Morgunblaðið - 07.01.2017, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.01.2017, Blaðsíða 48
48 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 Ingólfur Árnason, eig-andi fyrirtækisinsMosraf ehf., á 75 ára afmæli í dag. Hann stofn- aði Mosraf 1969 og hefur það verið rekið bæði sem rafverktakafyrirtæki og innflutningsfyrirtæki þar til um síðustu áramót þeg- ar Ingólfur hætti sem raf- verktaki. „Ég var að vinna alveg fram að því en dóttursonur minn tók við rafmagns- þættinum og stofnaði sitt eigið fyrirtæki. Nú er ég að sýsla við innflutninginn eingöngu og flyt inn ýmiss konar hreinsi- og steypu- efni.“ Ingólfur fæddist í Reykjavík en fluttist í Mos- fellsbæinn 7 ára gamall og hefur búið þar síðan. „Reykjalundur var þá að byggjast upp og faðir minn vann þar. Upp úr 1960 fer að byggjast eitt og eitt ein- býlishús og árið 1973 þeg- ar Vestmannaeyjagosið hófst þá kom mikill skriður á íbúafjöldann og hann tvöfaldaðist á skömmum tíma. Ég sat þá í byggingarnefnd og skipulögðum við byggð fyrir Vestmannaeyinga. Holta- og Tangahverfið urðu til með hjálp Viðlagasjóðs og þá breyttist bæjarfélagið úr sveitasamfélagi í bæjarfélag.“ Ingólfur sat í byggingarnefnd 1970-1978 en hann stofnaði einnig handknattleiksdeild Aftureldingar og var formaður hennar. Hann var enn fremur formaður Landssambands íslenskra rafverktaka í tíu ár, sat í stjórn í Rafiðnaðarskólans og var í Lionsklúbbi Mosfellsbæjar svo eitthvað fleira sé nefnt. Eiginkona Ingólfs er Kristjana E. Friðþjófsdóttir og dætur þeirra eru Ingibjörg Bryndís og Hlín. Þau eiga fjögur barnabörn og þrjú barnabarnabörn. „Ég fylgist enn með handboltanum og hinu daglega lífi almennt og er í sundhópi. Heilsan er góð og lífið er yndislegt. Kvöldinu ver ég með fjölskyldunni.“ Mosfellingurinn Ingólfur Árnason, stofnandi Mosraf. Hefur séð bæinn sinn vaxa og dafna Ingólfur Árnason er 75 ára í dag K ristján fæddist í Reykjavík 7.1. 1957 en ólst upp í Kópavogi: „Ég ólst upp í Vest- urbæ Kópavogs, við Austurgerði. Ég átti yndislega æsku í dásamlegu umhverfi víðáttu, frelsis og fegurðar. Maður lék sér mikið í stórgrýttu Kirkjuholtinu sem var heimur út af fyrir sig, reyndar mögnuð og fjölmenn íbúabyggð álfa og huldufólks – og gott ef ekki voru þar einnig dvergar á vappi. Þetta sáu allir sem það vildu sjá og jafnvel hinir líka sem ekki vildu sjá það. Í Kirkjuholtinu er staður sem við krakkarnir nefndum Klettaborg. Okkur fannst hún há og fögur eins og Álfaborgin en þegar ég heimsótti hana síðar er hún í raun á stærð við ræðupúlt. Ég og vinkona mín sáum þar eitt sinn álfa og greindum full- orðnum trúnaðarvini okkar frá því, Kristján Hreinsson skáld – 60 ára Feðgar Kristján með Pétri og Baldri. Í bakgrunni er húsið í Skerjafirðinum sem Kristján gerði upp og bjó í lengi. Skerjafjarðarskáldið ólst upp í álfabyggð Bliki Kristján þótti liðtækur í knattspyrnu. Hér er hann í 5. fl. Breiðabliks. Reykjavík Harpa Snæ- land fæddist 29. júlí 2016 kl. 21.20. Hún vó 16 merkur og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Þórdís Steinsdóttir og Halldór Snæland. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Osta fondue-veisla Komdu þínum á óvart 4.990,-ámann bóka þarffyrirfram Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.