Morgunblaðið - 07.01.2017, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 07.01.2017, Qupperneq 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HARALDAR JÓNSSONAR, Austurströnd 10, Seltjarnarnesi. . Gríma Lalla Sveinbjörnsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð, kærleik ykkar og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra EGILS ARNAR GUNNARSSONAR. . Erna Valdís Ívarsdóttir, Ásta Sigríður Egilsdóttir, Gunnar Örn Rúnarsson, Ásta Samúelsdóttir, Anton Örn Gunnarsson, Rósa Borg Guðmundsd., Eva Lind Gunnarsdóttir, Rúnar Ólafsson, Sigurlína Konráðsdóttir, Samúel Vilberg Jónsson, Bjarney Georgsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Jón Hörðdal Jónasson, Ívar Örn Arnarson, Guðný Ævarsdóttir. Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, GUÐJÓN SÍVERTSEN, lést 21. desember. Útför hans fór fram í kyrrþey. Þökkum sýnda samúð og vinarhug. . Sigríður Bergmann, Kristbjörg Þöll Sívertsen, Hjörleifur Guðjónsson. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann ✝ Sigþór fædd-ist í Reykja- vík 14. febrúar 1961. Hann lést af slysförum 22. desember 2016. Foreldrar hans voru Fanney Halldórsdóttir, fædd 1941, dáin 2016, frá Syðri-Steinsmýri í Meðallandi og Grétar Guðmundsson, fæddur 1936, dáinn 2010, frá Hafn- arfirði. Sigþór átti eina alsyst- ur, Elsu Dóru, sex hálfsystkini sammæðra; Jón Þór, Ingu Láru, Bjarneyju, Ágústu, Jök- ul og Ægi. Tvö systkini sam- feðra, þau Grétar og Hönnu. Á fjórða ári er hann tekinn í fóstur til Elísabetar Önnu Bjarnadóttur og Aðalgeirs Eg- ilssonar á Mán- árbakka á Tjör- nesi og ólst þar upp til 17 ára ald- urs. Hann átti einn uppeldis- bróður, Bjarna Sigurð. Einka- dóttir Sigþórs er Anna Sigríður, fædd 2. október 1992. Sigþór starfaði lengst af sem bifreiðarstjóri, bæði á vöru- og fólksflutningabif- reiðum og síðustu árin vann hann hjá Hópferðabílum Akureyrar. Nokkur síðustu árin var Sigþór í sambúð með Anitu Henriksen og bjuggu þau á Húsavík. Útför Sigþórs fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 7. jan- úar 2017, klukkan 14. Elsku Sigþór frændi. Þín er sárt saknað af mér og minni fjöl- skyldu. Megi almættið vernda þig í Sumarlandinu, vinurinn okkar. Við sendum ástvinum Sigþórs okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Sjá, móðir jörð ber gylltan geislahjúp. Um gesti hennar flæðir ljós og ylur, og um þá lykst hið mikla megindjúp, sem mannleg augu sjá, en enginn skilur. Og fleiri stjörnur firðin bláa hylur en fjöll og dalir eiga blóm og strá. Og andi guðs mun yfirskyggja þá, sem ætla sér að heyra það og sjá, sem vizka hans og veldi öllum dylur. Það gnæfir ofar gáfum dauðlegs manns að geta skynjað leyndardóma hans. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Kveðja, þín frænka Birna Halldórsdóttir og fjölskylda. Elsku Sigþór frændi. Okkur þótti mjög leitt að heyra að þú hefðir lent í slysinu á Holtavörðu- heiðinni. Þú varst uppáhalds frændi. Ekki grunaði okkur syst- ur þegar við töluðum við þig í síma að það væri í síðasta sinn sem við heyrðum í þér og þú ætl- aðir að koma í heimsókn til okkar. Það eru níu mánuðir síðan mamma þín dó, en hún dó í mars og þú í desember. Okkur langar að kveðja þig með þessu versi: Guðs orð er ljós, er lýsir í lífsins dimmu hér, og ljúfur leiðarvísir það lífs á vegum er. … (Valdimar Briem) Elsku Anita, Anna Sigríður, Elísabet, Aðalgeir, systkini og stórfjölskylda, Guð styrki ykkur öll. Hvíldu í friði, elsku frændi. Þínar frænkur, Alda, Bára, Ragnheiður (Adda) og fjölskylda. Sigþór Grétarsson „Hvað er að frétta?“ Þetta voru alltaf fyrstu orð hans, hvort sem það var í síma eða þegar við hittumst. Breytti engu ástand hans, hvort hann væri nánast lamaður í löppinni eftir sprautur, sem hann fór reglulega í vegna sjúk- dóms sem hann var að glíma við, hvort sem illa lá á honum eða ekki. Pétur var alltaf sá hressasti og jákvæðasti félagi og vinur sem ég hef kynnst. Pétri kynntist ég fyrst sem unglingur og síðan skildu leiðir okkar en við vissum alltaf af hvor öðrum. Síðan var það fyrir um sjö árum að leiðir okkar lágu saman á ný, þegar hann kom og átti erindi til mín í Tækjaleigunni til að fá keðjusög að leigu. Eftir það má segja að leiðir okkar skildu ekki og vor- Pétur Freyr Halldórsson ✝ Pétur FreyrHalldórsson fæddist 4. júní 1968. Hann varð bráðkvaddur 21. desember 2016. Útför hans fór fram 6. desember 2017. um við í sambandi nánast daglega eft- ir það. Það voru ófáar stundirnar sem við vorum úti í skúr að ræða málin yfir pílukasti og „Pilsner“. Síðustu ár höfum við hjónin verið í miklum fram- kvæmdum á lóð- inni. Þar kom Pét- ur okkur alveg til bjargar. Við værum ekki búin að gera það sem gert var ef ekki hefði kom- ið til aðstoð Péturs. Hann var hjálpsamasti vinur sem hægt er að hugsa sér; útsjónarsamur, duglegur og frábær smiður. Hann fann alltaf lausn á öllum vandamálum sem komu upp við verkið. Við munum hugsa til hans þegar við njótum útiver- unnar í garðinum, garðskálan- um og grillinu sem eru allt hans handverk og hönnun að stórum hluta. Pétur var stór hluti af lífi okkar og við munum sakna hans mikið. Dýrlega þig dreymi og drott- inn blessi þig. Sigurður og Kristín. ✝ Guðjón Sívert-sen fæddist í Reykjavík 7. jan- úar 1955. Hann lést 21. desember 2016. Foreldrar hans eru Sigurður Sí- vertsen, fæddur 1931, látinn 2005, og María Möller, fædd árið 1935. Guðjón var elstur í fimm systkina hópi og sá fyrsti þeirra sem fallinn er frá. Eftirlifandi systkini Guð- jóns eru: Þorleifur, f. 1956, Margrét Stella, f. 1958, Víg- lundur, f. 1961, og Sigurður, f. 1964. Guðjón ólst upp á Hverfisgötu 47 í Reykjavík. Guðjón gekk í Miðbæjarskóla og síðan Austurbæjarskóla. Að Austurbæjarskóla loknum hóf hann nám í Versl- unarskóla Íslands. Að því námi loknu lá leið hans til Bretlands þar sem hann lærði Landmannalaugum. Árið 1987 kynntist hann eftirlifandi eig- inkonu sinni Sigríði Bergmann og hófu þau sambúð fljótlega. Árið 1991 eignuðust þau sitt fyrsta barn, Kristbjörgu Þöll, og tveimur árum síðar, árið 1993, eignuðust þau son sinn Hjörleif. Guðjón og Sigríður gengu í hjónaband 31. desem- ber árið 1999. Aðaláhugamál Guðjóns voru stang- og neta- veiði, hann var veiðivörður við Elliðaár nokkur sumur. Einnig hafði hann gaman af ferðalög- um, útilegum og síðast en ekki síst bílum. Hann naut sín vel í Landmannalaugum þar sem hann sinnti af alúð starfi sínu við þjónustu ferðamanna. Guð- jón átti við heilsubrest að stríða, rúmlega fertugur fékk hann sitt fyrsta áfall, blóð- tappa í höfuðið og í kjölfarið komu fleiri veikindaáföll upp hjá honum. Útför Guðjóns fór fram í kyrrþey 5. janúar 2017. kerfisfræði. Að námi loknu í Bret- landi fluttist hann heim og hóf starf þar sem kerf- isfræðingur hjá Tölvuvinnslu og kerfishönnun, síð- ar sem fram- kvæmdastjóri. Hann starfaði þar til ársins 1991. Þá hóf hann nám við endurmenntun Háskóla Ís- lands og lauk þaðan prófi í viðskipta- og rekstrarfræði. Í kjölfarið hóf hann starf sem húsnæðisfulltrúi hjá Kópa- vogsbæ. Að fimm árum lokn- um þar hóf hann starf sem launafulltrúi og gjaldkeri hjá Skjá Einum á fyrstu árum Skjás Eins. Þar starfaði hann í nokkur ár og hóf síðan starf sem gjaldkeri og bókari hjá Mími Símenntun. Tvö síðustu ár hans starfaði hann við rekstur í ferðaþjónustu í Elsku Guðjón minn. Takk fyrir samfylgdina, árin okkar öll saman og síðast en ekki síst fyrir yndislegu börnin okkar, Kristbjörgu Þöll og Hjörleif. Ég elska þig og sakna þín. Þín Sigríður (Sigga). Elsku besti pabbi minn. Aldrei átti ég von á því að rétt fyrir jólin í ár myndir þú kveðja þennan heim og að ég myndi ekki eyða jólunum eða öðrum degi yfirhöfuð aftur með þér. Ég átti heldur aldrei von á því að ég yrði aðeins 23 ára gamall að skrifa minningar- grein um þig. Það er eitthvað sem mér finnst virkilega ósann- gjarnt. Að hugsa til þess að geta aldrei séð þig og talað við þig aftur er óendanlega erfitt. Það verður erfitt að fóta sig án þín, því í einu og öllu varstu mín stoð og ég gat alltaf leitað til þín til þess að fá svar við hverju sem er. Ef ég vissi ekki eitthvað eða vildi fá álit frá ein- hverjum sem vissi alltaf rétta svarið þá kom aldrei neinn ann- ar til greina en þú. Það verður erfitt að geta ekki rölt fram eða hringt í þig og leitað til þín þegar eitthvað bjátar á. Það verður bæði erfitt og sárt að koma sér á fætur á morgnana vitandi það að þú sért ekki lengur til staðar. Ég sakna þín mjög mikið. Ég er engu að síður afar þakklátur fyrir öll þau 23 ár sem við fengum saman. Við eigum óteljandi margar minningar saman sem gott er að geta hugsað til. Ef ég fer í gegnum allt það sem við höfum brallað saman í gegnum lífið þá sé ég hvað við höfum gert mikið saman, og ef- laust mun meira en flestir aðrir feðgar ná að gera á mun lengri tíma. Það voru forréttindi að hafa átt þig sem minn besta vin. Það er ekki lengra síðan en fyrir nokkrum vikum sem við vorum bara að tala um að skella okkur saman í smá frí til útlanda í janúar og vorum farn- ir að skoða ferðir og spá og spekúlera, en það verður að bíða betri tíma, pabbi minn. Ég vona að þér líði vel og ég veit það að afi Siddi, og Daníel afi og Kristbjörg amma hafa tekið vel á móti þér og hugsa vel um þig. Takk fyrir allt, elsku pabbi. Þú varst í mínum augum alltaf sannkölluð hetja sem lét ekkert stoppa sig, og fyrirmynd mín í lífinu. Vertu bless, elsku besti pabbi minn. Ég veit að það bíða mín hlýlegar móttökur þegar við hittumst aftur. Elsku pabbi, hvíl í friði. Ég elska þig. Þinn Hjörleifur. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson) Það er skrítið þetta líf. Mað- urinn áætlar en Guð ræður. Allt í einu er góður maður horf- inn á braut, langt um aldur fram, svili og mágur okkar. Þótt heilsan hafi verið léleg lengi var enginn undir það bú- inn. Guðjón kom í fjölskylduna undir lok níunda áratugarins. Þá vörðum við mörgum góðum stundum saman með honum og Siggu í Skorradal. Börnin voru ung, tré voru gróðursett þegar þau fæddust. Guðjón var greið- vikinn og gjafmildur maður. Hann var vel tæknivæddur og einstaklega handlaginn, úr- ræðagóður og gamansamur. Í Skorradal bjó hann til grill úr hjólbörum þegar fjölmennt var í mat. Það voru engin vanda- mál, aðeins lausnir fundnar. Tengdaforeldrum sínum var hann mjög hjálpsamur. Guðjón var viðræðugóður og aldrei komið að tómum kofunum í samtölum við hann. Hann átti svör við öllum lífsins gátum. Hundurinn Máni kom inn í líf hans þegar heilsan var farin að bregðast. Þá var gott að halda sér í formi með góðum göngu- túrum. Síðar kom kyrrðin í Landmannalaugum inn í til- veruna. Hann naut þess að standa þjónandi vakt við ferða- langa. Sorglegt að ekki varð framhald á því. En handan við fjöllin og handan við áttirnar og nóttina rís turn ljóssins þar sem tíminn sefur. Inn í frið hans og draum er förinni heitið. (Snorri Hjartarson) Elsku Sigga, Kristbjörg Þöll og Hjörleifur. Við vottum ykk- ur dýpstu samúð og biðjum Guð að styrkja ykkur í sorg- inni. Kristín og Þórður Daníel. Guðjón Sívertsen Þann 17. desem- ber síðastliðinn kvöddum við elsku Marvin afa. Hann var mikill vinur okkar systra, stríðinn, hlýr og í alla staði ynd- islegur maður. Hann kenndi okkur systrum m.a. að það má vera „þrjóskur sérvitringur“ al- veg fram í fingurgóma ef maður hefur bara húmor fyrir sjálfum sér. Afi var þolinmóður og gaf sér alltaf tíma til þess að að- stoða eða heyra okkar hjartans Marvin G. Hallmundsson ✝ Marvin G. Hall-mundsson fæddist 3. október 1931. Hann lést 17. desember 2016. Útför Marvins fór fram 6. janúar 2017. mál og það er góð tilfinning að muna það hvað afi Mar- vin var alltaf stolt- ur af okkur, sama hvað við tókum okkur fyrir hendur. Steinunni þykir það vera forrétt- indi að hafa fengið að kynnast afa sem samstafsfélaga og vini og að hafa fengið að læra af þeim besta en það voru ófáar stundirnar sem þau áttu saman síðustu árin á verkstæðinu. Við systur og fjöl- skyldur okkar eigum frábærar minningar og við kveðjum elsku afa okkar með gleði en söknuð í hjarta. María, Auður Ósk og Steinunn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.