Fréttablaðið - 02.09.2017, Side 2
Veður
Í dag verða sunnan 5 til 13 metrar á
sekúndu, rigning og hiti 10 til 14 stig.
Á Austurlandi verður þurrt framan
af degi og hitinn gæti náð í 20 stig,
en síðan mun fara að rigna þar og
kólna. sjá síðu 46
Fimm stjórnarskrár til sýnis í fyrsta sinn
Upprunalegar útgáfur, afrit og uppköst af fimm íslenskum stjórnarskrám eru nú til sýnis opinberlega í fyrsta skipti. Þær eru hluti af listasýningunni
Cycle í Gerðarsafni og verða þar út mánuðinn. Verkið „Stjórnarskrá er ferli“ er eftir listamennina Libiu Castro og Ólaf Ólafsson. Fréttablaðið/anton brink
Rúm 63% heimsótt Costco
já
Nei, en gæti hugsað mér það
Nei, og ætla ekki að versla þar
Hefur þú verslað í
Costco í Garðabæ?
63,4%
28,3%
8,30%
NÝ OG BETRI
VERSLUN Í
HAGKAUP
SKEIFUNNI!
KRINGLUNNI 2. HÆÐ - HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
VeRsluN Rétt tæplega tveir af
hverjum þremur Íslendingum hafa
verslað í Costco, samkvæmt niður-
stöðum skoðanakönnunar Frétta-
blaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Niður-
stöðurnar sýna að rúm 63 prósent
hafa verslað þar, rúm 28 prósent
gætu hugsað sér að gera það en átta
prósent hafa ekki farið í Costco og
ætla ekki að versla þar.
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu, segir niðurstöðurnar
í takti við sölu áskriftarkorta fyrir-
tækisins.
„Við vitum hvað þeir eru komnir
með í áskrifendum, um 90 þúsund
áskrifendur, og það eru um 120 til
130 þúsund heimili í landinu. Þann-
ig að þetta er verulegur hluti heim-
ila í landinu sem er kominn með
áskrift þarna,“ segir Andrés.
Fréttablaðið greindi frá því í
byrjun júní að veltan í Costco hefði
verið 32 prósent af heildarveltunni
á dagvörumarkaði á fyrstu dögum
eftir opnun verslunarinnar. Á sama
tíma var hlutdeild allra Bónus-
verslana landsins 28 prósent. Þessar
tölur um markaðshlutdeild voru
byggðar á upplýsingum Meniga um
greiðslukortanotkun. Nýrri upplýs-
ingar hafa ekki verið birtar.
Andrés segir að það vanti
nákvæma mælingu á áhrifum
Costco á samkeppnisaðilana.
„Það er búið að kippa smásölu-
vísitölunni úr sambandi. Hagar
eru hættir að gefa upplýsingar og
Costco gefur ekki upplýsingar.
Þetta er bagalegt og menn vita ekki
hvernig þróunin er frá mánuði til
mánaðar. Menn eru bara að leita
leiða til að bregðast við því en engin
Tíundi hver ætlar ekki
í verslunarferð í Costco
Um 8,3 prósent landsmanna, eða næstum tíundi hver, ætla ekki að versla við
Costco. Næstum tveir af hverjum þremur hafa nú þegar lagt leið sína í Kauptún í
Garðabæ. SVÞ telja bagalegt að ekkert sé vitað um áhrifin á aðrar verslanir.
Verslunin var opnuð í maí og er vel sótt alla daga vikunnar. Fréttablaðið/eyþór
niðurstaða er komin í það ennþá,“
segir Andrés.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar er yngra fólk mun lík-
legra til að hafa verslað í Costco en
þeir sem eldri eru. Þannig hafa 68,5
prósent þeirra sem eru í aldurs-
hópnum 18-49 ára verslað í Costco,
en 56 prósent þeirra sem eru 50 ára
og eldri. Þá eru konur líka líklegri
til að hafa farið í Costco en karlar,
en tæplega 68 prósent kvenna sem
svöruðu segjast hafa farið en ein-
ungis rúmlega 59 prósent karla.
Könnun Fréttablaðsins var gerð
þannig að hringt var í 1.063 manns
í Reykjavík þar til náðist í 791 sam-
kvæmt lagskiptu úrtaki þann 28. og
29. ágúst. Svarhlutfallið var 74,4 pró-
sent og tóku rúm 97 prósent afstöðu
til spurningarinnar.
jonhakon@frettabladid.is
Dómsmál Skipverji á frystitogar-
anum Sigurbjörgu ÓF hefur verið
ákærður fyrir líkamsárás, með því
að hafa í stakkageymslu togarans
slegið annan skipverja hnefahöggi
í andlitið með alvarlegum afleið-
ingum
Í ákæru lögreglustjórans á Norð-
urlandi eystra er því lýst að andlit
fórnarlambsins, sem starfaði sem
kokkur um borð, hafi verið nokkuð
illa leikið eftir atvikið, sem átti sér
stað á síðasta ári í einni veiðiferð
togarans.
Er hinum ákærða gert að sök að
hafa slegið hann í andlitið „með
þeim afleiðngum að hann möl-
brotnaði framan til, utanvert og
aftanvert í hægri kinnskútu“.
Einnig brotnaði hægri augntóft
með verulegri tilfærslu en gera
þurfti aðgerð á brotaþola. – sa
Togarasjómaður
ákærður fyrir að
berja kokkinn
VeðuR „Þetta var næstum því eins
og á Jamaíka,“ segir Kristinn Krist-
mundsson, betur þekktur sem Kiddi
Vídjófluga, íbúi á Egilsstöðum, um
hitametið sem slegið var í bænum
í gær.
Hitinn mældist 26,4 gráður og
aldrei áður hefur svo hár hiti mælst
á landinu í septembermánuði. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu
Íslands var gamla metið sett á Dala-
tanga þann 12. september árið 1949.
Mældust þá 26 gráður á Celsíus.
„Ég ætlaði út úr bænum en tímdi
ekki að fara því veðrið var svo gott.
Þetta var mjög óvænt að fá svona.
Þó ég sé kannski ekki voðalega
gamall, eða jæja, ég er rúmlega sex-
tugur, man ég í fljótu bragði ekki
eftir svona svakalega miklum hita.
Þetta var óstjórnlega gott veður,“
segir Kiddi.
Heitur loftmassi er yfir land-
inu. Þá mælist einnig mikill hiti á
hálendinu norður af Vatnajökli þar
sem jörðin er dökk á lit og hlýnar í
sólinni. Hlýja loftið berst svo þaðan
austur á Hérað.
Áfram er spáð miklum hlýindum
á Austfjörðum og um hádegi í dag er
útlit fyrir sautján stiga hita, skýjað
með köflum og sól. Á sunnudag gæti
hitinn náð nítján stigum.
„Nú er bara að njóta þess að vera
meira úti enda ekki oft sem maður
getur notið þess að
vera í svona góðu
veðri,“ segir Kiddi
Vídjófluga. – hg
Hitamet slegið á
Egilsstöðum
kiddi Vídjó-
fluga, íbúi á
egils-
stöðum.
2 . s e p t e m b e R 2 0 1 7 l A u G A R D A G u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t A b l A ð i ð
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
5
-9
7
E
0
1
D
A
5
-9
6
A
4
1
D
A
5
-9
5
6
8
1
D
A
5
-9
4
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K