Morgunblaðið - 07.01.2017, Side 20

Morgunblaðið - 07.01.2017, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 Erla Rún Guðmundsdóttir erlarun@mbl.is Aldraðir notendur fæðubótarefna eru alla jafna heilbrigðari en aðrir í sama aldurshópi sem ekki neyta slíkra efna. Sé litið á tengsl milli notkunar á fjölvítamínum annars vegar og dauðsfalla hins vegar eru áhrifin þó hvorki verndandi né skaðleg. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Birtu Ólafsdóttur til meistaraprófs í næringarfræði um notkun fæðu- bótarefna hjá öldruðum á Ís- landi. Rannsókn Birtu byggir á upplýs- ingum um notkun fæðubótarefna úr Öldrunarrannsókn Hjartaverndar sem framkvæmd var á á árunum 2002-2006. „Þeir söfnuðu heitum á öllum fæðubótarefnum sem voru notuð af þátttakendum. [...] Svo notuðum við upplýsingar frá Matvælastofnun um innihald fæðubótaefnanna og gátum þannig fundið út hvaða vítamín og steinefni og annað þátttakendur voru að taka og magngreint þau.“ Rúmur helmingur tekur lýsi Samkvæmt niðurstöðum Birtu notuðu um 80% þátttakenda einhver fæðubótarefni. Þar af notuðu flestir lýsi, um 55%, og næstflestir fjöl- vítamín, eða um 31% þátttakenda. Þá notuðu flestir þátttakendur efnin í hófi, eða undir efri mörkum dag- legrar neyslu. Þó voru tvö efni sem einna helst voru notuð í of miklu magni. Um 22% þeirra sem fengu B6 úr fæðubótarefnum fóru yfir efri mörk og 11% þeirra sem fengu sink. „Við skoðuðum notendur í heild og bárum saman við þá sem ekki notuðu nein fæðubótarefni. Not- endur voru með lægra BMI, færri þeirra reyktu, þeir hreyfðu sig meira og færri voru með sykursýki eða háþrýsting. Þannig að þeir voru heilbrigðari á marga vegu,“ segir Birta. Engin tengsl við dauðsföll Birta skoðaði einnig tengsl fjölvítamína við dauðsföll, bæði al- menn og vegna hjarta- og æða- sjúkdóma. „[Rannsóknin] sýndi í rauninni að það virtist hvorki vera verndandi né hafa skaðleg áhrif. Það er niðurstaða út af fyrir sig og það er gott að vita líka að notkun í þessu magni virðist ekki vera skaðleg.“ Birta segir þó enn þörf á að skoða tengslin milli annarra fæðubót- arefna og dauðsfalla. „Það eru þessi náttúruefni sem við skoðuðum ekki. Það er gríð- arlegur fjöldi af efnum sem við þekkjum lítið. Það eru efni eins og sólhattur, hvítlaukur og musteristré og fleiri sem tiltölulega fáir nota miðað við heildina. Þau geta milli- verkað á ýmis lyf og haft áhrif a alls konar lífstarfsemi. Okkur langar að skoða þetta frekar.“ Fjölvítamín hafa hvorki skaðleg né verndandi áhrif  80% aldraðra nota fæðubótarefni  Almennt heilbrigðari Vítamín Samkvæmt rannsókn Birtu nota um 80% aldraðra einhver fæðu- bótarefni. Algengast er að fólk taki lýsi en fjölvítamín kemur þar á eftir. Birta Ólafsdóttir Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Tölvubrotum hefur fjölgað talsvert hér á landi eins og í nágrannalönd- unum, en ekki hefur verið brugðist við með heildstæðri nálgun eins og til dæmis í Noregi, Svíþjóð og Dan- mörku, þar sem settar hafa verið á fót sérhæfðar rannsóknardeildir til að fást við þessa tegund afbrota. Þetta kemur fram í grein eftir G. Jökul Gísla- son í nýjasta hefti Lögreglu- blaðsins. Í grein- inni er að finna umfjöllun um tölvubrot af því tagi sem hér hafa sést upp á síðkastið og ráð- leggingar um góðar venjur til að forðast þau. Átta tegundir tölvubrota Í grein G. Jökuls segir að tölvu- þrjótur hafi það náðugt í saman- burði við venjulegan innbrotsþjóf. Hann geti setið hvar sem er í heiminum og unnið við tölvuna sína á meðan hann sendi út hundruð þúsunda af sviksamlegum skeytum. Ef hann gæti sín á því að vinna ekki í heimalandinu séu litlar líkur á því að hann svari til saka því refsilöggjöf sé bundin landslögum og nái illa yfir fjölþjóðlega glæpi. Tölvuþrjóturinn geti líka notað skilvirkt net fjármálafyrirtækja til að flytja feng sinn á milli landa. Í greininni eru skilgreindar átta tegundir af tölvubrotum. Hin al- kunnu Nígeríubréf séu aðeins ein tegund þeirra og brotin í heild mun flóknari. Brotin eru þessi: 1) Tölvupóstssvindl sem fram fer með þeim hætti að tölvuþrjóturinn kynnir sér viðkomandi fyrirtæki mjög vel og sendir síðan póst á gjaldkera með greiðslufyrirmælum eins og hann sé sendur í nafni for- stjóra eða stjórnarformanns. Í fyrravor hafi komist upp um um- fangsmikið svindl af þessu tagi gagnvart stórum hópi íslenskra fyrirtækja. 2) Reikningasvindl er sérstakur undirflokkur þar sem sendir eru inn tilhæfulausir reikningar í þeirri von að þeir verði greiddir. Heimabankasvindl 3) Netveiðar felast í því að brotaþoli fær póst um að hann eigi að fara strax í heimabanka sinn og leiðrétta eitthvað. Er sett upp fölsk bankasíða til að ná skráningar- upplýsingum viðkomandi. 4) Svokallað „traust svindl“ er enn einn flokkurinn og falla Nígeríubréfin í hann. Þessi brot ganga út á það að sannfæra viðtak- anda um að hann eigi von á veru- legum ávinningi, svo sem arfi eða happdrættisvinningi. 5) Með fölskum vinabeiðnum á samfélagsmiðlum er stofnað til tengsla til að fá vininn til að gera sér greiða vegna slyss eða óhapps. 6) Fjárkúgun er enn ein mynd tölvubrota og felst í því að narra einstakling til að senda af sér nektarmynd og krefjast síðan gjalds af honum til að koma í veg fyrir dreifingu hennar. Ómótstæðileg tilboð 7) Svo er flokkur sem er í reynd löglegur en samt svindl. Hann fel- ur í sér ómótstæðileg tilboð. Dæmi um það er tilboð sem nú er í gangi þar sem boðin eru sérkjör í verð- bréfamiðlun fyrir lokaðan hóp. Verið er að hafa fé af trúgjörnu fólki. 8) Loks er í greininni í Lög- reglublaðinu rætt um tölvuvírusa og gíslaforrit. Tölvuþrjótarnir breyta þá öllum skrám í viðkom- andi tölvum og er ekki hægt að endurheimta þær nema greiða lausnargjald. Hægt að minnka áhættuna Ýmsar leiðir eru til þess að forð- ast tölvubrot eða minnka áhætt- una. Felast þau flest í varkárni gagnvart erindum sem ekki er von á. Alltaf skuli sannreyna reikninga. Ekki skuli smella á tengla sem menn vita ekki hvert leiða. Forðast skuli gylliboð. Aldrei skuli senda myndefni frá sér sem ekki þoli al- menna dreifingu. Þá sé rétt að vanda til vina á netinu og varast handahófskenndar vinabeiðnir. Loks er mikilvægt að eiga öruggt afrit af dýrmætustu tölvu- gögnum sínum. Bregðast þarf við fjölgun netbrota  Tölvuþrjótar orðið athafnasamari gagnvart Íslendingum að undanförnu  Mikilvægt að allir sýni varkárni á netinu  Ekki senda myndir sem þola ekki almenna dreifingu  Sannreyna þarf reikninga Getty Images/iStockphoto Svindl á netinu Víða á Norðurlöndum hafa verið settar á fót sérhæfðar rannsóknardeildir lögreglumanna til að fást við tölvubrot. Hér á landi skortir enn heildstæða nálgun þessa brotaflokks að því er segir í Lögreglublaðinu. G. Jökull Gíslason Fararstjóri: Guðrún Bergmann Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK DraumaheimurKaliforníu Fá ríki komast í hálfkvisti við Kaliforníu þegar kemur að fjölbreytileika, fjölmenningu og fegurð. Í ferðinni heimsækjum við San Fransisco, keyrum eftir hinni gullfallegu strandlengju til Los Angeles og virðum meðal annars fyrir okkur hið stórfenglega Grand Canyon í Arizona. Allir velkomnir á kynningarfund 10. janúar kl. 20:00 hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð. sp ör eh f. 8. - 23. apríl ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.