Morgunblaðið - 07.01.2017, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 07.01.2017, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 hitataekni.is – sjö viftur í einni Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB) Valin besta nýja vara ársins, Nordbygg 2016 Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými. Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og framleidd í Svíþjóð. BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is EFLA verkfræðistofa ákvað að ráð- ast í þróunarverkefni síðastliðinn vetur í þeim tilgangi að bæta ör- yggi gangandi og hjólandi vegfar- enda að vetrarlagi. Þegar mikil hálka er á höfuðborgarsvæðinu er ekki óalgengt að á annað hundrað manns leiti á bráðamóttöku LHS vegna hálkuslysa. Ná- kvæmar tölur um hálkuslys liggja ekki fyrir. Aðferðin sem prófuð var felst í því að stígar eru sópaðir niður í yfirborð stígsins og síðan er salt- pækli ýrt yfir stíginn til að bæta hálkuvörnina. Athugað var hvort aðferðin gæti verið valkostur við hreinsun stíga og hvaða árangur sú aðferð bæri. Þess má geta að þessi aðferð er í auknum mæli notuð annars staðar á Norðurlöndunum og þannig tekin fram yfir hefðbundinn snjóruðning og sandburð á stígum, samkvæmt upplýsingum Sighvats Arnarssonar, byggingatæknifræðings hjá EFLU, sem hafði umsjón með tilrauninni. Ókostur við núverandi aðferð er sá helst að þegar stígur er ruddur verður eftir snjór, sem síðan verður að svelli í leysingum. Sandur sem borinn er á í kjölfar snjóruðnings- ins verður að litlu gagni þegar ísing leggst yfir hann eða hann er sokk- inn í svellið. Sveitarfélögin þátttakendur Þátttakendur í verkefninu ásamt EFLU voru sveitarfélögin á höf- uðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafn- arfjörður, Kópavogsbær, Mosfells- bær, Reykjavíkurborg og Seltjarnarnesbær auk verktakafyr- irtækisins Hreinsitækni. Reykjavík er fjölmennasta sveit- arfélagið og með umfangsmesta stígakerfið. Að sögn Hjalta J. Guð- mundssonar, skrifstofustjóra á skrifstofu reksturs og umhirðu borgarlands hjá Reykjavíkurborg, hefur borgin verið að skoða þessi mál ítarlega undanfarið. „Enda vilj- um við reyna að bæta þjónustu við gangandi og hjólandi vegfarendur yfir vetrartímann. Það er gert með því að athuga mismunandi aðferðir við vetrarþjónustu. Þetta er eitt verkefnið á því sviði,“ segir Hjalti. Á veturna hvílir sú ábyrgð á ríki, bæjar- og borgaryfirvöldum að hreinsa og moka götur, göngu- og hjólastíga. Í því felst að tryggja að vegfarendur komist leiðar sinnar óháðir veðurfari hverju sinni. „Aukin áhersla hefur verið lögð á að íbúar nýti sér umhverfisvæna samgöngumáta til dæmis með hjól- reiðum og hefur töluverð bragarbót verið gerð á hjólastígum á höfuð- borgarsvæðinu. Því er mikilvægt að tryggja að hreinsun hjólaleiða sé með árangursríkum hætti,“ segir Sighvatur. Aðferðin við snjóhreinsunina var prófuð á tímabilinu 21. desember 2015 til 26. janúar 2016. Hún var gerð á tveimur stígum, hjólaleið í Fossvogsdal í Reykjavík og hjóla- leið í Vatnsendahverfi Kópavogs. Þá voru göngustígar sem lágu sam- hliða hjólastígunum og voru hreins- aðir með hefðbundinni aðferð, þ.e. ruddir og sandbornir, skoðaðir til samanburðar. Fylgst var með ár- angri aðferðarinnar, annars vegar hvernig tækjakostinum gekk að hreinsa snjóinn með því að sópa og hálkuverja með pækli, og hins veg- ar hver afköst snjótækisins voru. Árangur aðferðarinnar var metinn með sjónrænum aðferðum, mæl- ingu á yfirborðshita, auk þess sem gengið var og hjólað á yfirborði stígsins. Á báðum stígunum gekk til- raunin vel og sýnt var fram á að hjólastígarnir héldust bæði hreinir og stamir, þ.e. mun minni hálka var á yfirborðinu heldur en á sam- anburðargöngustígum, segir Sig- hvatur. Margvíslegur ávinningur Niðurstöðurnar hafi sýnt að hægt er að ná mun betri snjóhreinsun stíga með því að sópa og úða salt- pækli í stað þess að ryðja snjóinn og sandbera. Þá hafi þetta vinnulag það í för með sér að nýting hreinsi- tækisins með saltpækil sem hálku- vörn, er mun betri en með sandi, því sjaldnar þarf að aka eftir áfyll- ingu á saltpækli. Meðalhraðinn við að sópa snjó og dreifa pækli er mun meiri ef miðað er við afkastatölur erlendis frá en við hefðbundinn snjóruðning og sandburð. Með aðferðinni, að sópa og salta stíga með pækli, náist betri árang- ur við hreinsun á snjó og klaka af yfirborði stígsins. Þannig sé hægt að koma oftar í veg fyrir slys á fólki og fækka óhöppum hjá hjól- andi vegfarendum. Þá gæti sparast kostnaður sem hleypur á tugum milljóna við hreinsun á sandinum á vorin, bæði á götum, stígum og í frárennsliskerfum og stígar verða hreinni og minna um svifryk. EFLA hefur kynnt niðurstöður verkefnisins fyrir þeim aðilum sem tóku þátt í því og hefur gefið út skýrslu um efnið. Að mati EFLU er næsta skref verkefnisins að fá til landsins sérútbúinn tækjabúnað til að sópa snjó og pækildreifara sem tryggja lágmarksnotkun á saltpækli og þróa nýtt verklag við íslenskar vetraraðstæður. Er allra hagur „Spennandi verður að fylgjast með framvindu verkefnisins, en markmiðið með öruggum hjólaleið- um er í takt við stefnu yfirvalda til framtíðar um hjólreiðatengd mál- efni og vistvæna valkosti. Ákvörð- unarvaldið liggur því hjá borgar- og bæjaryfirvöldum og vonandi verður sterkur hljómgrunnur að þessu verkefni hjá þeim. Öruggari og vistvænni samgöngumáti er allra hagur og vel til þess fallið að skoða þessa aðferð af kostgæfni,“ segir Sighvatur Arnarsson að lokum. Ný aðferð við hálkueyðingu reynd  EFLA verkfræðistofa ákvað að ráðast í þróunarverkefni í þeim tilgangi að bæta öryggi fólks  Í stað þess að sandbera göngu- og hjólastíga voru þeir sópaðir og síðan var saltpækli ýrt yfir þá Ljósmyndir/EFLA Göngustígur að vetri Hin nýja aðferð sem EFLA prófaði reyndist hafa ýmsa kosti fram yfir þær aðferðir sem notaðar hafa verið við hálkuvarnir til þessa. Tilraun Tækið sem notað var. Kefli með nælonhárum og kassi með pækli. Sighvatur Arnarsson Gunnar Bragi Sveinsson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að skipa þriggja manna starfshóp til að leggja mat á hvaða takmarkanir komi helst til greina til að viðhalda ræktanlegu landbúnaðarlandi og búsetu í sveitum landsins. Þetta kemur fram í frétt á vef- síðu atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytisins. Hópnum er einnig ætlað að skoða takmarkanir á eignarhaldi bújarða, sem er að finna í löggjöf nágrannalanda Ís- lands, eins og t.d. Noregs, Dan- merkur og Möltu, og rúmast innan 40. greinar EES-samningsins. Í frétt ráðuneytisins segir að í dönsku jarðalögunum sé m.a. eign- arhald á landbúnaðarlandi tak- markað og skilyrði sett fyrir kaup- um erlendra ríkisborgara. Þá mun hópurinn gera tillögu til ráðherra um nauðsynlegar breytingar á lög- um í samræmi við framangreint. Í fréttinni segir að nokkur um- ræða hafi verið í þjóðfélaginu um árabil varðandi kaup erlendra að- ila á bújörðum hér á landi. Dæmi eru um það að sami aðili hafi keypt margar jarðir á stóru svæði án þess að þar sé fyrirhuguð bú- seta eða að ræktanlegt land sé nýtt. Hópurinn verður skipaður þremur fulltrúum. Einn verður til- nefndur af innanríkisráðherra, einn tilnefndur af Bændasamtök- um Íslands en formaður hópsins verður skipaður af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra án til- nefningar. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum eigi síðar en í júní 2017. Jarðaeign verður skoðuð  Þriggja manna starfshópur skipaður af ráðherra  Mun kanna takmarkanir á eignarhaldi útlendinga á bújörðum Jarðir Grímsstaðir á Fjöllum hafa verið í umræðunni vegna eignarhalds.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.