Morgunblaðið - 07.01.2017, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 07.01.2017, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 Greinarhöfundur var aðfylgjast með GuðmundiKjartanssyni í beinni út-sendingu frá lokaumferð Hastings-mótsins sl. fimmtudag. Hann var í baráttunni um efsta sæt- ið, aðeins ½ vinningi á eftir efstu mönnum. Og taflmennska hans var skínandi góð. Indverskur andstæð- ingur hans reyndi að flækja taflið, fyrst með peðasókn á kóngsvæng og síðan einhverju sprikli á drottning- arvæng. Guðmundur svaraði með því að gefa skiptamun og opna síðan á kóngsstöðu Indverjans. Gamal- kunnir taktar Friðriks Ólafssonar frá Hastings á sjötta áratug síðustu aldar komu upp í hugann. Til þess að bæta um betur fórnaði Guð- mundur manni. Hann var hrók und- ir en menn biðu eftir því að hann léki peði til f7. Fleira þurfti ekki til. En leikurinn sá birtist aldrei á tölvuskjánum; í staðinn lék hann biskup upp í borð og varð mát. Sorg- leg endalok: Hastings 2017; 9. umferð: Guðmundur Kjartansson – Das Arghyadip Enskur leikur 1. c4 Rf6 2. Rc3 e5 3. Rf3 Rc6 4. g3 d5 5. cxd5 Rxd5 6. Bg2 Rb6 7. O-O Be7 8. Hb1 g5 Viktor Kortsnoj lék þessu fyrstur manna en Guðmundur lætur ekki slá sig út af laginu. 9. d3 g4 10. Rd2 Be6 11. b4 h5 12. b5 Ra5 13. Dc2 a6 14. Bb2 f6 15. a4 h4 16. Rce4 hxg3 17. hxg3 Rd5 18. Hfc1 axb5 19. axb5 b6 20. Rc3 Rb4 21. Dd1 Ra2 22. Rxa2 Bxa2 23. Da4! Hann gat líka leikið 23. Bxa8 og siðan lokað með e2-e4. 23. … Bxb1 24. Hxb1 Hg8 25. De4! Ha7 26. d4! Kf8 27. dxe5! Dxd2 28. exf6 Bc5 Og nú blasir vinningsleiðin við, 29. f7! t.d. 29. … Kxf7 30. Df5+ Ke7 31. Bf6+ Ke8 32. De6+ Kf8 33. Bd5! og svartur er varnarlaus. 29. Bc1?? Það er ekki hægt að skýra þennan afleik, sem eyðileggur frábæra skák, með því að Guðmundur hafi leikið of hratt. Það gerði hann ekki og hann átti nægan tíma á klukkunni. Eina skýringin hlýtur að vera sú að hann hafið talið hrókinn valda e1-reitinn. 29. .. De1+ 30. Kh2 Hh8+ – og hvítur gafst upp. Skákþing Reykjavíkur og Nóa Síríus-mótið Af skráningu keppenda að dæma má ætla að Skákþing Reykjavíkur sem hefst á morgun í húsakynnum TR við Faxafen verði vel skipað en meðal þátttakenda eru Guðmundur Kjartansson, bræðurnir Bragi og Björn Þorfinnssynir og Dagur Ragnarsson. Fleiri kunnir meistarar eiga eftir að bætast í hópinn en tefld- ar verða níu umferðir eftir sviss- neska kerfinu og fara þær fram á sunnudögum og miðvikudögum. Skákstjóri verður Ríkharður Sveins- son. Á þriðjudaginn kl. 19 hefst svo í Stúkunni á Kópavogsvelli Nóa Sí- rusmótið – Gestamót Hugins og Breiðabliks. Það er Jón Þorvaldsson skákmótafrömuður sem hefur haft veg og vanda af skipulagningunni undanfarin ár og hefur af mikilli fortölulist tekist að fá til keppni marga nafntogaða skákmeistara. Teflt er einu sinni í viku í tveim riðl- um, alls sex umferðir. Dagsetningar mótsins rekast ekki á við Skákþing Reykjavíkur svo að sumir verða með í báðum mótunum. Mesta athygli vekur þátttaka Jóhanns Hjartar- sonar og Jóns L. Árnasonar en aðrir kunnir kappar eru Helgi Áss Grét- arsson, Þröstur Þórhallsson, Guð- mundur Kjartansson, Jón Viktor Gunnarsson, Björn Þorfinnsson, Björgvin Jónsson og svo margir af sterkustu ungu skákmönnum okkar. Þá hefur Jóni tekist að laða til keppni á ný meistara sem ekki hafa teflt lengi, Jón Hálfdánarson og Björn Halldórsson. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Leikurinn sem birtist ekki á tölvuskjánum Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið upplysingar@reykjavik.is eða í síma 411 1111. www.reykjavik.is www.reykjavik.is Á vef Reykjavíkurborgar undir „mínar síður“ geta fasteignaeigendur: • skoðað álagningarseðil fasteignagjalda (eftir 30. janúar 2017) og alla breytingarseðla þar á eftir • skráð sig í boðgreiðslu fasteignagjalda • gefið upp reikningsnúmer ef til endurgreiðslu kemur • óskað eftir að fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum þar sem þeir verða, líkt og áður, ekki sendir út til greiðenda, 18-74 ára • sent inn erindi vegna fasteignagjalda Fasteignagjöld ársins 2017, yfir 25.000 kr., greiðast með níu jöfnum greiðslum á gjalddögum 1. febrúar, 4. mars, 2. apríl, 2. maí, 3. júní, 2. júlí, 2. ágúst, 2. september og 2. október. Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 1. febrúar. Fasteignagjöld í Reykjavík verða innheimt í netbönkum. Fasteignaeigendum er jafnframt bent á boðgreiðslur af greiðslukortum og á beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum. Mínar síður á www.reykjavik.is GARÐUR – SÉRHÆÐ TIL SÖLU 100 fm sérhæð í góðu steinhúsi með sérinngangi og lóð. Stutt á flugvöllinn, golfvöllinn og Helguvík. Íbúðin er öll nýstandsett með nýjum gólfefnum. Stórt og fallegt eldhús, stofa og 2 góð herbergi. Gott útsýni yfir sjávarsíðuna. Húsgögn og hús- búnaður geta fylgt með í kaupunum. Verð aðeins 19,9 millj. Get tekið nýlegan bíl upp í kaupverð. Ekkert áhvílandi. LAUS STRAX! Upplýsingar í síma 868 3144. Góð viðbrögð voru við mynda- gátu Morgunblaðsins. Rétt lausn er: „Hver verður vinsælasta jóla- gjöf þjóðarinnar á þessu ári? Verður það ný ríkisstjórn með Pírata í forsæti eða bara brú- negg í körfu?“ Dregið hefur verið úr réttum lausnum. Pálmar Kristinsson, Sólheimum 14, 104 Reykjavík, hlýtur bókina Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna eftir Sævar Helga Bragason, María Dungal, Engjaseli 87, 109 Reykjavík, hreppir bókina Svartalogn eftir Kristínu Mörju Baldursdóttur og Hallfríður Frímannsdóttir, Sólheimum 14, 104 Reykjavík, fær bókina Petsamo eftir Arn- ald Indriðason. Vinningshafar geta vitjað bókanna í móttöku Morg- unblaðsins í Hádegismóum 2 eða hringt í 569-1100 og fengið þær sendar heim. Morgunblaðið þakkar góða þátttöku og óskar vinningshöf- unum til hamingju. Hver j þ ný pí bara brún egg í kör fu rata í for sæti eð a rík is stjórn me ð ess u ári Verður þ að ól agjöf þjóð arinn ar á verð ur vin sæl ast a Lausn á jólamynda- gátu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.