Morgunblaðið - 07.01.2017, Síða 28

Morgunblaðið - 07.01.2017, Síða 28
28 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 BAKSVIÐ Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Jacqueline Sauvage var tákngerv- ingur plágu heimilisofbeldis í Frakklandi og fangelsun hennar hafði verið mótmælt hvað eftir ann- að. Francois Hollande forseti not- færði sér ákvæði í lögum sem sjald- an er beitt og náðaði hana á fjórða degi jóla. Hafði frú Sauvage verið dæmd í 10 ára fangelsi árið 2012 fyrir að skjóta ofbeldisfullan mann sinn til bana. Fyrir dómstólum rétt- lætti hún þá gjörð sem neyðar- úrræði til að losna undan andlegum og líkamlegum misþyrmingum um áratuga skeið. „Löngu stríði var að ljúka í þessu en baráttan heldur þó áfram í þágu allra kvenna,“ sagði lögmaður Sau- vage, Janine Bonaggiunta, við BFM-sjónvarpsstöðina, eftir að hafa fengið að vita af náðuninni. Skjólstæðingur hennar var þá horf- inn úr fangelsinu í fylgd dætra sinna. Eftir undirskriftaherferð fyrir náðun hennar sem dætur Sauvage þrjár höfðu staðið fyrir og rúmlega 380.000 manns lagt lið aflétti Hol- lande refsingu hennar að hluta í janúar 2016. Við það öðlaðist hún rétt til að fara fram á reynslulausn, sem á var látið reyna. Hún var ekki bænheyrð því tveir dómstólar höfn- uðu kröfunni. Barátta aðstandenda hennar og stuðningsmanna hélt samt áfram. Sjaldan beitt „Forseti lýðveldisins ákvað að fangelsið væri ekki lengur staður fyrir frú Sauvage, heldur í faðmi fjölskyldu sinnar,“ sagði í tilkynn- ingu sem gefin var út í Elysee-höll í tilefni náðunarinnar. Hollande hafði einu sinni áður beitt hinu sérlega forsetavaldi og veitt öldruðum manni, Philippe El Shennawy, reynslulausn árið 2013. Hann hafði þá setið í fangelsi í 38 ár, eða lengur en nokkur annar fangi í sögu Frakklands. Forsetinn getur beitt valdi sínu til að stytta refsingu en getur ekki raskað for- sendum sakfellingarinnar. Frá árinu 2008 hefur þessu forsetavaldi aðeins verið beitt í einstaka máli einstaklinga. Þar áður var það helst brúkað til að fella úr gildi smásak- fellingar, svo sem umferðarsektir, í massavís. Oftast var því beitt við áramót og á sérstökum tyllidögum, svo sem þjóðhátíðardeginum. Tekið var fyrir slíkar hópuppgjafir saka árið 2008. Sú náðun sem er líklega sögu- frægust í Frakklandssögunni er náðun herforingjans Alfreds Drey- fus árið 1899. Hafði hann verið dæmdur fyrir landráð en sakfell- ingin olli gríðarlegum óvinsældum og hörðum deilum. Áfrýjunarréttur ógilti síðar landráðadóminn. Kinnhestur kornið sem mælinn fyllti Jacqueline Sauvage er 69 ára og hafði setið inni í rúm þrjú ár af 10. Hún var sakfelld fyrir að hafa þann 10. september 2012 skotið eigin- mann sinn, Norbert Marot, í bakið með veiðibyssu á heimili þeirra í Selle-sur-le-Bied, um þúsund manna bæjarfélagi í Loiret-sýslu, rúmlega 100 km suður af París. Hæfðu þrjár kúlur hann. Daginn áður hafði sonur þeirra, Pascal, fengið nóg af harðræði föðurins og hengt sig. Þetta septembersíðdegi blundaði frú Sauvage í sófa er eig- inmaður hennar, herra Marot, gekk þar að og sló hana í andlitið og krafðist þess að hún eldaði kvöld- mat handa honum. Hún sagði kinn- hestinn hafi verið kornið sem fyllti mælinn; aflið sem ýtti við henni og knúði hana til aðgerða. Í stað þess að fara fram í eldhús tók hún veiði- riffil úr skáp, gekk út á veröndina þar sem maður hennar sat og dreypti á viskíi og skaut hann. Dómarar tóku ekki til greina við- bárur hennar að um nauðvörn hefði verið að ræða þar sem hún hafði skotið mann sinn í bakið – og það nokkrum mínútum eftir að hann rak henni kjaftshöggið. Féllust þeir þó á að ekki hafi verið um morð að yfirlögðu ráði að ræða. Þeir átöldu hana fyrir að hafa ekki gengið út af heimilinu eða kært mann sinn áður en hún greip til örþrifaráðs síns. Einhverju sinni hafði hún reynt að svipta sig lífi en fram kom við rétt- arhöldin að læknir sem annaðist hana hefði aldrei spurt um ástæður þess. Þá fór ein dætranna til lög- reglu og sagði að faðir sinn hefði nauðgað sér. Tók lögreglan það ekki alvarlega og dró hún ásökun sína til baka af ótta við viðbrögð föðurins. Sjálfsvörn þröngt skilgreind í lögum Réttarhöld í málinu fóru fram 2014 og 2015 fyrir stórglæpadóm- stóli í bænum Blois. Dómur gekk þann 28. október 2014 með því að hún var dæmd í 10 ára fangelsi, þá 65 ára, fyrir morð. Ári seinna stað- festi áfrýjunarréttur hann. Fyrir dómi greindi Jacqueline Sauvage þar frá því að hún hafði búið við of- beldi af hálfu áfengissjúks eigin- manns síns um 47 ára skeið. Hún hefði lengi vel talið það vera sína skömm. Sömuleiðis hefði maður hennar beitt dætur þeirra þrjár kynferðislegu ofbeldi á æskuárum þeirra og beitt þær líkamlegu of- beldi einnig. Lýstu þær ofbeldi hans við rannsókn málsins og í dómsölum en fyrir rétti sögðust þær hafa verið „of smánaðar“ til að hafa kjark í sér til að leita sér hjálpar. Áfrýjun dómsins yfir Sauvage féll á lagagrein sem kveður á um að sjálfsvörn verði að vera beitt taf- arlaust gegn árás og vera í réttu hlutfalli við hana. „Þrjú skot í bakið er of mikið til að geta fallist á sjálfs- vörn,“ sagði saksóknari í málinu. Á það féllust dómararnir sem sögðu aðgerðaleysi hennar í 47 ára hjóna- bandi augljóst og vekja spurningar um hvers vegna það tók hana svo langan tíma að gera eitthvað gagn- vart manninum sem beitt hafði hana og börn hennar kynferðislegu of- beldi. Verjandi Sauvage lagði að dómurum að rýmka sjálfsvarnar- skilgreininguna í málum kvenna sem búið hefðu við ofbeldi í hjóna- bandi. Mál Sauvage hefur vakið mikla athygli í Frakklandi og létu kven- réttindasamtök, fræga fólkið og stjórnmálamenn það til sín taka. Leiddi það til víðtækari umræðu um heimilisofbeldi í landinu, en á annað hundrað kvenna fellur þar fyrir hendi maka síns á ári hverju. Efnt var til fjöldagöngu henni til stuðn- ings í París í byrjun nýliðins desem- bermánaðar. Dómarar óhressir Fólk sem lagði baráttunni fyrir frelsi Sauvage lið fagnaði náðun hennar. Einn af verjendum hennar, Nathalie Tomasini, sagði við út- varpsstöðina RTL að náðunin væri „mögnuð yfirlýsing“ fyrir allar kon- ur sem væru fórnarlömb heimilis- ofbeldis. Formaður samtaka rann- sóknardómara, Virginie Duval, andmælti hins vegar náðuninni og sagði forsetann hafa lítilsvirt lands- lögin „til að gleðja almannaróm“. Við blaðið Le Monde sögðu dómara- samtökin (USM) ákvörðun Hollande „hneykslanlega og sorglega“ árás á hlutleysi réttarfarsins. Fulltrúar stjórnmálaflokka bæði vinstri- og hægrimanna lýstu hins vegar ánægju sinni og mun það vera fyrsta ákvörðunin í tæplega fimm ára forsetatíð Hollande sem allir flokkar taka undir. Önnur frönsk kona, Alexandra Lange, sem vó mann sinn með því að stinga hann með hnífi í hálsinn er hann reyndi að kyrkja hana, var sýknuð af ákæru 2012. Sögðu dóm- ararnir viðbrögð hennar við ofbeldi hans hafa verið í réttu hlutfalli við það. Hún lagði baráttu aðstandenda Sauvage lið og hvatti til þess að slakað yrði á lagalegri skilgreiningu sjálfsvarnar. „Lögin líta ekki á Jac- queline sem fórnarlamb, heldur sem lögbrjót,“ sagði Lange við útvarps- stöðina Radio Bleu Nord. „Hún var aðeins að bregðast við 47 ára of- beldi. Hvað hefðu þeir helst kosið? Að hún hefði bæst í hóp þeirra 118 kvenna sem falla ár hvert fyrir hendi ofbeldisfullra eiginmanna sinna?“ bætti hún við. Tvær til þrjár deyja í viku hverri Könnun hefur leitt í ljós að árlega sæti 223.000 franskar konur lík- amlegu eða andlegu ofbeldi af hálfu maka sinna, að sögn franska fjöl- skyldumálaráðuneytisins. Árið 2014 eitt og sér létu 134 konur lífið af völdum slíks ofbeldis en á sama tíma risu fimm konur upp gegn mökum sínum og hefndu ofbeldisins með því að drepa þá. Samkvæmt Réttindastofnun Evrópusambands- ins hefur þriðjungur allra kvenna einhvern tíma eftir að hafa náð 15 ára aldri orðið fyrir líkamlegu eða andlegu ofbeldi. Það þýðir með öðr- um orðum að 62 milljónir kvenna séu fórnarlömb ofbeldis á ESB- svæðinu. Tíunda hver kona hafði sætt einhvers konar kynferðislegu ofbeldi og tuttugustu hverri verið nauðgað. Fimmta hver kona hafði sætt ofbeldi af hálfu maka og 67% sögðust aldrei hafa tilkynnt atvik al- varlegs heimilisofbeldis. Líklegt þykir að mál Sauvage eigi eftir að breyta meðferð sambæri- legra mála. Aðeins fjórum dögum eftir að Francois Hollande forseti mildaði refsingu hennar í janúar í fyrra hlaut önnur kona, hin 59 ára gamla Bernadette Dimet, sem skaut mann sinn til bana 2012 eftir 40 ára ofbeldi og misneytingu, einungis skilorðsbundinn dóm fyrir verkn- aðinn til fimm ára.  Dæmd í 10 ára fangelsi  Forseti Frakklands notfærði sér lagaákvæði sem sjaldan er beitt Náðuð þótt hún hafi myrt mann sinn AFP Mótmæli Frá mótmælum stuðningsmanna Jacqueline Sauvage á Trocadero flötinni í París 10. desember sl. Á kröfuspjaldinu er skilyrðislausrar náðunar hennar krafist. Frakklandsforseti varð við þessum kröfum. Morgunblaðið/AFP Flutt úr fangelsi Jacqueline Sauvage í aftursæti bifreiðar sem flutti hana úr fangelsinu í Reau suðaustur af París eftir náðunina 28. desember sl. majubud.is SEÐLABANKI ÍSLANDS auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals Auglýst er eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals og veittur er af Seðlabanka Íslands. Tilgangur styrksins, sem veittur er árlega, er að styðja framtak sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf. Styrkfjárhæðin nemur þremur milljónum króna og verður úthlutað í apríl eða maí 2017. Hugsanlegt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri umsækjenda. Umsóknir skulu sendar skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands eigi síðar en 28. febrúar 2017. Úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð eru aðgengileg á heimasíðu bankans og í afgreiðslu hans á Kalkofnsvegi 1. Nánari upplýsingar veitir Jón Þ. Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra. Seðlabanki Íslands · Kalkofnsvegi 1 · 150 Reykjavík · Sími: 569 9600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.