Morgunblaðið - 07.01.2017, Page 51

Morgunblaðið - 07.01.2017, Page 51
DÆGRADVÖL 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú dýrkar einhvern og langar mjög að sú dýrkun sé endurgoldin. En í kvöld er stemmningin eins og við matarborðið hjá góðum vini. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú er jafn svalur og agúrka, svo það er erfitt fyrir fólk að vita að í raun líður þér eins og súrri gúrku. Gættu þess vel að enginn misnoti gestrisni þína. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Góðir straumar gærdagsins fljóta áfram inn í daginn í dag. Hins vegar er tals- vert af verkefnum sem hvílir á þér. Gerðu bara það sem þú getur og mæltu þér mót við vini á morgun. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Eru engar lausnir í sjónmáli? Með því að hreinsa af borðinu býrðu til pláss fyrir eitt- hvað nýtt. Skoðanaskipti eru eðlileg ef allrar kurteisi er gætt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Nú ætti fjárhagurinn að leyfa fjárfest- ingu fyrir framtíðina. Ekki er þó gott að fram- kvæma nema að vel íhuguðu máli. Reyndu því að eyða tíma úti í náttúrunni, lestu bók eða farðu í gönguferð til að tæma hugann og hugsa málið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú leitar nýs umhverfis og uppgötvar margar skemmtilegar krókaleiðir í lífinu. Staðreyndirnar einar eiga að gilda. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú finnur að öllum líkindum til árásar- girni vegna peninga í dag. Njóttu samræðna og samvista við fjölskylduna. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þig langar til að hafa muni er tengjast fortíðinni í kringum þig. Þú ert svo upptekinn við að sinna öðrum að þú manst ekki hvað þú ætlar að gera sjálfur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú sérð ekki fram úr verkefnum og veist ekki þitt rjúkandi ráð. Forðastu slæmu afleiðingarnar með því að fara vel með tímann og setja mörk í félagslífinu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Viðleitni þín til þess að fram- kvæma eitthvað í hópi eða samstarfi við aðra verður stöðvuð tímabundið. Láttu það þó ekki eyðileggja fyrir þér daginn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það eina sem stendur í vegi fyrir þér og manneskjunni sem þú vilt verða er einn ávani eða kannski tveir. Misskilninginn má sennilega rekja til þess að hvorugt ykkar hefur fulla yfirsýn yfir málið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu ekki hugfallast þótt allt virðist ganga á afturfótunum þessa dagana. Hjarta þitt er stórt og galopið. Víkverji hlustar gjarnan á Morgun-útvarpið á Rás 2 og hefur oft gaman af. Guðrún Sóley, Sigmar og Aðalsteinn eru ágætir stjórnendur. Víkverji varð þó fyrir miklum von- brigðum með viðtal í vikunni. Þar var maður að halda því fram þvert á rannsóknir að sykurneysla tengdist bara ekkert offitufaraldrinum í þjóð- félaginu. Viðmælandinn lýsti því yfir að hann væri bara að koma að þessu sem maður út í bæ og mótmæltu spyrlar því ekki. Viðmælandinn reyndist vera Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. x x x Hann veit áreiðanlega sínu viti ener ekki sérfræðingur í þessu málefni eins og sérfræðingar hjá Embætti landlæknis. Staðreyndin er sú að sykraðir gos- og svaladrykkir vega þyngst í sykurneyslunni, en rúmlega þriðjungur af viðbættum sykri í fæði landsmanna kemur úr þessum vörum. x x x Eitt mest lesna viðtal ársins áGuardian var við vísindamann- inn, sjónvarpsmanninn og fyrrver- andi poppstjörnuna Brian Cox. Hann ræddi ríkjandi viðhorf í Bretlandi í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsl- una, sem byggðist á því að gera lítið úr sérfræðingum og fagfólki. x x x Þetta er rangt og varðar leiðinabeint aftur í hellinn. Við kom- umst úr hellinum og inn í nútíma sið- menningum í gegnum það að skilja og hugsa. Það gerðist ekki með tilfinn- ingu. Það að vera sérfræðingur þýðir ekki að þú hafir hagsmuni af ein- hverju, það þýðir að þú eyðir ævinni í að reyna að skilja eitthvað. Þú hefur ekki endilega rétt fyrir þér en það er mun líklegra að þú hafir rétt fyrir þér en sá sem hefur ekki eytt ævi sinni í rannsóknir á þessu málefni,“ sagði Cox í viðtalinu. x x x Stjórnendur Morgunútvarpsinsmættu hafa þetta í huga í vali sínu á viðmælendum fyrir þáttinn. Rödd hagsmunaaðila getur ekki feng- ið jafnmikið vægi og sérfræðingarnir. vikverji@mbl.is Víkverji En mín gæði eru það að vera nálægt Guði, ég gerði Drottin að athvarfi mínu og segi frá öllum verkum þínum. (Sálm. 73:28) 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Síðasta laugardagsgáta birtist17. desember og var sem endranær eftir Guðmund Arnfinns- son, en hlé var gert yfir hátíðarnar þar sem aðfangadag og gaml- ársdag bar upp á laugardag. En hér er sem sé gátan: Í glímunni er hann afar fær. Eiginkonunni sjálfsagt kær. Í skákinni oft er eitrað peð. Akurinn slær og hirðir féð. Árni Blöndal svarar: Í bændaglímu er bestur sá. Bónda sinn konur flestar dá. Í eitruðu peði lá endirinn og Ólafur bóndi sló akurinn. Harpa á Hjarðarfelli er með þessa lausn: Bóndi eftir glímuflokki fer. Frúnni jafnan húsbóndinn er kær. Til varnar fyrir bóndapeðið ber. Bóndi hirðir dýr og grasið slær. Guðrún Bjarnadóttir á þessa lausn: Hún ber af í bændaglímu, við bóndann ætlar að skilja, í skák banar bændum, án grímu, sjálf, bóndinn, vill taðið mylja. Helgi R. Einarsson leysir gátuna þannig: Í bændaglímu bestur er, á brúði forðum góndi, peð í skák, um skepnur sér. Skömmin virðist bóndi. Þannig skýrir Guðmundur gát- una: Bóndi í glímunni bilar síst. Bónda sinn konan elskar víst. Bóndi fær umbreyst í eitrað peð. Akur slær bóndi og hirðir féð. Og síðan er limran: „Hún Gunnhildur mín er grálynd, geðstirð úr hófi og þrálynd,“ segir hann Björn, bóndi á Tjörn, „og nú eru veður öll válynd.“ Hér kemur svo ný gáta eftir Guð- mund: Bráðum fyrir birtu dags burtu skuggar flýja fer ég þá á fætur strax og flétta gátu nýja: Nafnar hér fjórir fræknir: Forstjóri, dýralæknir. Vígslubiskup hinn besti. Bringusundskappinn mesti. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Nískur bóndi er barn síns fjár Í klípu „FRÆNKA ÞÍN ER AÐ GIFTA SIG. Í STAÐINN FYRIR GJAFIR BIÐJA ÞAU UM REIÐUFÉ – ÞAÐ ER AUÐVELDARA AÐ SKIPTA ÞVÍ EF HLUTIRNIR GANGA EKKI UPP.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞETTA LÍTUR BETUR ÚT Í HINU HERBERGINU.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar ekkert getur dregið úr þér. ÞÚ LOFAÐIR FYRIR MÖRGUM ÁRUM AÐ ÞÚ MYNDIR FÆRA VON OG BREYTINGAR Í LÍF MITT! OG HEF ÉG GERT ÞAÐ? JÁ! Á HVERJUM DEGI VONAST ÉG EFTIR ÞVÍ AÐ ÞÚ BREYTIST! ÉG VIL AÐ ÞIÐ HITTIÐ NÝJA GÆLUDÝRIÐ MITT, „ÍVAR“… ÍVAR ER ÍS Í FORMI! GÓÐUR STRÁKUR, ÍVAR!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.