Morgunblaðið - 07.01.2017, Side 49
en hann var blindur skósmiður. Ég
man alltaf að hann sagði við okkur:
„Passiði ykkur bara á því að láta
ekki fullorðna fólkið taka þetta frá
ykkur.“
„Svo var maður að leika sér í fjör-
unni og að sniglast kringum grá-
sleppukarlana á vorin sem voru með
trillur sína og varir þarna í Skerja-
firðinum. Maður biður ekki um betri
æskuslóðir.“
Kristján stundaði nám við
Menntaskólann við Hamrahlíð og í
leikhúsfræði við Háskólann í Bergen
í þrjú ár. Löngu síðar hóf Kristján
nám í heimspeki við Háskóla Ís-
lands, lauk þaðan BA-prófi 2013 og
MA-prófi 2015. Hann útskrifast
núna í janúar með diplómanám við
sama skóla, í því sem nefnist gagn-
rýnin hugsun og siðfræði, og í vor
með viðbótardiplóma í heimspeki-
kennslu.
Kristján vann lengi við lagerstörf,
smíðar, garðyrkjustörf og var
bankamaður um skeið.
Kristján hefur helgað sig rit-
störfum og skáldskap frá 1990.
Hann vinnur jöfnum höndum við að
semja ljóð, leikrit, skáldsögur, smá-
sögur og söngtexta, auk þess að
semja tónlist, kenna heimspeki,
skáldleg skrif og ljóðlist, stjórna út-
varpsþáttum og vísnakvöldum, rita
greinar í blöð og tímarit, flytja er-
indi, yrkja ýmiss konar tækifær-
iskveðskap og koma fram sem trú-
badúr.
Á síðustu árum hefur Kristján
haldið nokkur námskeið á vegum
Endurmenntunar Háskóla Íslands, í
bragfræði, skáldlegum skrifum.
limrugerð og söngtextagerð.
Jafnframt þessum störfum hefur
Kristján stundað nám í heimspeki
síðustu árin, við HÍ.
Bækur Kristján eru orðnar rúm-
lega 30 talsins, þar af eru sex skáld-
sögur fyrir börn, tvær skáldsögur
fyrir fullorðna, ýmsar barnabækur,
ljóðabækur, vísnabækur og ein ævi-
saga. Þá skipta blaðagreinar hans
hundruðum. Einnig hefur hann
skrifað nokkur leikverk; útvarps-
leikri og verk fyrir leiksvið. Hann á
u.þ.b. 200 lög á diskum og u.þ.b. 800
útgefna söngtexta, sem og tugi ljóða
sem tónskáld hafa ort við og flutt
hafa verið á tónleikum.
Kristján hefur sinnt ýmiss konar
stjórnunarstörfum, t.d. fyrir STEF,
Félag tónskálda og textahöfunda,
Bandalag íslenskra listamanna og
knattspyrnudeild Breiðabliks, Skák-
samband Íslands og fleiri. Þá hefur
hann ritstýrt nokkrum verkum og
tekið virkan þátt á vettvangi stjórn-
málanna.
Fjölskylda
Fyrrverandi kona Kristjáns er
Edda Birgitte Lingaas, f. 27.11.
1961, fulltrúi við leikmunadeild
Þjóðleikhússins. Hún er dóttir Per
Lingaas, yfirlæknis við Oslo Helse-
rÊad, og Ástrósar Jónsdóttur,
lengst af saumakonu hjá Nation-
altheater í Osló.
Synir Kristjáns eru Pétur Krist-
jánsson, f. 9.10. 1990, stuðnings-
fulltrúi í Reykjavík, og er sonur hans
Victor Pétursson, f. 2010, og Baldur
Kristjánsson, f. 27.3. 1993, barþjónn.
Reykjavík.
Systkini Kristjáns eru Auður
Hreinsdóttir, f. 15.10. 1955, hús-
freyja á Akranesi; Svanberg Hreins-
son, f. 23.5. 1965, nemandi á Bifröst
Foreldrar Kristjáns voru Hreinn
Ágúst Steindórsson, f. 20.12. 1930, d.
7.12. 1999, verkstjóri í Reykjavík, og
Guðrún Ólafsdóttir, f. 18.4. 1933, d.
11.11. 2010, húsfreyja í Reykjavík.
Úr frændgarði Kristjáns Hreinssonar
Kristján
Hreinsson
Sigríður Jónsdóttir
vinnuk. á Árskógsströnd
Davíð Guðmundsson
vinnum. í Eyjafiriði
Svanbjörg Davíðsdóttir
húsfreyja á Akranesi
Ólafur Magnússon
verkam. og sjóm. á
Akranesi og í Rvík
Guðrún Ólafsdóttir
matráðskona
Margrét Ólafsdóttir
bústýra í Hvammsvík
Magnús Magnússon
bóndi í Hvammsvík í
Kjós, síðar á Akranesi
Ívar Haukur Jónsson
ritstj. Þjóðviljans, síðar skrif-
stofustjóri Þjóðleikhússins
Ólína Ágústa Jónsdóttir
húsfr. á Valdasteins-
stöðum og á Borðeyri
Hjörtur Theódór Jóhannsson
bóndi á Valdasteinsstöðum
í Hrútafirði
Oddný Hjartardóttir
húsfreyja í Rvík
Steindór Kristinn Ingimundarson
frystihússtjóri í Sænska frysti-
húsinu í Rvík
Hreinn Ágúst
Steindórsson
verkstjóri
Ingimundur Ingimundarson
bóndi á Sogni í Ölfusi
Jón Ívarsson
b. á Hálsi í Grafningi, síðar verkam. í Rvík
Guðbjörg Ívarsdóttir
húsfreyja á Sogni
Kristján Hér er limra á leiðinni.
ÍSLENDINGAR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017
Egill G. Thorarensen fæddist íKirkjubæ á Rangárvöllum7.1. 1897. Foreldrar hans
voru Grímur S. Thorarensen, oddviti
og hreppstjóri á Bjólu og í Kirkjubæ,
og k.h., Jónína Guðrún Egilsdóttir.
Grímur var sonur Skúla Thor-
arensen, læknis á Móeiðarhvoli,
bróður Bjarna, amtmanns og skálds.
Bróðir Gríms var Þorsteinn, bóndi á
Móeiðarhvoli, afi Þorsteins S. Thor-
arensen borgarfógeta.
Jónína var dóttir Egils Pálssonar
frá Múla í Biskupstungum.
Eiginkona Egils var Kristín Daní-
elsdóttir og eignuðust þau fjögur
börn, Grím kaupfélagsstjóra, Erlu
húsfreyju, Benedikt framkvæmda-
stjóra og Jónínu húsfreyju.
Egill stundaði verslunarnám í
Danmörku 1912-14 og verslunarstörf
1915 og var til sjós tvö ár, ásamt námi
við Stýrimannaskólann.
Egill flutti að Sigtúnum við Ölfus-
árbrú 1918 og átti eftir að verða einn
helsti áhrifamaður í atvinnumálum
og pólitík Selfyssinga og Suðurlands
á síðustu öld. Hann starfrækti versl-
un að Sigtúnum til 1930, beitti sér þá
fyrir stofnun kaupfélags, seldi versl-
un sína nýstofnuðu Kaupfélagi Ár-
nesinga, var kaupfélagsstjóri Kaup-
félags Árnesinga og stjórnarformað-
ur Mjólkurbús Flóamanna í þrjá
áratugi, sat í mjólkursölunefnd,
mjólkurverðlagsnefnd, beitti sér fyr-
ir kaupum kaupfélagsins á Laug-
ardælum og kom þar upp stórbú-
skap, beitti sér fyrir hafnargerð og
útgerð í Þorlákshöfn, var formaður
Meitilsins og sat í stjórn Mjólk-
ursamsölunnar og stjórn Osta- og
smjörsölunnar, auk stjórnarsetu í
öðrum fyrirtækjum og félögum.
Egill var bókmaður og bók-
menntalega sinnaður. Um hann sex-
tugan, sagði Ágúst, alþm. á Brúna-
stöðum, faðir Guðna: „Hann er
maður fríður og vel á sig kominn að
líkamsvexti. Bjartur á hörund, hárið
hvítt; bláeygur og fagureygur, all-
harður undir brún að líta, en ef betur
er að gætt, bros undir hvarmi og blik
gáfna og góðmennsku í augum.“
Egill lést 15.1. 1961.
Merkir Íslendingar
Egill G.
Thorarensen
Laugardagur
85 ára
Axel Kvaran
Birna Ólafsdóttir
Elías Jökull Sigurðsson
Erla Veturliðadóttir
80 ára
Ásta G. Benjamínsdóttir
Einar Guðmundsson
Jóhann Hjálmarsson
Lars Eiríkur Björk
75 ára
Bjarnfinnur R. Jónsson
Gísli Ingi Sigurgeirsson
Guðrún Gunnarsdóttir
Ingólfur Árnason
Jensína G. Magnúsdóttir
Karl Valgeir Jónsson
Ólafur Rúnar Þorvarðarson
Ragnar Guðnason
Snjólaug Hólmgrímsdóttir
Steinunn Gunnarsdóttir
Þorbjörg Guðmundsdóttir
70 ára
Anna Helgadóttir
Daníel Douglas Teague
Einar Magnús Kristjánsson
Elsa Sigrún Sigurðardóttir
Halldór Ólafsson
Stefanía Stefánsdóttir
Þorbjörg Einarsdóttir
Þórhalla Sigurðardóttir
Þórunn Ólöf Jósefsdóttir
60 ára
Björn Kristján Svavarsson
Guðrún Pálsdóttir
Guðrún Sveinsdóttir
Hrefna Þórarinsdóttir
Ingibjörg Pálsdóttir
Jóhanna Erlingsdóttir
Kristján Hreinsson
Lára Helga Jónsdóttir
Móeiður Sigvaldadóttir
Skúli Sigurðsson
Valtýr Þorvaldsson
Þorkell Einarsson
Þorvaldur Kröyer
50 ára
Anna María Bryde
Einar Jóhannesson
Friðrik Sigurberg Pálmason
Halldóra Þ. Friðjónsdóttir
Hákon Guðvarðarson
Hjördís Jóna Gísladóttir
Hólmfríður Þórðardóttir
Júlíus Már Larsen
Kristján Eldjárn Magnússon
Luzviminda Agliday
Diongco
Magnús Gunnarsson
Sigrún Garcia Thorarensen
Unnar Aðalsteinn Elíasson
Þórhildur Á. Magnúsdóttir
40 ára
Andrea Baldursdóttir
Anna Sigríður Hauksdóttir
Avdi Haxholli
Enika Hildur Jónsdóttir
Gunnar Val Friðriksson
Hildur G. Hallvarðsdóttir
Katrín Freysdóttir
Kristján Freyr Imsland
Krzysztof Piotr Solecki
Lára Bryndís Pálmarsdóttir
Lísa Jóhannesdóttir
Pacharin Julburom
Samúel Jón Samúelsson
Sara Björk Hauksdóttir
Sigurlaug Sverrisdóttir
30 ára
Adrian Kajetan Bekasiewicz
Ágústa Arnardóttir
Davíð Þór Sævarsson
Hjálmar Guðjónsson
Inga Rún Helgadóttir
Jón Atli Júlíusson
Jón Smári Tómasson
Kristín Erla Svanlaugsdóttir
Signý Gestsdóttir
Thelma Marín Jónsdóttir
Tinna Dögg Þóreyjardóttir
Þorsteinn Þór Tryggvason
Sunnudagur
95 ára
Kristín H. Kristjánsdóttir
85 ára
Einar Jónsson
Sigurjón Jónsson
80 ára
Finnur Ellertsson
Gígja Gunnlaugsdóttir
Lára Zoéga
75 ára
Aðalheiður Jóhannesdóttir
Brynja Árnadóttir
Haukur Óttarr Geirsson
Jódís Dagný Vilhjálmsdóttir
Sigurður Ólafsson
70 ára
Aldís Elíasdóttir
Ármann Benediktsson
Árni Sigvaldason
Edda Jónasdóttir
Erla Magnúsdóttir
Gísli Már Gíslason
Helga Hermannsdóttir
Inga Hersteinsdóttir
Ingibjörg F. Ragnarsdóttir
Viðar Jónsson
60 ára
Aðalheiður Jóhannsdóttir
Auður Svava Jónsdóttir
Björn Björnsson
Björn Björnsson
Björn Jóhannsson
Czeslaw Tylenda
Einar Ólafsson
Guðni Jónsson
Guðný K.S. Tómasdóttir
Guðrún Eysteinsdóttir
Karitas I. Jóhannsdóttir
Óskar Bjarnason
Sigríður S. Sæmundsdóttir
Unnur Hreinsdóttir
Þorbjörn Helgi Stefánsson
Þórdís S. Karlsdóttir
50 ára
Aðalheiður Gylfadóttir
Alda Jenny Rögnvaldsdóttir
Guðmundur Jónsson
Hannes Þ. Guðrúnarson
Karl Örvarsson
Rannveig H. Ásgeirsdóttir
Sigríður Guðmundsdóttir
Sigurður Kristjánsson
Van Dinh Nguyen
Zoran Daníel Ljubicic
40 ára
Árdís Hulda Stefánsdóttir
Bergdís Finnbogadóttir
Björn Stefán Björnsson
Einar Árni Jóhannsson
Gunnlaugur Róbertsson
Jón Á. Hallgrímsson
Sean Pio McGinley
Sigurveig Ágústsdóttir
Svanhvít Ljósbj. Guð-
mundsdóttir
Una Tone Bjarnardóttir
Vannessa Graas
30 ára
Anton Bjarni Ingibjartsson
Dániel Kovács-Herde
Egill Sigþórsson
Guðmundur K. Bjarnason
Helga K. Guðmundsdóttir
Magnea Guðmundsdóttir
Marek Tomasz Garwol
Sigurður V. Jóhannsson
Sonja Ósk Georgsdóttir
Stefán Hjartarson
Tinna Hrund Gunnarsdóttir
Tinna Rut Traustadóttir
Til hamingju með daginn
HAPPY HOUR
alla daga frá 16
- 18
Argentína steikhús | Barónsstíg 11 | 101 Reykjavík | Sími 551 9555 | salur@argentina.is | argentina.is
alvöru steik
Borðapantanir
551 9555
salur@argentina.is