Morgunblaðið - 07.01.2017, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Skattleysi al-þjóðlegrastórfyrir-
tækja hefur nokk-
uð verið til umræðu
undanfarin miss-
eri. Fara ýmsir
mikinn yfir þessari ósvinnu, en
hlutirnir virðast þó breytast
hægt. Skattaskjólin er víða að
finna og nokkuð hefur verið
þrengt að þeim, en pólitískur
vilji til að ganga í það af hörku
að stöðva undanskot hefur ver-
ið takmarkaður.
Í vikunni birtist athyglisverð
frétt á vef breska blaðsins
Guardian um það hvernig Jean-
Claude Juncker, núverandi for-
seti framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins, hefði árum
saman beitt brögðum á laun til
að standa í vegi fyrir tilraunum
Evrópusambandsins til að taka
á undanskotum alþjóðlegra fyr-
irtækja frá skatti þegar hann
var forsætisráðherra Lúxem-
borgar.
Efni fréttarinnar er byggt á
leka trúnaðargagna frá þýsku
utanríkisþjónustunni þar sem
kemur fram hvernig Lúxem-
borg var markvisst til trafala í
störfum nefndar um skattlagn-
ingu fyrirtækja. Nefndin var
sett á laggirnar fyrir tæplega
tveimur áratugum til þess að
koma í veg fyrir að alþjóðleg
stórfyrirtæki, í viðleitni sinni
til að flytja hagnað yfir landa-
mæri og komast hjá skatti,
tefldu ríkisstjórnum aðildar-
ríkjanna hverri gegn annarri í
leit að lægsta samnefnara.
Í gögnunum kemur fram að
nokkur af minnstu aðildar-
ríkjum ESB reyndu að verja
skattaskjól sín og spilla áform-
um nefndarinnar, oft með Lúx-
emborg í broddi fylkingar.
Juncker var forsætisráðherra
Lúxemborgar frá 1995 til 2013.
Hann var einnig fjármálaráð-
herra á þessum tíma og lagði
áherslu á skattamál.
Mikil uppsveifla var í Lúx-
emborg í valdatíð Junckers.
Þangað löðuðust stórfyrirtæki
á borð við McDonald’s, Fiat,
Amazon, Pepsi og Ikea. Árið
2014 var gögnum um sérstaka
ívilnunarsamninga, sem Lúx-
emborg gerði við rúmlega þús-
und fyrirtæki, lekið í fjölmiðla.
Skattlagningin fór jafnvel
niður fyrir einn af hundraði.
Iðulega var málum síðan þann-
ig fyrir komið að fyrirtækið í
Lúxemborg lánaði sjálfu sér fé
til rekstrar og framkvæmda í
öðrum ríkjum með hærri
skatta, jafnvel þótt þörfin fyrir
þessi lán væri hverfandi eða
engin. Þar voru fyrirtækin svo
sliguð af greiðslum af þessum
lánum og vöxtum af þeim að
þau voru jafnvel rekin með tapi
og komust þannig undan skatti.
Gróðinn varð til í Lúxemborg
þar sem skatturinn var jafnvel
undir einu prósenti. Í kringum
þessar tilfærslur peninga var
spunninn svo flók-
inn vefur að köngu-
ló myndi villast.
Framan af þver-
tók Juncker fyrir
að kalla mætti Lúx-
emborg skatta-
skjól. Hann sagði að skatt-
kerfið í Lúxemborg hefði ekki
verið ólöglegt, en bætti við að
því er haft er eftir honum í
Guardian að það hefði „ekki
alltaf verið í samræmi við sann-
girni í fjármálum“ og gæti hafa
brotið í bága við „siðferðislega
mælikvarða“.
Nú er annar tónn í Juncker
og hann hefur gert sér far um
að styðja rannsóknir á íviln-
unum Lúxemborgar til fyr-
irtækja á borð við McDonald’s
og Amazon. Þær snúast um það
hvort flokka megi skattsamn-
inga fyrirtækjanna við Lúxem-
borg sem ólöglega aðstoð við
þau. Stjórnvöld í Lúxemborg
segjast nú hafa snúið við
blaðinu og séu nú, eins og tals-
maður þeirra orðar það í frétt
Guardian, „í fararbroddi al-
þjóðlegrar sveiflu í átt að
auknu gagnsæi í skattamálum
og baráttunni gegn skaðlegri
skattasamkeppni“.
Skjölin benda þó til þess að
enn þráist Lúxemborg við í
nefndinni góðu og hafi í fyrra
lagst gegn tilraunum til að efla
hana. Einkum var Lúxemborg-
urum í nöp við ákvæði um að af-
nema reglu um að allar sam-
þykktir nefndarinnar yrðu að
vera einróma. Frakkar, Þjóð-
verjar og Svíar sögðu að það
væri nauðsynlegt ætti nefndin
að ná árangri.
Hægt er að finna skatt-
heimtu ýmislegt til foráttu og
þræta um hversu ágeng hún
eigi að vera. Með einhverjum
hætti þarf þó að sjá til þess að
grunnþættir samfélagsins virki
og þeir, sem ekki leggja sitt af
mörkum, fá ókeypis far á
kostnað hinna. Þetta skekkir
samkeppnisstöðu og dregur úr
jafnræði. Stór fyrirtæki og
rótgróin njóta frekar góðs af
þessu, en lítil fyrirtæki og ný,
sem ekki geta búið til hringrás
peninga milli landa. Það gefur
augaleið að fyrirtæki sem borg-
ar skatt stendur höllum fæti
gegn fyrirtæki sem ekki borgar
skatt.
Þegar hinir leynilegu skatta-
samningar Lúxemborgar við
alþjóðleg stórfyrirtæki voru
afhjúpaðir 2014 hitnaði undir
Juncker, en hann stóð það af
sér. Fréttin um hegðun Lúx-
emborgara í nefndinni um
skattamálin í valdatíð hans hef-
ur litla sem enga athygli vakið.
Það er hins vegar ekki hægt að
segja að sá maður, sem hefur
verið einna ötulastur við að
hjálpa stórfyrirtækjum þessa
heims að komast undan skatt-
heimtu, sé beinlínis trúverð-
ugur málsvari baráttunnar
gegn skattaskjólum.
Juncker var lykil-
maður í að gera
Lúxemborg að
skattaparadís}
Ótrúverðugur málsvari
S
amkvæmt nýlegri fundargerð
kirkjuráðs má gera ráð fyrir því að
innan fárra vikna verði efnt til
vígslubiskupskjörs í Skálholti. Þar
hefur þjónað síðustu árin sr. Krist-
ján Valur Ingólfsson en hann mun láta af
embætti sökum aldurs síðar á þessu ári. Hef-
ur hann, ásamt konu sinni, Margréti Bóas-
dóttur, þjónað staðnum af myndarskap líkt og
raunar forverar þeirra á staðnum, heiðurs-
hjónin Sigurður Sigurðarson og Arndís Jóns-
dóttir.
Það er skemmtileg tilviljun að vígslubisk-
upskjör skuli fara fram í Skálholti á sama ári
og þess er minnst að 500 ár eru frá upphafi
siðbótarinnar. En árið 1517 negldi Marteinn
Lúther gagnrýni sína á hendur Rómarkirkj-
unni á hallarkirkjudyrnar í Wittenberg. Það
er áhugaverð staðreynd fyrir þær sakir að siðbótin, sem
reyndar hóf innreið sína mun síðar hér á landi en víða
annars staðar, hófst einmitt í fjósinu í Skálholti. Það
gerðist þegar Oddur Gottskálksson settist niður við
grútartýru og þýddi Nýja testamentið á íslensku.
En vígslubiskupskjörið fram undan er einnig mikil-
vægt fyrir Þjóðkirkjuna, ekki einvörðungu vegna þess að
þar verður einn þriggja biskupa hennar valinn, heldur
vegna þess að sá sem í embættið mun veljast mun í krafti
staðarins og sérstöðu hans geta mótað með afgerandi þá
stefnu sem kirkjan tekur á komandi árum. Sú stefna
mun um leið geta haft gríðarleg áhrif á ásýnd stofnunar-
innar. Þar er mikið verk óunnið og mikilvægt að með-
limir hennar fái loks á tilfinninguna að for-
ystufólkið kunni ekki aðeins fyrir sér í
varnarleiknum, að það kunni einnig að sækja
fram í nafni kristninnar.
Væntanlega verða margir „kallaðir“í kjör-
inu líkt og jafnan áður en aðeins einn fram-
bjóðandi útvalinn. Það er mikilvægt að kjör-
mennirnir sem ráða valinu, en þeir eru á
annað hundrað talsins, ígrundi val sitt vel og
velji til embættisins einstakling sem ekki að-
eins hefur örugga burði til að gegn því heldur
hefur einnig skýra sýn á framtíð Þjóðkirkj-
unnar og Skálholtsstaðar.
Í pistli á þessum vettvangi hef ég áður bent
á það mikla tækifæri sem Skálholtsstaður
stendur frammi fyrir vegna stóraukins
straums ferðamanna til landsins. Um veginn
yfir Brúará leggja nú hundruð þúsunda
ferðamanna leið sína á ári hverju og innan fárra ára
verður hópurinn talinn í milljónum. Kirkjan getur eflt
stöðu Skálholts sem kirkju- og menningarseturs með
uppbyggingu á staðnum. Þar væri stórkostlegt að geta
tekið á móti Íslendingum og gestum þeim sem hingað
koma og kynnt þeim merka sögu staðarins og kirkjunnar
í heild. Það kallar hins vegar á gríðarlega fjárfestingu og
uppbyggingu en ef rétt er á málum haldið mun það efla
staðinn og skila honum miklum tekjum sem aftur geta
nýst í boðunarstarfi kirkjunnar. Nú er einfaldlega spurn-
ingin hvaða vígði þjónn kirkjunnar er líklegastur til að
geta snúið vörn í sókn og látið hana hefjast, líkt og sið-
bótina forðum, frá Skálholtsstað? ses@mbl.is
Stefán Einar
Stefánsson
Pistill
Mikilvægt vígslubiskupskjör
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Ekki reyndist unnt að flytjagjörgæslusjúkling ífyrsta forgangi frá Akur-eyri undir læknishendur í
höfuðborginni sl. fimmtudag þar
sem sjúkraflugvél gat ekki lent á
Reykjavíkurflugvelli vegna stífrar
suðvestanáttar. Er þetta í annað
skiptið á skömmum tíma sem ekki er
hægt að flytja sjúkling af lands-
byggðinni með sjúkraflugvél til
Reykjavíkur, en þar áður var um að
ræða hjartasjúkling sem þurfti á
sérhæfðri meðferð hjartalækna að
halda.
Leifur Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Mýflugs, sem sinnir
nær öllu sjúkraflugi innan Íslands,
segir vel hafa verið hægt að flytja
áðurnefndan sjúkling á Landspítala
hefði suðvesturbraut Reykjavíkur-
flugvallar, svokölluð neyðarbraut,
ekki verið lokuð.
„Í þessu tilfelli buðumst við
einnig til að flytja sjúklinginn til
Keflavíkur, þar sem hægt var að
lenda, en vegna þess að um gjör-
gæslusjúkling er að ræða töldu
læknar skárra að hafa hann áfram á
gjörgæslunni hér á Akureyri í stað
þess að flytja hann til Keflavíkur og
svo þaðan með sjúkrabíl í um
klukkustund til Reykjavíkur,“ segir
Leifur, en þegar Morgunblaðið náði
tali af honum í gær hafði gjörgæslu-
sjúklingurinn verið strandaglópur á
Akureyri í um það bil sólarhring.
„En svona er þetta – þetta er raun-
veruleikinn.“
Hefðu getað komist alla leið
Spurður hvort hægt hefði verið
að koma sjúklingnum til Reykja-
víkur með því að lenda á neyðar-
braut vallarins kveður Leifur já við.
„Það hefði verið hægt að lenda
á vellinum ef þessi braut hefði verið
opin. Það var vissulega hundleiðin-
legt flugveður með tilheyrandi
ókyrrð en við erum vanir að fljúga í
svoleiðis veðrum ef mikið liggur við
og flytja þarf sjúkling í fyrsta eða
öðrum forgangi,“ segir Leifur og
bætir við að hann hafi miklar
áhyggjur af stöðunni og þeim að-
stæðum sem skapast geti vegna lok-
un neyðarbrautarinnar.
„Við gætum t.a.m. lent í því að
vera yfir suðvesturhorninu um miðj-
an vetur, í svarta myrkri og kolvit-
lausu veðri, og geta hvorki lent í
Reykjavík né Keflavík vegna þess að
það er engin braut í þessari stefnu,“
segir hann og spyr: „Hvað gera
menn í slíkri stöðu?“
Starfsmönnum Mýflugs tókst
eftir hádegi í gær að flytja gjör-
gæslusjúklinginn til borgarinnar eft-
ir að veðurskilyrði á Reykjavíkur-
flugvelli höfðu skánað. Í kjölfarið
var hann fluttur á Landspítala til
meðferðar.
„Verr stödd en áður“
Sigurður E. Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri lækninga á Sjúkra-
húsinu á Akureyri, segir þessi ný-
legu atvik vera dæmi um þær
afleiðingar sem fylgi þeirri ákvörðun
að loka neyðarbrautinni á Reykja-
víkurflugvelli án þess að búið sé að
tryggja annað og sambærilegt úr-
ræði sem nýtist sjúkraflugi.
„Þetta á þó ekki að koma
mönnum á óvart, því það var búið
að benda á þetta. Það var hins
vegar alltaf sagt að ekki yrði
hróflað við aðstöðunni á Reykja-
víkurflugvelli til verri vegar
nema eitthvað annað og sam-
bærilegt kæmi í staðinn. En
það samkomulag heldur
greinilega ekki því það er bú-
ið að hrófla við og ekkert sam-
bærilegt kom í staðinn – við erum
því verr stödd en áður,“ segir hann.
Gjörgæslusjúklingur
tepptur í sólarhring
Morgunblaðið/RAX
Neyðarbrautin Hætta hefur þurft við tvö sjúkraflug á skömmum tíma
vegna þeirrar ákvörðunar að loka einni af brautum Reykjavíkurflugvallar.
Guðni Sigurðsson, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, segir suðvestur-
braut Reykjavíkurflugvallar vera
í starfhæfu ástandi og því gætu
flugvélar vel nýtt hana til lend-
ingar með skömmum fyrirvara.
„Þetta fer helst eftir því hvort
búið sé að koma fyrir einhverju
á byggingasvæðinu, s.s. háum
krana, en eins og staðan er nú
þá er ekkert fyrir brautinni,“
segir hann. „Brautin hefur ekk-
ert breyst - henni var bara lokað
eftir að innanríkisráðuneytið
óskaði eftir því á sínum
tíma.“
Fjölmargir hafa að
undanförnu óskað eft-
ir því að opnað verði
aftur fyrir flug-
umferð um brautina.
Má þar m.a. nefna full-
trúa sveitarfélaga auk
Landssambands slökkvi-
liðs- og sjúkraflutninga-
manna sem skora á inn-
anríkisráðherra að beita
sér í málinu.
Brautin enn
sögð nothæf
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR