Morgunblaðið - 07.01.2017, Blaðsíða 52
Elín Margrét Böðvarsdóttir
elinm@mbl.is
„Þetta er fólk sem hefur tekið ástfóstri
hér við landið,“ segir fiðluleikarinn
Guðný Guðmundsdóttir. Strengjadúóið
Miller Porfiris heldur tónleika í Seltjarn-
arneskirkju ásamt Guðnýju á morgun,
sunnudag, kl. 16. Á efnisskrá eru nokkur
létt eftir fjóra höfunda.
Anton Miller fiðluleikari og Rita Porf-
iris víóluleikari eru hjón frá Bandaríkj-
unum sem ferðast hafa víða um heim og
leika þau bæði sem dúó og í stærri hóp-
um. Miller og Porfiris eru miklir Íslands-
vinir, en þau komu til að mynda fram í
Hörpu á síðasta ári, þá líka með Guðnýju.
Hún hefur þekkt hjónin í minnst 15 ár en
öll eru þau einnig tónlistarkennarar og
hafa unnið talsvert saman og haldið sam-
an tónleika, bæði í Bandaríkjunum og hér
heima. „Þau eru líka miklir Íslandsvinir
og þau ferðast um landið og koma hingað
oft jafnvel þótt engir tónleikar séu,“ bæt-
ir Guðný við.
Léttir og stuttir tónleikar
Guðný segir efnið sem er á dagskrá
tónleikanna vera létt og skemmtilegt en
þótt margir þekki ef til vill ekki verkin
séu þau samt sem áður mjög lagræn og
áheyrileg. „Það er til dæmis frumflutn-
ingur þarna á verki eftir brasilíska tón-
skáldið Andersen Viana og síðan er flutt
verk eftir Villa-Lobos. Og það vill svo
skemmtilega til að faðir þessa Viana var
aðstoðarmaður Villa-Lobos þannig að
þetta tengist.“
Þá verða einnig flutt verk eftir Ung-
verjann Zoltán Kodály sem byggja mikið
á þjóðlögum.
Loks verða flutt verk eftir austurríska
tónskáldið Robert Fuchs, en hann kenndi
mörgum af þekktustu tónskáldum 20. ald-
arinnar, m.a. Sibelius og Mahler, og er
hann jafnan betur þekktur sem kennari
en fyrir verk sín sem tónskáld. „Tónlistin
hans hefur eiginlega bara legið í dvala en
svo kemur í ljós að hún er óskaplega la-
græn og skemmtileg og ekkert lík 20.
aldar tónlist. Hann er svona alveg aftur í
gamla tímanum,“ útskýrir Guðný, sem
vonast til að sjá sem flesta á tónleikunum
á morgun.
Tónleikarnir verða í styttra lagi, um
ein klukkustund. Frítt er fyrir eldri borg-
ara. Almennt miðaverð er 2.000 krónur
en aðeins 1.000 krónur fyrir námsmenn.
Slá á létta strengi
Strengjadúóið Miller Porfiris
heldur tónleika ásamt Guðnýju
Guðmundsdóttur í Seltjarnarneskirkju
Strengir Rita Porfiris, Anton Miller og Guðný Guðmundsdóttir halda tónleika á morgun.
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
T E X T I 15.9 - 16.4.2017
Valin textaverk úr safni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur
VALTÝR PÉTURSSON 24.9 - 26.3.2017
JOAN JONAS Reanimation Detail 2010/2012 26.10 - 26.02 2017
VASULKA-STOFA Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Opið alla daga kl. 11-17. Lokað á mánudögum
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9. - 28.05. 2017
Lokað í desember og janúar. Opnar aftur laugardaginn 4. febrúar.
Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 7.5.2017
Lokað í desember og janúar. Opnar aftur laugardaginn 4. febrúar.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Portrett Kaldals í Myndasal
Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal
Kaldal í tíma og rúmi á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
Sunnudaginn 8. janúar: Tveir fyrir einn af aðgangseyri
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi,
opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
» Silence, nýjasta kvikmyndleikstjórans Martins Scor-
sese, var frumsýnd í Los Ang-
eles í fyrradag. Í myndinni er
rakin saga tveggja portú-
galskra presta sem halda til
Japans árið 1639 og leita uppi
fyrrverandi lærimeistara
sinn, jesúítaprest sem sagður
er hafa gengið af trúnni.
Nýjasta kvikmynd Martins Scorsese frumsýnd í Los Angeles
Virtur Martin Scorsese, einn virtasti kvikmyndaleikstjóri heims, var flottur í tauinu á frumsýningunni.
Kátur Leikarinn Andrew Garfield brosti breitt til ljósmyndara. Hann fer með eitt af aðalhlutverkum Silence.
Á frumsýningu Japanski leikarinn Yosuke Kubozuka.
AFP