Morgunblaðið - 07.01.2017, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.01.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 7 -0 0 1 3 Arnhild Gjönnes, lögmaður hjá NHO og sérfræðingur á sviði opinberra innkaupa Public procurement and theway forward Dagmar Sigurðardóttir, yfirlögfræðingur Ríkiskaupa Kröfur opinberra aðila til fyrirtækja í útboðum – ýmis álitaefni Ragnheiður H. Magnúsdóttir, stjórnarformaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja Mun næsta tæknibylting hafa áhrif á opinber innkaup? Theódóra Þorsteinsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar og formaður bæjarráðs Kópavogs Opinber innkaup eiga að vera stjórntæki – til að ná fram hagkvæmari rekstri, trausti og bættri hegðun Fundarstjóri er Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins Opinber innkaup - getum við gert betur? Opinn fundur Samtaka iðnaðarins fimmtudaginn 12. janúar kl. 8.30–10.30 á Grand Hótel Reykjavík Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8. Skráning á www.si.is Dagskrá Kristján Egilsson, fyrrverandi flugstjóri, lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi síðastliðinn fimmtudag eftir erfið veikindi, 74 ára að aldri. Kristján fæddist í Reykjavík 31. desem- ber 1942. Foreldrar hans voru Anna Mar- grét Þuríður Ólafs- dóttir Briem húsmóðir og Egill Kristjánsson stórkaupmaður. Kristján lauk verslunarprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 1961. Hann lauk at- vinnuflugmannsprófi frá flugskól- anum Þyt árið 1964. Hann réðst til Flugfélags Íslands í ársbyrjun 1965 og var flugmaður og flugstjóri þar og síðar hjá Flugleiðum og Ice- landair til starfsloka. Kristján tók mikinn þátt í fé- lagsmálum fyrir Fé- lag íslenskra atvinnu- flugmanna um áratuga skeið. Hann tók fyrst sæti í stjórn félagsins árið 1969 og sat í stjórn í 13 ár, þar af sem formaður félagsins í sjö ár. Einnig sat hann um langa hríð í stjórn lífeyrissjóðs flug- manna. Þá tók hann einnig þátt í starfi al- þjóðasamtaka flug- manna. Kristján sat í nokkrum ráðherra- skipuðum nefndum, m.a. um fram- kvæmdir í flugmálum og um að- gerðir gegn flugránum. Eftirlifandi eiginkona Kristjáns er Margrét Ósk Sigursteinsdóttir kennari. Dætur þeirra eru Anna Sigríður viðskiptafræðingur og Ásta lögfræðingur. Barnabörnin eru fimm. Andlát Kristján Egilsson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Um 70% þjóðar- innar horfðu á Áramótaskaup RÚV, sam- kvæmt rafræn- um áhorfsmæl- ingum Capacent sem fyrir lágu í gær. Samkvæmt sömu upplýs- ingum var hlut- deildin 100%, sem þýðir að allir sem voru með kveikt á sjónvarpinu á gamlárs- kvöld voru að horfa á skaupið. „Áhorfið mun svo aukast enn frek- ar með endursýningum,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson, dag- skrárstjóri RÚV, í samtali við Morgunblaðið. Áramótaskaupið verður endursýnt laugardaginn 14. janúar – auk þess sem það má nálgast á Sarpinum á vef RÚV og á Frelsinu, endursýningaþjónustu símafyrirtækjanna. Áhorf á Krakkaskaupið var um 25% en þar gafst krökkum í fyrsta sinn tækifæri til að senda inn sitt eigið grín. Þá var mikið horft á annálana á gamlárskvöld. Frétta- annállinn var með 41% áhorf og Íþróttaannáll með 26% og hlut- deildin 90% þegar þeir voru í loft- inu. „Að 70% þjóðar sitji á sama tíma og horfi á sama þáttinn í sjónvarpi á sér varla hliðstæður. Við hér í Efstaleiti erum því auð- vitað hæstánægð. Þegar okkur tekst með þessu móti, með góðu íslensku efni, að hitta á réttu taugar þjóðarsálarinnar gerast oft ótrúlegir hlutir. Það sýnir líka hvar helsti styrkur línulegrar dag- skrár liggur og er hvatning um að halda áfram á sömu braut, til dæmis með beinum útsendingum frá ýmsum menningarviðburðum,“ segir Skarphéðinn. Getur hann í því sambandi beinnar útsendingar í kvöld kl. 19.45 frá lokasýningu Borgarleikhússins á Njálu. Fleira í svipuðum dúr sé fram undan. Áramótaskaupið slær öll met með um 70% áhorfi  Krakkaskaup og annálar vinsælir  Taugar þjóðarsálar Skarphéðinn Guðmundsson Skaupið Þjóðlífið í spéspegli. „Þetta er þróun sem ekki er bund- in við Ísland. Tannsmiðir á öllum löndum á Norðurlöndunum hafa fundið fyrir þessu,“ segir Dagný Kolbeinsdóttir, formaður Tann- smiðafélags Íslands, þegar hún er spurð hvort rétt sé að íslenskir tannlæknar séu í auknum mæli farnir að panta tannkrónur beint frá Kína í stað þess að skipta við íslenska tannsmiði. Dagný segir upplýsingar ekki liggja fyrir um umfang málsins, en þessar pantanir virðist þó vera meiri en hún hafi í fyrstu talið. Þeir tannsmiðir sem lengi hafi verið í stéttinni segist finna fyrir nokkrum samdrætti í pöntunum vegna þessa. Menn hefðu áhyggj- ur af því að tannsmiðastéttin hér á landi gæti jafnvel dáið út. Fullkomlega leyfilegt Dagný sagði mikilvægt að hafa í huga að það væri fullkomlega lög- legt að kaupa tannkrónur í munn fólks í Kína. Litið væri á það sem hver önnur viðskipti. Eðlilegt væri að sjúklingar veltu fyrir sér kostn- aði í þessu sambandi. Hún sagðist ekki vita til þess að neitt væri at- hugavert við þessar kínversku krónur, en félaginu væri hins veg- ar ekki kunnugt um hvernig gæðaeftirliti væri háttað í Kína. Dagný segir að tannsmíðanám hér á landi sé núna þriggja ára háskólanám sem ljúki með BS- gráðu. „Kosturinn við að skipta við ís- lenska tannsmiði er sá að hægt er að leita til þeirra aftur ef eitthvað kemur upp á sem þarf að laga,“ segir Dagný. „Ég hef persónulega ekkert á móti Kínakrónum, en mér finnst mikilvægt að fólk sem leitar til tannlækna fái að vita hvað það er að fá í munninn og hverjir valkostirnir eru. Sumir halda að tannlæknarnir geri allt, smíði jafnvel tennur, þannig að oft er ekki spurt um hvaðan þetta sé. Það er líka mikilvægt að halda uppi gæðastandard hér innanlands með öflugri íslenskri tann- smiðastétt.“ Dagný segir að tannsmiðir hafi ekki rætt þessi mál sérstaklega við tannlækna hér á landi, en nokkur umræða sé um þau innan stéttarinnar og samtaka norrænna tannsmiða. gudmundur@mbl.is Ljósmynd/Vefur Háskóla Íslands Tennur Rétt til að starfa sem tannsmiður hér á landi fá menn eftir þriggja ára háskólanám sem lýkur með BS-prófi. Hægt er að læra tannsmíðar við HÍ. Tannkrónur frá Kína algengari  Tannsmiðir hugsi yfir þróuninni ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.