Fréttablaðið - 02.09.2017, Page 8
Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og
heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu.
Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu
og ágætan hagnað.
Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða
möguleika á veltuaukningu bæði í verslun,
heildverslun og verktöku.
Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða
samhenta fjölskyldu.
Fyrirtæki með
mikla möguleika
Kvennakórinn Kyrjurnar getur bætt við sig nýjum röddum!
Látið drauminn rætast!
Starfið hefst miðvikudaginn 13. september kl. 19:30
í Friðrikskapellu við Valsheimilið að Hlíðarenda.
Lagaval er fjölbreytt og skemmtilegt. Söngferð erlendis framundan!
Kórstjóri er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir, söngkennari og söngkona.
Upplýsingar veita Sigurbjörg gsm. 865 55 03 og Petra gsm. 897 53 23.
StjórnSýSla Þorsteinn Víglundsson
félagsmálaráðherra ætlar ekki að
grípa fram fyrir hendurnar á Barna-
verndarstofu vegna meðferðar-
heimilisins Háholts. Héraðsfrétta-
vefurinn Feykir greindi frá því að
þjónustusamningur Barnaverndar-
stofu við rekstraraðila heimilisins
hafi runnið út um mánaðamótin en
starfsemin lagðist af í lok júní.
Vilji er fyrir því meðal sveitar-
félagsins og fyrrverandi starfs-
manna að halda rekstrinum áfram.
Fyrrverandi forstöðumenn eru aftur
á móti horfnir til annarra starfa.
Steinunn Þóra Árnadóttir, þing-
maður VG, hefur farið fram á fund í
velferðarnefnd Alþingis vegna mál-
efna Háholts og vill að á fundinn
verði boðaður Þorsteinn Víglunds-
son félagsmálaráðherra, fulltrúi
Barnaverndarstofu og starfsmenn
Háholts.
„Það er Barnaverndarstofu að
tryggja rekstur þeirra úrræða sem
hún telur þörf á hverju sinni í
tengslum við þennan mikilvæga
málaflokk,“ segir Þorsteinn Víg-
lundsson.
Ráðherrann segir að afstaða
Barnaverndarstofu í málinu hafi
verið skýr og ráðuneytinu verið gerð
grein fyrir því að sú starfsemi sem
rekin væri í Háholti nýttist Barna-
verndarstofu ekki sem skyldi og rétt-
lætti ekki árlegan rekstrarkostnað
heimilisins. „Þetta væri liður í ára-
langri þróun þar sem aukin áhersla
hefur verið lögð á það af hálfu barna-
verndaryfirvalda að veita þjónustu
nær heimilum viðkomandi ein-
staklinga,“ segir Þorsteinn. Stefnan
sé að reyna að forðast vistunarúrræði
í lengstu lög og í öðru lagi, ef vistunar
er algjörlega þörf, séu þau nálægt
heimili viðkomandi.
„Ég hef hitt fulltrúa sveitarfélags-
ins og hef sagt það alveg skýrt að
málið væri hjá Barnaverndarstofu
og rök Barnaverndarstofu fyrir
lokun þess virðast vera skýr og
greinargóð og ég hef ekki í hyggju
að grípa inn í það ferli,“ segir Þor-
steinn. Það sé ekki góð stjórnsýsla
að ráðherra grípi inn í einstaka
rekstrartengdar ákvarðanir Barna-
verndarstofu eða annarra stofnana
sem undir ráðuneytið heyra. Hins
vegar muni hann ræða málið á fundi
velferðarnefndar, verði þess óskað.
Árið 2014 samdi þáverandi vel-
ferðarráðherra, Eygló Harðardóttir,
um áframhaldandi rekstur Háholts,
þótt Barnaverndarstofa hefði þá
þegar komist að þeirri niðurstöðu
að úrræðið nýttist ekki.
jonhakon@frettabladid.is
Ráðherra ætlar ekki að
stöðva lokun Háholts
Félagsmálaráðherra ætlar að leyfa ákvörðun Barnaverndarstofu varðandi þjón-
ustusamning við Háholt í Skagafirði að standa. Starfsmenn og sveitarstjórn vilja
reka heimilið áfram. Þingmaður vill að fundað verði um málið í velferðarnefnd.
Meðferðarheimilið Háholt í Skagafirði var opnað árið 1999 og var rekið með þjónustusamningi. Fréttablaðið/GVa
Það er Barnavernd-
arstofu að tryggja
rekstur þeirra úrræða sem
hún telur þörf á hverju sinni
í tengslum við þennan
mikilvæga
málaflokk.
Þorsteinn
Víglundsson,
velferðarráðherra
StjórnSýSla „Um þennan gjörning
veit ég ekkert,“ segir Haraldur Bene-
diktsson, formaður fjárlaganefndar,
um afhendingu fjármálaráðherra á
íþróttamannvirkjum við Laugarvatn
til sveitarfélagsins Bláskógabyggðar,
sem sagt var frá í fréttum Stöðvar 2
í gær.
„Nei, ég skrollaði bara yfir frétt-
irnar í morgun og sá að hann var
að undirrita einhvern gjörning við
sveitarfélagið þarna,“ segir Haraldur.
Samkvæmt 40. gr. stjórnarskrár-
innar verður eignum ríkisins ekki
ráðstafað nema með lagaheimild.
Aðspurður segist Haraldur ekki muna
hvort heimild til ráðstöfunar þessara
eigna hafi verið veitt í fjárlögum, en
segir ekki óþekkt að slík heimild sé
veitt eftir á og þá í fjáraukalögum.
„Það er langur vegur frá því að
það sé hefðbundið að sækja svona
heimild í fjáraukalögum, ég er ekki
einu sinni viss um að það standist,“
segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir,
þingmaður og fulltrúi VG í fjárlaga-
nefnd Alþingis.
Í 5. gr. fjárlaga fyrir 2017 er fjár-
mála- og efnahagsráðherra veitt
heimild til að „selja eignarhlut
ríkisins í fasteignum framhalds- og
sérskóla sem ekki eru lengur not-
aðar sem slíkar, og þykja ekki henta
Vissi ekki af gjafagjörningi Benedikts
benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra gaf bláskógabyggð íþróttamannvirki
við laugarvatn sem voru í eigu ríkisins. Fréttablaðið/Páll MaGnúS SkúlaSon
til skólahalds, og verja andvirðinu
til endurbóta á skólahúsnæði í eigu
ríkisins“.
„Þetta er með fyrirvara um sam-
þykki Alþingis og verður væntanlega
borið upp í fjáraukalögum í haust,“
segir Benedikt Jóhannesson fjár-
málaráðherra.
Ráðherra segir ekki óalgengt að
samþykkis Alþingis sé aflað eftir á í
svona tilvikum. „Reglan er að svona
heimildir eru settar inn með fjár-
lögum og eru þá með í fjárlögum
oft árum saman,“ segir Benedikt og
bætir við: „Bara svona heimild sem
einhverjum dettur í hug að setja inn,
ef ske kynni.“
Ráðherra segir að þó málið hafi
ekki verið rætt formlega við fjár-
laganefnd hafi nokkrir nefndarmenn
vitað af málinu, enda hafi það tví-
vegis verið kynnt í ríkisstjórn.
Um verðmat eignanna segir ráð-
herra erfitt að segja. Þá sé viðhalds-
þörf orðin mikil á þessum húsum og
samningurinn því í raun mjög hag-
stæður fyrir báða aðila. – aá
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Haraldur
benediktsson,
formaður fjár-
laganefndar.
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ BÓKA Á NETINU • BORGARLEIKHUS.IS
ÁSKRIFTARKORT
BORGARLEIKHÚSSINS
2 . S e p t e m b e r 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
5
-D
3
2
0
1
D
A
5
-D
1
E
4
1
D
A
5
-D
0
A
8
1
D
A
5
-C
F
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K