Morgunblaðið - 07.01.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.01.2017, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 Stórútsalan hafin Skoðið laxdal.is Laugavegi 63 • S: 551 4422 Vetraryfirhafnir GERRY WEBER - BETTY BARCLAY Gæðafatnaður 30-60% afsláttur Stúlkurnar tvær sem var nauðgað á hrottafenginn hátt af sama mannin- um í sumar hafa báðar glímt við skelfilegar afleiðingar ofbeldisins. Foreldrar nauðgarans reyndu að fá hann lagðan inn á geðdeild eftir fyrri árásina en án árangurs. Eins og fram hefur komið í frétt- um var maðurinn, sem var á nítjánda aldursári þegar hann nauðgaði stúlk- unum tveimur í sumar, dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi í Héraðs- dómi Reykjaness 30. desember sl. Stúlkurnar voru báðar fimmtán ára og liðu aðeins sex dagar á milli of- beldisverkanna. Foreldrar ofbeldismannsins báru fyrir dómi að sonur þeirra hefði ósk- að eftir því að þau færu með hann á bráðamóttöku geðdeildar daginn eft- ir fyrra brotið og þau verið fullviss um að hann yrði lagður þar inn enda hefði hann verið gjörsamlega niður- brotinn og tryði því ekki að hann hefði framið þann skelfilegasta glæp sem hægt væri að hugsa sér, eins og hann orðaði það við foreldra sína þegar hann var látinn laus úr haldi 26. júlí. Á bráðageðdeildinni var fyrst rætt við unga manninn og síðan foreldr- ana. Þeim var öllum tjáð að mögu- lega fengi hann inni á göngudeild innan einnar viku eða tveggja.„Þau hefðu hins vegar lítið getað gert ann- að en fara heim aftur með ákærða,“ er haft eftir móður mannsins í dómi héraðsdóms eftir að ljóst var að hann yrði ekki lagður þar inn. Fimm dög- um síðan nauðgaði hann annarri stúlku á hrottalegan hátt. Í meðferð í Barnahúsi Stúlkurnar hafa báðar verið í með- ferð í Barnahúsi en móðir stúlkunn- ar sem varð fyrir seinni árásinni seg- ir meðferðina ekki hafa hjálpað stúlkunni nóg. Hin hefur aðeins mætt í tvo af níu viðtalstímum sem hún fékk hjá sálfræðingi þar. Dagana á eftir nauðgunina segir móðir fórnarlambsins, sem varð fyr- ir ofbeldi af hálfu mannsins 31. júlí, líðan hennar hafa verið hræðilega. Stúlkan, sem venjulega væri alltaf úti, hefði bara verið heima og líðan hennar hefði enn versnað eftir að vinir hennar fréttu af því sem gerst hafði, en stúlkan hefði upplifað sig niðurlægða. Taldi móðirin að stúlkan hefði í kjölfarið lokað á vini sína og fundið sér annan og síðri félagsskap. Kvíði, þunglyndi og streita Í dómnum er vísað til skýrslu sál- fræðings sem segir stúlkuna sýna mjög alvarleg einkenni kvíða og al- varleg einkenni þunglyndis og streitu. Hún hafi sagt sálfræðingn- um að hún hafi alltaf verið þung og fundið fyrir kvíða sem hún tengir við skólagöngu sína og skólann sjálfan, sem hún segir að henni hafi aldrei liðið vel í. Hún segist þó aldrei hafa fundið eins sterkt fyrir þessum ein- kennum eins og eftir kynferðis- ofbeldið en á erfitt með að skilgreina það nánar. Að sögn sálfræðings sýnir stúlkan merki um forðunarhegðun, en hún er algeng meðal þolenda í kjölfar áfalls og er þá nýtt sem bjargráð til að forðast það að finna fyrir tilfinning- um sínum. Forðun er einnig einkenni áfallastreitu og er sá þáttur sem einna helst viðheldur einkennum áfallastreituröskunar. Stúlkan lýsti fyrir sálfræðingnum skelfilegasta augnablikinu sem hún upplifði á meðan á nauðguninni stóð, þegar þrengt var að hálsi hennar svo hún gat ekki andað og hugsaði þá um það að hún myndi deyja.  5½ árs dómur  Fékk ekki inni á bráðamóttöku geðdeildar Glíma við afleið- ingar nauðgunar Landsmenn komu saman víða um bæinn og landið í gærkvöldi til að skemmta sér og kveðja jólin á þrettánda og síðasta degi jóla. Víða er siður að halda þrett- ándagleði með brennu, dansi og söng. Jólasveinar koma gjarnan við á leið til heimkynna sinna og eru oft í fylgd með álfum og tröllum undir forystu álfakóngs og drottningar sem klædd eru á viðeigandi hátt. Siðirnir eru aðeins mismunandi á milli staða. Sums staðar er farið í skrúðgöngur að brennu en á öðr- um stöðum er haldið upp á tíma- mótin án brennu. Í Reykjavík voru þrjár brennur. Sú fjölmennasta er við Ægisíðu. Hefð er fyrir fjölmennum þrett- ándaskemmtunum og brennum í Hafnarfirði, Vestmannaeyjum, á Selfossi og Akureyri. Skotið er upp flugeldum og blys- um veifað. Gestir syngja sig hása. Brennur, dans og söngur á þrettándagleði víða um land Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Kjötkrókur er fastagestur á þrettándagleði Þórs og býður jafnan upp á hangikjötsbita. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Húsavík Litríkir flugeldar kölluðust á við ljósin á skipum í höfninni þegar jólin voru kvödd. Landsmenn kveðja jólin á þrettánda Morgunblaðið/Eggert Hafnarfjörður Þrettándagleði var á Ásvöllum í Hafnarfirði. Þótt margir mættu uppábúnir til að kveðja jólin skáru þessi ungmenni sig nokkuð úr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.