Morgunblaðið - 07.01.2017, Blaðsíða 36
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017
Skortur á D-
vítamíni (D3) er lýð-
heilsuvandamál og er
talinn hafa heilsufars-
leg áhrif á einn millj-
arð jarðarbúa. Orsök-
ina má m.a. rekja til
lífsstíls fólks. Flestir
mæta D-vítamínþörf
með sólarljósi (UVB)
en meðal takmarkandi
áhrifavalda eru m.a. ;
breiddargráða, árstíð, tími dags,
skýjahula, mengun, húðgerð, aldur
og sólarvörn. Á þeim tíma sem
tekur húðina að verða bleik (10-30
mín.) getur líkaminn framleitt 10
til 25.000 einingar. Það er góð
þumalfingursregla að ef skuggi
þinn er lengri en þú er UVB-geisli
sólarinnar ekki lengur til staðar.
Til samanburðar er ráðlagður dag-
skammtur D3 (RDS) á bilinu 400-
800 einingar. Mikilvægt er að fólk
sýni ábyrga sólariðkun. D-vítamín
finnst helst í feitu sjávarfangi,
fiskiolíu, eggjum og lifur auk
D-vítamínbættra vara. Ef við fyll-
um matarkörfu af hollum og
næringarríkum matvörum eru eng-
ar líkur á að innihaldið uppfylli
þörf líkamans.
Ábyrgð þeirra
sem völdin hafa
Eldri kynslóðir búa að því að
hafa fengið þá þekkingu og venjur
sem þurfti til að skilja mikilvægi
lýsisinntöku. Börnum var gefið lýsi
í skólanum hér áður fyrr. For-
eldrar okkar eiga slíkar minningar,
sem bjuggu til þekkingu og venjur.
Það er engin tilviljun að markaðs-
herferð lýsis í dag undirstrikar að
lýsi sé leynivopn þjóðarinnar. Í
raun er það D-vítamínið í lýsi sem
er leynivopn þjóðarinnar. Í dag er
ábyrgð foreldra að tryggja börnum
sínum D-vítamíngjafa, foreldra
sem búa ekki að þeirri þekkingu
sem fyrri kynslóðir höfðu. Það er
sérstakt áhyggjuefni að leik- og
grunnskólar landsins búa við það
kröpp kjör að það þyki sparnaður
að draga saman innkaup á lýsi eða
öðrum D-vítamíngjafa.
D-vítamínbúskapur
Rannsókn á D-vítamínbúskap Ís-
lendinga fór síðast fram árið 2004,
niðurstöður voru að helmingur
þátttakenda mældist með
D-vítamínforða undir æskilegu
kjörgildi. Rannsóknir manneld-
isráðs hafa sýnt að fiskneysla hef-
ur dregist saman um þriðjung og
að inntöku lýsis sem D-vítam-
íngjafa er verulega ábótavant í
aldurshópum 18-80 ára. Þrátt fyrir
að ætla mætti að vandinn væri
meiri á norðlægum
slóðum hefur breyttur
lífsstíll fólks um allan
heim tengdur inni-
veru, aukinni mengun
og notkun sólarvarnar
aukið D-vítamínskort
um allan heim. Í sam-
tölum við fólk heyri
ég að fólk er ringlað
yfir inntökumagni,
formi og misvísandi
skilaboðum frá ólíkum
aðilum. Vísindamenn
og læknasamfélagið eru sammála
um að kjörgildi í blóði eigi að vera
á bilinu 50-150 nmól/L. Embætti
landlæknis gefur út leiðbeiningar
um ráðlagða dagskammta (RDS)
D-vítamíns á bilinu 400-800 ein-
ingar, sem eiga við um þorra heil-
brigðs fólks. Ég hef verið hugsi yf-
ir ýmsum vanda sem Íslendingar
glíma við í heilbrigðismálum og
velti stundum fyrir mér hvort fólk
sé að glíma við ógreindan D-
vítamínskort og einkenni leiði ekki
strax til réttrar greiningar. Stund-
um sé gengið að því sem vísu að
fólk hafi þá þekkingu sem til þarf
til að byggja upp D-vítamínbúskap
sinn. Ef börn eða fullorðnir mæl-
ast í D-vítamínskorti eiga ráðlagðir
dagskammtar einfaldlega ekki við.
Þess vegna er ég hugsi yfir því að
heyra af fólki hefur verið neitað
um blóðrannsókn á D-vítamín-
búskap sínum og vísað frá með
ráðleggingu um að taka D-vítamín
án þess að gera því kleift að fá
vitneskju um stöðu á kjörgildi og
geti því gripið til viðeigandi ráð-
stafana til að byggja hann upp og
viðhalda (m.v. efri mörk RDS) í
skamman tíma á meðan kjörgildi
er náð. Þá er hætt við að fólk taki
meira mark á fræðslu frá mark-
aðsöflum sem hafa hagsmuni af
sölu fæðubótarefna. Ég gef fjöl-
skyldu minni D-vítamíndropa
GMP-merkta (gæðastimpill fram-
leiðslu) auk fiskiolíu; þorskalýsi,
krill-olíu eða frá Dropa í Bolungar-
vík.
Nýjar uppgötvanir
um hlutverk
Beinvirknisjúkdómar eru aðeins
toppurinn á ísjakanum yfir afleið-
ingar D-vítamínskorts. Á síðustu
árum hafa nýjar uppgötvanir leitt í
ljós viðtaka með fjölbreytt hlut-
verk í vefjum og frumum líkamans
sem eru undirstaða sterks ónæm-
iskerfis, beinheilsu og góðrar
heilsu almennt. Þessar uppgötv-
anir eru óplægður akur vísinda-
manna og munu í framtíðinni
hjálpa okkur við að skilja enn bet-
ur mikilvægi D-vítamíns í lík-
amanum.
Stiklað á stóru á niðurstöðum
eigin rannsóknar um D-
vítamín, þekkingu og hegðun
Þátttakendur í rannsókninni,
tengdri MSc-lokaverkefni í mark-
aðsfræðum, voru 451 talsins, kenn-
arar í grunn- og menntaskólum.
Meginniðurstaða var að vitundar-
vakningar væri þörf á mikilvægi
inntöku D-vítamíngjafa auk
fræðslu á tengdum áhrifavöldum.
Flestir búa yfir þeirri þekkingu að
D-vítamínframleiðsla byggir á
UVB-sólargeislum, helmingur þátt-
takenda vissi ekki hversu langan
tíma þarf til að ná dagskammti D-
vítamíns gegnum sólargeisla og
misskilningur var um á hvaða ár-
stíð eða tíma dagsins hér á landi
það væri mögulegt. Um 40% töldu
að D-vítamín væri í hákarlalýsi,
sem er rangt. Hluti þátttakenda
taldi D-vítamín vera til staðar í
grænmeti og ávöxtum, sem er líka
rangt, að sveppum undanskildum.
Flestir gerðu sér grein fyrir því að
feitt fiskmeti og þorskalýsi væru
góðir D-vítamíngjafar en þátttak-
endur borða helst ýsu eða þorsk,
sem eru magrar fisktegundir. Alls
35% þátttakenda taka ekki inn D-
vítamín fæðubótarefni í neinu
formi, 38% taka þorskalýsi inn
daglega. Þekking þátttakenda kom
að mestu leyti frá fjölmiðlum, eða
45%, aðeins 12,8% höfðu þekkingu
frá heimilislækni, 5,8% frá sér-
fræðilæknum og 16,2% frá kenn-
urum. Rannsóknin er sú fyrsta
sinnar tegundar á Íslandi en sam-
bærilegar rannsóknir frá Bret-
landi, Ástralíu og Kína sýna fram
á að fræðsla þarf að einkennast
meira af upplýsingum um áhrifa-
valda; húðlit, magn sólskins, tíma
dags, árstíð, breiddargráðu og
næringu. Niðurstöður eiga það
sannmerkt að fjölmiðlar spila mik-
ilvægt hlutverk í lýðheilsu og
mögulegu hlutverki í að breyta
hegðun fólks. Þannig gætu heil-
brigðisyfirvöld nýtt sér þann vett-
vang betur í því skyni að koma af
stað vitundarvakningu meðal ís-
lensku þjóðarinnar um mikilvægi
inntöku D-vítamíngjafa á breiddar-
gráðu 64°N.
Innleiða D-vítamíngjafa
í skólum
Ég tel að við þyrftum að inn-
leiða aftur lýsisgjöf eða D-
vítamíngjafa í leik- og grunn-
skólum. Útbúa myndrænt fræðslu-
efni á mannamáli sem skýrir
áhrifavalda D-vítamíns og hvernig
lega Íslands gerir okkur einstök.
Vitundarvakning þyrfti að vera
sameignlegt átak í mennta- og
heilbrigðiskerfinu með það að
markmiði að útrýma D-vítam-
ínskorti og þekkingarleysi þar um.
Stjórnvöld verða meðvitað að
leggja meiri áherslu á forvarnir,
veita auknu fjármagni til Embætt-
is landlæknis og heilsugæslunnar
með forvarnir í huga. Stjórnvöld
þyrftu að taka meðvitaða ákvörðun
um að bera ábyrgð á þeim að-
stæðum sem lega landsins setur
okkur, með rannsóknum og eftirliti
á D-vítamínbúskap þjóðarinnar,
innleiða D-vítamíngjafa í mennta-
kerfið og efla fræðslu enn frekar.
Michael Holick, einn helsti sér-
fræðingur á þessu sviði, telur að ef
D-vítamínbúskapur fólks yrði
bættur á heimsvísu myndi það
hafa dramatísk áhrif á lýðheilsu,
og draga úr heilbrigðiskostnaði.
Vitundarvakning um
D-vítamín á norðurslóðum
Eftir Önnu Þóru
Ísfold
» Fyrir íbúa landa á
norðlægum slóðum,
eins og Íslendinga, hef-
ur lega landsins, lífsstíll
og veðurfar mikið að
gera með D-víta-
mínbúskap okkar.
Anna Þóra Ísfold
Höfundur er áhugamanneskja um
lýðheilsu og sérfróð um D-vítamín.
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
THAILAND HEILLAR !
Lúxus 200 fm hús í flottu hverfi nálægt Pattaya ströndinni til sölu.
Í húsinu eru fjögur stór svefnherbergi með nýjum hjónarúmum,
fataskápum, flatskjá sjónvörpum, loftkælingu o.fl.
Fjögur fín baðherbergi með innréttingum og öllum tækjum.
Mjög stórt og fallegt eldhús og borðstofa með öllum tækjum og tólum.
Þvottahús og búr með innréttingum og öllum tækjum.
Stór og mikil stofa með stórum flatskjá, hljómflutningskerfi,
leðursófasetti og öðrum lúxus, hlaðin listaverkum.
Góður bíll, sem nýr getur fylgt með.
Stutt í yfir 20 frábæra golfvelli. 7 mín. akstur í flotta báta- og
snekkjuhöfn. 5 mín. akstur í eina glæsilegustu íþróttahöll Asíu.
Glæsilegir verslunarkjarnar. Gott og gestrisið fólk.
Sundlaugar í næsta nágrenni. Frábært veðurfar allt árið.
Hagstætt verðlag og fullkomin læknaþjónusta á hátæknisjúkrahúsum,
engir biðlistar.
Skipti möguleg á góðri fasteign á höfuðborgarsvæðinu, jörð eða
sumarhúsi.
Allar nánari upplýsingar ásamt myndum fyrir hendi. Áhugasamir
sendi helstu uppl. ásamt nafni og símanúmeri á netfangið
josakco@gmail.com eða í síma 868 3144.
Mikilvægar kosn-
ingar munu fara fram í
lífi mínu í dag sem og
reyndar alla aðra daga.
Þær snúast fyrst og
fremst um það hvort
ég ákveði að líta á alla
þá sem ekki eru mér
sammála í stóru eða
smáu sem tóma hálf-
vita, óbetranleg fífl og
ólíðandi vitleysinga.
Eða velji að leitast við að hlusta á
náungann, sýna honum skilning, um-
burðarlyndi og virðingu, tillitssemi
og samstöðu. Vera jákvæður og upp-
örvandi með bjartsýni, bros og jafn-
vel bara faðmlag að leiðarljósi. Velja
einfaldlega eins flókið og það kann nú
að vera að sjá fólk með hjartanu.
Ég ætla að trúa ykkur fyrir því hér
með að ég hef ásett mér af veikum
mætti að reyna að velja seinni kost-
inn.
Og svo er það auðvitað hitt valið
sem ég og við öll stöndum vænt-
anlega líka daglega frammi fyrir. Það
að velja dauðann eða lífið. Í öllum
kringumstæðum. Það er nefnilega
líka val, þótt heilsan svíki og líkaminn
hrörni og sé í niðurníðslu. Allt sé
breytt og fátt eins og áður var.
Æfing í lífsleikni
Hver dagur og öll okkar æviganga
er ekkert annað en stöðug þjálfun í
lífsleikni. Þjálfun í þeirri list að vera
farsæl í samskiptum. Bera virðingu
fyrir fólki, setja sig í spor annarra og
dæma ekki.
Látum ágreining, misklíð og óvild
aldrei verða kærleikanum yfirsterk-
ari. Leitumst við að láta samskipti
okkar einkennast af auðmýkt og til-
litssemi. Því að lifa með
fyrirgefandi hugarfari.
Leitast við að lifa í stöð-
ugu þakklæti svo líf
okkar allt verði ein sam-
felld lofgjörð til lífsins.
Verum ekki feimin
við framtíðina
Blessaðir séu þeir
sem hljóðlátlega gefa
sér tíma til að hugsa
hlýlega til þeirra sem
kvíðnir eru og áhyggju-
fullir, upplifa sig yfirgefna og ein-
mana. Og þeirra sem sorgin þjakar.
Þeir sem jafnvel gefa sér tíma til að
hlusta og vera faðmur, öxl og skjól.
Og blessaðir séu þeir sem treysta
sér til og þora að biðja fyrir fólki og
með því. Í vanmætti en í von og í trú
með dýrmætri og ómetanlegri
hjartahlýju.
Vertu ekki feiminn við framtíðina.
Guð gefi okkur hugrekki til að stíga
inn í hana. Láttu muna um þig. Því
hamingjan þarf á þér að halda.
Guð gefi þér og þínum annars bara
góðan dag og gleðilegt ár. Mætti far-
sæld og blessun einkenna tilveru
þína og ríkja yfir verkum þínum. Og
kærleikur og friður yfir öllum þínum
samskiptum.
Guð blessi samskiptin.
Með kærleiks- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Í dag fara fram
mikilvægar
kosningar
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
» Látum ágreining,
misklíð og óvild
aldrei verða kærleik-
anum yfirsterkari.
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?