ásgarði í Landbroti en átti heima um skeið undir lok 19. aldar á Eintúnahálsi, sem var bær fjarri öllum öðrum byggðum en er nú eyðibýli sem finna má þegar ekið er inn í Laka. Þangað hef ég komið oftar en einu sinni og alltaf spurt sjálfan mig sömu spurningar: Hvernig í ósköp- unum gat fólk lifað af á þessum stað (bæjarstæðið er fallegt) í myrkri og kulda 19.aldar? Sem barni var henni bannað að borða ber, þótt skortur væri á mat, vegna þess að fólk trúði því, 100 árum eftir Skaft- árelda, að þau væru eitruð. Þegar Heiða á Ljótarstöðum talar við Steinunni um Kötlu finn ég sömu ógn og ég skynjaði sem barn hjá ömmu minni, þegar hún talaði um Kötlu. Önnur hugsun sem leitaði á mig var þessi: Mikið óskaplega er gaman að enn skuli vera til fólk eins og Heiða á Íslandi okkar tíma. Nútíma sam- félag stuðlar að einsleitni þjóð- arinnar. Allir verða eins – eða svip- aðir. Fyrir hálfri öld var mér sagt í Bandaríkjunum að sjónvarpið hefði átt þátt í að draga úr sérkennum þeirrar ensku sem töluð var í Suðurríkjunum. Getur verið að eitthvað svipað hafi gerzt hér? Sú var tíðin að íslenzkan sem töluð var þar fyrir austan bar ein- kenni einangraðar sveitar, eins og heyra mátti á æskuvinkonu minni, Brynju Benediktsdóttur leik- stjóra. Og það eru ekkert voðalega margir sem enn tala íslenzku á þann veg sem Jón Baldvin Hannibals- son gerir, enda Vestfirðir ekki síður einangraðir fyrr á tíð en Skaftafellssýslur. Þessi einangrun kom sér vel í fjárskiptunum um miðja síðustu öld. Sauðfjárstofn okkar í dag er að langmestu leyti kominn frá þessum tveimur lands- hlutum, sem mæðiveikin náði ekki til. Ég gleymi hvorki stund né stað, þegar ég eignaðist lamb og mátti velja úr lambahópnum, sem kom í Borgarfjörð frá Ströndum. Það var andlitsfríðasta lambið í hópn- um! Bókin um Heiðu er einhver áhrifamesti óður til ís- lenzks landbúnaðar sem ég hef lesið áratugum sam- an. Hvernig dettur fólki í hug að gera jafn lítið úr þessari atvinnugrein og stöðugt er gert í opinberum umræðum? Landbúnaður við erfiðar aðstæður eins og hér á þessari eyju, sem bæði Ljótarstaðir og Eintúnaháls eru skýr dæmi um, er ríkur þáttur í þjóðarvitund okkar. Enda voru sveitabæirnir ekki bara sveitabæir heldur menningarsetur fyrr á tíð. Raunar er þróun landbúnaðar í heiminum á þann veg vegna hlýnunar jarðar að ætla má að landbúnaður á Íslandi muni blómstra næstu áratugi, m.a. vegna þurrka og vatnsleysis sem sækja á suðlægari lönd. Barátta fjalldalabóndans við fjármagnseigendur að sunnan færir okkur síðan nær nútímanum. Þar er öll- um brögðum beitt til þess að brjóta á bak aftur bar- áttu Heiðu gegn fjármagninu sem vill leggja undir sig landið sem hún vill vernda fyrir komandi kyn- slóðir. Það er ekki mikill munur á starfsaðferðum fjár- magnsins í Skaftártungum eða 500 milljóna manna ríkjasambands, Evrópusambandsins, sem vill leggja Ísland undir sig og notaði m.a. til þess fé sem dreift var um landið fyrir nokkrum árum til þess að skapa sér vinsamlega ásýnd meðal eyjarskeggja. Útgáfa þessarar bókar verður hins vegar til þess að Heiða verður ekki lengur ein í baráttu sinni við virkjanafyrirtæki. Kannski er þetta þó fyrst og fremst bók um þrautseigju. Heiða hefði getað haslað sér völl sem fyrir- sæta í New York en kýs að gerast fjalldalabóndi í Skaftártungu. Lýs- ingar hennar á því starfi og þeim verkefnum sem því fylgja frá degi til dags eru áreiðanlega gullnáma fyrir fólk á suðvest- urhorni landsins, sem fær þar einstaka innsýn í starf sauðfjárbóndans. Þetta er líka bók um jafnréttisbaráttu kvenna. Heiða gengur í öll verk og skilur ekki muninn á karlaverkum og kvennaverkum. Og svo er þetta bók um það hvernig við höfum far- ið að því að lifa af í þessu landi í bráðum 1.200 ár. Maður hafði orð á því við mig um daginn að landið hefði lagt sig fram við að losna við okkur allar þessar aldir. Fyrst og fremst með náttúruhamförum. Eld- gos, snjóflóð, ofsaveður á sjó og landi til viðbótar við myrkur og kulda. Stundum með sjúkdómum. Við vor- um orðin býsna fá fyrir nokkrum öldum. En. Við höfum lifað af. Ekki sízt með því hugarfari sem einkennir Heiðu á Ljótarstöðum. Þessa bók á að lesa í öllum skólum landsins. Það á að kenna hana í öllum skólum. Ræða hana. Skrifa um hana ritgerðir. Þetta er kennslubók í að vera Íslend- ingur. Er ekki kominn tími til að taka það námsefni upp í skólum? Það verður gaman að fylgjast með fjalldalabónd- anum í framtíðinni. Hún er augljóst efni í forystu- mann fyrir friðun miðhálendis Íslands. Hún gæti lent inni á þingi, þar sem hún var í framboði í þingkosn- ingunum í haust. Ég er ekki alveg viss um að Steinunn Sigurð- ardóttir geri sér grein fyrir hvað hugmyndin sem hún fékk dag einn við eldhúsborðið á Ljótarstöðum getur átt eftir að hafa mikil áhrif. Hugmyndir eru mikilvægar. Fjalldalabóndinn Bókin er áhrifamikill óður til íslenzks landbúnaðar. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Hér hefur verið vikið að skjól-kenningu samkennara míns, Baldurs Þórhallssonar, en hún er í fæstum orðum, að Íslendingar hafi alla tíð leitað að skjóli og fundið það ýmist í Noregi, Danmörku, Bretlandi eða Bandaríkjunum. Þótt þessi kenning sé hæpin, er hún ekki alröng, og hún hefur þann kost, að við hin tökum að velta fyrir okkur ýmsu úr Íslands- sögunni. Baldur telur Íslendinga hafa af fúsum vilja játað Noregskonungi skatt 1262. Það er eflaust rangt. Þjóðveldið leið undir lok af tveim- ur ástæðum. Gissur jarl hafði náð yfirráðum yfir mestöllu landinu, og hann beitti sér fyrir því að gangast konungi á hönd. Íslend- ingar hræddust líka einangrun vegna fjarlægðarinnar frá Norður- álfunni. En bændur voru þrátt fyrir það mjög tregir til að gerast þegnar konungs, ekki af föð- urlandsást, heldur af ótta við skatta og aðrar álögur. Hins vegar féll Hákon gamli Noregskonungur frá tveimur ár- um eftir að Íslendingar urðu þegnar hans. Hefði þjóðin tregð- ast við í nokkur ár, þá hefði þjóð- veldið ef til vill ekki liðið undir lok. Og Íslendingar misstu af stór- kostlegu tækifæri, af því að þeir voru undirgefnir erlendum kon- ungi. Vegna nýrrar tækni, tví- og þrímastraðra skipa, sem siglt gátu beitivind, varð útgerð á Íslands- miðum skyndilega arðbær skömmu eftir endalok þjóðveld- isins. Mikil eftirspurn var eftir fiski úti í Norðurálfunni. Hefði þjóðin verið sjálfstæð, þá hefðu hugsanlega risið hér fiski- þorp og jafnvel bæir. Íslendingar hefðu myndað félög með erlendum fiskimönnum og kaupmönnum, keypt skip erlendis og rekið út- gerðir og verslunarfélög. Þess í stað bannaði konungur alla versl- un við aðra en Björgvinjar- kaupmenn þegar árið 1413. Hann brast í fyrstu afl til að loka land- inu, en það tókst samt á dögum einokunarverslunarinnar 1602- 1787. Þá svalt þjóðin þrátt fyrir nógan fisk undan ströndum. Smáþjóðir eiga ekki að leita að skjóli, sem breytist í gildru, held- ur reyna að stuðla að verslunar- frelsi. Þá geta þær nýtt kosti hinnar alþjóðlegu verkaskiptingar, eins og Jón forseti benti oft á. Hann vissi betur en Gissur jarl, hvað okkur er fyrir bestu. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Glatað tækifæri 303 fm.verslunar- og þjónustuhúsnæði. Húsnæðið er að mestu opið verslunarrými með stórum verslunar- gluggum ásamt kaffiaðstöðu, snyrtingu og afstúkuðu lagerrými með vörudyrum. Mjög góð staðsetning og sýnileiki. VSK leggst við leigufjárhæð. Laust samkvæmt samkomulagi! Upplýsingar veitir Helgi Már 897-7086 hmk@jofur.is Húsnæðið skiptist í opið verslunar-/vinnurými, um 70 fm. lagerrými með vörudyrum, kaffistofu og snyrtingu. Flísar á gólfum. Næg bílastæði. VSK leggst við leigufjárhæð. Laust strax! Upplýsingar veitir Helgi Már 897-7086 hmk@jofur.is 534 1020 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is Bergsveinn Sigurður J. Helgi Már Magnús Ólafur Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is Faxafen 12 – 108 Reykjavík Stærð: 303 fm. Leiguverð: Tilboð TIL LEIGU Bíldshöfði 14 – 110 Reykjavík Stærð: 210 fm. Leiguverð: Tilboð TIL LEIGU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.