Fréttablaðið - 02.09.2017, Page 6

Fréttablaðið - 02.09.2017, Page 6
Hver tími er 60 mínútur og kennt er tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 í leikfimissal Hvassaleitisskóla. Námskeiðið er tólf vikur. Kennari er Birgitta Sveinbjörnsdóttir danskennari. Skráning er hafin á námskeiðið sem hefst þriðjudaginn 12. september kl. 17.30. Upplýsingar og skráning í síma: 899-8669. SUÐRÆN SVEIFLASUÐR N SVEIFLA Suðræn sveifla er skemmtileg líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri. Námskeiðið byggist upp á mjúkri upphitun, latin dönsum eins og Cha Cha, Jive, Salsa og fl., kviðæfingum og góðri slökun. Hver tími er 60 mínútur og kennt er tvisvar í viku á þriðjudögum og fim- mtudögum kl. 17:30 í leikfimissal Hvassaleitisskóla. Einnig verður kennt á miðvikudögum kl. 18:00 og laugardögum kl. 11:00 í Stúdíói Sóleyjar Jóhannsdóttur, Mekka Spa. Kennarar eru Birgitta Sveinbjörnsdóttir danskennari.og Ólöf Björk Björnsdóttir Skráning er hafin á bæði nám- skeiðin sem hefjast þriðjudaginn 11.janúar og miðvikudaginn 12.janúar Upplýsingar og s ing í síma: 899-8669. Suðræn sveifla tileg líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri. Námskeiðið byggist upp á mjúkri upphitun, latin dönsum eins og Cha Cha, Jive, Salsa og fl., kviðæfingum og nidra slökun. Messías í Hörpu 2015 Dómkórinn getur bætt við söngfólki í allar raddir, sér í lagi karlaröddum Spennandi verkefni framundan: Requiem eftir Maurice Duruflé og Gabriel Fauré, Jólatónleikar, utanlandsferð í vor (kórakeppni) og margt fleira Inntökupróf fara fram í Dómkirkjunni 4. og 5. september kl. 18 - 20 Skráning fer fram á netfanginu organisti@domkirkjan.is Nánari upplýsingar hjá kórstjóra Kára Þormar í síma 891 6934 VIÐSKIPTI Bílaumboðið Hekla var rekið með 280 milljóna króna hagn­ aði í fyrra og var afkoman þá 339 milljónum lægri en árið á undan. Tekjur fyrirtækisins jukust milli ára úr 13,9 milljörðum í rétt tæpa sextán milljarða. Rekstrargjöld hækkuðu einnig, eða úr 11,3 millj­ örðum í 13,4 milljarða. Rekstrar­ hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) var í fyrra 326 milljónir samanborið við 627 árið 2015. Hekla er í eigu Riftúns ehf. og Semler Group A/S. Það fyrrnefnda er í eigu forstjórans Friðberts Frið­ bertssonar en Volkswagen í Dan­ mörku á Semler Group. – hg Afkoma Heklu helmingi lakari DÓMSMÁL Aðalmeðferð í máli Thom asar Møller Olsen lauk í gær og er niðurstöðu um framtíð hans að vænta innan fjögurra vikna. Ákæruvaldið telur að átján ára fang­ elsi sé hæfilegt verði hann fundinn sekur. Fyrstur til skýrslugjafar var þýski réttarmeinafræðingurinn Sebastian Kunz. Í vitnisburði sínum fór hann meðal annars yfir niðurstöður krufn­ ingar sinnar á líki brotaþola. Sökum þess, og að verjandi Olsens hefði boðað persónulegar spurningar um heilsufar hinnar látnu, ákvað Krist­ inn Halldórsson dómsformaður að loka þinghaldi á meðan skýrslutaka yfir Kunz fór fram. Næst var hringt til Þýskalands, að menn héldu. Dómtúlkur og vitni ræddu saman en áttu í basli með að skilja hvor annan enda talaði túlkur­ inn þýsku en vitnið svaraði á dönsku. „Þetta er vont mál því dönsku­ kunnátta mín er ekki sú besta,“ sagði dómtúlkurinn Magnús Diðrik Bald­ ursson, sem einnig er skrifstofustjóri Háskóla Íslands. Viðstaddir skelltu síðan upp úr þegar vitnið svaraði á íslensku. Var þar á ferðinni færeyski skipverjinn Niels Heinesen en ekki dr. Mario Darok líkt og menn héldu. „Það gekk í sjálfu sér mjög vel að tala við Thomas allt þar til hann losnaði úr einangrun og fór í opna gæslu. Þá varð ég var við nokkra par­ anoju,“ sagði Sigurður Páll Pálsson geðlæknir. Hann var dómkvaddur til að meta geðheilsu hins ákærða. Var það mat hans að Thomas væri sak­ hæfur en haldinn persónuleikaveilu sem hefði það í för með sér að hann neitaði að horfast í augu við galla í fari sínu. Meðal annarra í vitnastúku í gær má nefna Grím Grímsson, yfirmann miðlægrar rannsóknardeildar LRH, og barþjón á English Pub sem þekkti vel til Nikolajs Olsen. Að skýrslu­ tökum loknum hófst munnlegur málflutningur. „Algjör lágmarksrefsing, sé aðeins horft til dómaframkvæmdar, er átján ára fangelsi,“ sagði Kolbrún Bene­ diktsdóttir aðstoðarhéraðssaksókn­ ari í ræðu sinni. Vísaði hún til þess að yrði hann sakfelldur fyrir manndráp­ ið þýddi það sextán ára fangelsi. Þó væru uppi atvik í málinu sem gætu réttlætt þyngri refsingu. Þá bætti hún við að þumalputtareglan fyrir kíló af kannabisefnum væri mánaðarfang­ elsi. Hér væru kílóin rúmlega 23 og því væri unnt að smyrja tveimur árum á dóminn. Sagði hún að framburður Thom­ asar hefði sífellt tekið breytingum. Á rannsóknarstigi hefði hann ítrekað aðlagað sögu sína þeim gögnum sem honum voru kynnt. Fyrir dómi hefði framburður hans síðan umturnast án nokkurrar sýnilegrar ástæðu. „Það er ekki hægt að byggja á fram­ burði hjá dómi eða lögreglu. Hann er einfaldlega ekki að segja satt,“ sagði Kolbrún. Thomas hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu í málinu. Verjandi hans, Páll Rúnar M. Kristjánsson, telur að vísa beri málinu frá eða sýkna hann ella. Frávísunarkrafan er reist á þeim grunni að svo margar gloppur séu í málinu að í ákæruskjalinu sé ákæru­ valdið að geta í eyðurnar. „Það er nær ómögulegt að taka til varna gegn ákæru sem er orðuð á þennan veg,“ sagði Páll. Sýknukrafan er studd þeim rökum að rannsókn málsins hafi verið svo áfátt að uppi sé réttmætur vafi um það hvort Thomas hafi ráðið Birnu bana eður ei. Þá sé einnig vafi uppi um hvort handtaka sérsveitarmanna og Landhelgisgæslunnar um borð í Polar Nanoq hafi brotið gegn haf­ réttarsamningum. „Að mati ákærða fólu aðgerðirnar í sér brot gegn þjóðréttarlegum skuldbindingum og Mannréttinda­ sáttmála Evrópu. […] Engin skrifleg heimild er um samþykki fánaríkisins fyrir handtöku um borð í skipinu í efnahagslögsögunni,“ sagði Páll. Það væri síðan dómaranna að ákveða hvaða áhrif þessi ólögmæta hand­ taka ætti að hafa. Dóms í málinu er að vænta innan fjögurra vikna. johannoli@frettabladid.is Rannsókn og lögsaga afstýri 18 ára fangelsi Sækjandi telur átján ára fangelsi hæfilega refsingu handa Thomasi Møller Olsen. Verjandi segir lögregluna ekki hafa kannað málið ofan í kjölinn og handtöku hans ólögmæta. Niðurstaða dómara málsins er væntanleg innan fjögurra vikna. Bogi reyndist vera Jón Dómarar í málinu eru alls þrír. Kristinn Halldórs- son er dómsformaður og er áhugavert að fylgjast með svip- brigðum hans á meðan spurningar standa yfir. Hefur hann átt það til að vera kíminn á svip yfir nokkrum spurningum og svörum. Við hlið hans sitja Ástríður Grímsdóttir og Jón Höskulds- son. Leið mistök höfðu það í för með sér að í umfjöllunum var Jón ítrekað kallaður Bogi Hjálmtýsson en Bogi kom að málinu á fyrri stigum. Jón hafði setið þögull öll réttar- höldin en mælti í fyrsta sinni í gær. „Það er Jón Höskulds- son dómari sem spyr,“ sagði Jón áður en hann spurði Sigurð Pál Pálsson hvort sálfræðipróf, sem hann óskaði eftir, hefði verið nauðsyn- legur þáttur í mati hans. Vaknaði þá fjölmiðlafólk upp við vondan draum enda hét Jón ekki Bogi. Beðist er afsökunar á rangnefni. Hanna Lára Helgadóttir, réttargæslumaður foreldra Birnu, og Kolbrún Benediktsdóttir ræða saman. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM RÉTTAÐ YFIR THOMASI OLSEN Þegar hann lendir í að þurfa að segja já við einhverju sem hann vill ekki kannast við, þá man hann ekki. […] Hann er óeðlilega eðlilegur. Sigurður Páll Páls- son geðlæknir Hann hafði orð á [slæmri meðferð] við lögreglufulltrúa. Hann kvartaði ekki beint yfir meðferð heldur hvernig var talað við hann. Grímur Grímsson, yfirmaður í rann- sóknardeild LRH KENÍA Uhuru Kenyatta, sitjandi for­ seti Kenía og sigurvegari ný afstaðinna en ógildra forsetakosninga, sagðist í gær virða niðurstöðu hæstaréttar landsins um að ógilda kosningarnar. Hæstiréttur kvað upp þann dóm sinn í gær að framkvæmd kosninganna hefði ekki staðist stjórnarskrá. Raila Odinga, sem laut í lægra haldi fyrir Kenyatta í kosningunum ógildu, sagði í gær að hann hefði unnið kosningarnar og myndi vinna þær næstu, sem haldnar verða innan tveggja mánaða. „Það er ljóst að raunverulegar niðurstöður kosn­ inganna voru aldrei birtar almenn­ ingi, einhver verður að axla ábyrgð,“ sagði Odinga. – þea Forseti Kenía virðir ógildingu UMHVERFISMÁL Starfsemi kísilvers United Silicon í Helguvík verður stöðvuð á grundvelli laga um holl­ ustuhætti og mengunarvarnir. Umhverfisstofnun tilkynnti fyrir­ tækinu þessa ákvörðun sína með bréfi í gærkvöldi. Kristín Linda Árnadóttir, for­ stjóri Umhverfisstofnunar, segir rekstraraðila verða að taka næstu skref. Umhverfisstofnun hafi sett fram ítarlegar kröfur um úrbætur. „Það er ljóst að r e k s t r a r a ð i l a r þurfa skriflega h e i m i l d f r á s t o f n u n i n n i að loknum fullnægjandi endurbótum og ítarlegu mati á þeim til þess að mega hefja starf­ semi að nýju,“ segir Kristín. Umhverfisstofnun tilkynnti áform sín um að stöðva starfsem­ ina þann 23. ágúst síðastliðinn og var rekstraraðila veittur frestur til 30. ágúst til að skila athugasemdum við áformin og hann fékk síðan við­ bótarfrest til 31. ágúst. Í bréfi sem United Silicon sendi Umhverfis­ stofnun segir að vegna skamms tíma til andsvara hafi tímasett úrbótaáætlun ekki verið endanlega tilbúin.  – þea Skellt í lás hjá verksmiðju United Silicon í Helguvík 2 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 1 1 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D A 5 -B F 6 0 1 D A 5 -B E 2 4 1 D A 5 -B C E 8 1 D A 5 -B B A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 2 0 s _ 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.