Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 30
Dr. Ólafur Ævarsson g e ðlæknir segir mikil vægt að áður en lagst er í skipu-lagningu á daglegu lífi þurfi fólk að
greina álagsþætti í sínu lífi. „Stund-
um er álag ekki endilega tengt tíma-
pressu. Álagspunktarnir geta verið
lúmskir og jafnvel tengst einhverju
sem er jákvætt. Fólk þarf bara að
auka meðvitund um eigin líðan.
Hvernig okkur líður og hvernig við
bregðumst við. Sumir fresta öllu.
Sumir taka allt að sér. Sumum finnst
þeir ekki eiga að leita sér stuðnings
og sumir hafa áhyggjur af hlutum
sem þeir geta ekki breytt. Öll höfum
við ákveðið hegðunarmynstur sem
við þurfum að greina hjá okkur til
þess að verja okkur streitu,“ segir
Ólafur.
Hann minnir á að streita sé eðli-
legt viðbragð en fólk þurfi að varast
Rútínan er skollin á með tilheyrandi púslu-
spili. Húsverkin bíða eftir langan vinnudag,
nemendur kikna undan álagi, skutlið er eilíf
bölvun sem hvílir á barnafjölskyldum og
hvenær á eiginlega að fara í ræktina?
Ráð í eldamennsku frá Röggu nagla
l Hentu haug af krydduðum eða
marineruðum kjúlla, svíni, nauti,
kalkún á grillið, á pönnuna eða í
ofn. Þá áttu tilbúið kjötmeti fyrir
snarholla máltíð sem má skreyta
með alls konar gúmmulaði með-
læti. Eins má frysta eldað kjöt
og snara út um morguninn fyrir
kvöldmatinn.
l Steikja og krydda 1-2 pakka af
mögru nautahakki. Þá þarf bara
að steikja grænmeti, slurka tóm-
atpúrru og gómsætt bol ognese
er klárt. Eða elda heilan pott
af gómsætri hakkgrýtu. Hvort
tveggja hentar vel til frystingar.
l Hægelda 1-2 kg af nautainnralæri
og þú átt roast beef í bunkum.
l Ef þú ert grænkeri geturðu
eldað stóran pott af gómsætum
bauna- eða grænmetisrétti til
að eiga fyrir næstu daga. Eins
er Oumph! sojakjöt fljótlegast í
heimi. 1-2 mínútur á pönnu og
máltíðin klár.
l Sjóða haug af hrísgrjónum,
kínóa, byggi, cous cous og
geyma í ísskáp. Til dæmis villt
hrísgrjónablanda frá Himneskri
hollustu. Þá hendirðu einfald-
lega grjónum á disk, inn í örra og
málið er dautt. Má einnig frysta.
l Baka, sjóða eða grilla haug af
kartöflum/sætum kartöflum í
einu. Geymast í 3-4 daga í ísskáp.
Eru fínar kaldar eða upphitaðar.
Má krydda eftir „smag og behag“.
l Enga stund tekur að búa til tún-
fisksalat sem má svo geyma í
Sist ema nestisboxi í vinnunni.
Svo slurkarðu vænum skammti
ofan á hrökkbrauð, hrísköku,
gróft brauð og voila, fín millimál-
tíð með prótínum og kolvetnum.
l Eyddu tveimur mínútum á
kvöldin í að setja haframjöl í
pott ásamt salti, kanil, ávöxtum,
hnetum, sírópi, bragðdropum
og öllu sem kitlar pinnann.
Svo slurk arðu bara vatni út í
morguninn eftir og grautur er
klár á 5 mínútum.
l Ertu tímabundnari en kanslari
Þýskalands? Eldaðu grautinn á
kvöldin eða búðu til næturgraut
eða grautartriffli.
Fjölmargar gómsætar hafragrautar
uppskriftir á www.ragganagli.com. Það
eina sem þú þarft í morgunsárið er að
opna ísskápinn vopnaður skeið.
sjúklega streitu og þekkja merki
hennar. Hafa innsýn í eigin hegð-
unarmynstur.
Í of háum gír
Hann segir marga bregðast við
streitu með því að gera óþarflega
mikið. „Þá fer fólk í ofvirkni, í ein-
hvern dugnað sem því er ekki holl-
ur. Gerir of mikið í ræktinni, tekur
að sér of mörg verkefni, drekkur of
mikið. Allt í of háum gír,“ segir Ólaf-
ur og tekur dæmi af tveimur ólíkum
einstaklingum. „Hann Gunnar getur
ekki klofað yfir óreiðuna í forstof-
unni án þess að laga til. Eftir það fer
hann beint í þvottahúsið og stingur
í vél. Verkefnalistinn lengist bara
hjá Gunnari og það er löng leiðin
fyrir hann að hvílast. En svo er það
hún Sigga sem klofar yfir óreiðuna,
kveikir á kerti og dimmir ljósin.“
Að klofa yfir draslið
Ef við hvílum okkur ekki, klofum
ekki yfir draslið stundum, þá lend-
um við í óheppilegum mynstrum,
bendir Ólafur á. „Fólk þarf að hvíl-
ast. Ef fólk fær ekki hvíld þá hættir
heilinn að starfa rétt. Þá hættir fólk
að geta einbeitt sér, verður dapurt,
kvíðið og skapvont. Besta leiðin er
að venja sig á að liggja í leti, gæta
þess að fá nægan svefn. Fólk getur
tekið fleiri pásur yfir daginn í vinnu.
En svo er reyndar góð hvíld í því að
hreyfa sig og gera eitthvað skemmti-
legt,“ segir Ólafur og bendir á að
hvíld sé bæði líkama og huga nauð-
synleg. Það þurfi fólk að taka með í
reikninginn þegar það skipuleggur
rútínu vetrarins.
Allt smálegt afgreitt strax
Snorri Stefánsson lögfræðingur er
fjögurra barna faðir, unnusta hans
er Líf Magneudóttir, forseti borgar-
stjórnar. Þau búa í Vesturbænum og
skipta gróft á milli sín verkefnum og
ábyrgð. „Það eina sem er virkilega
fast er þrifin og eldamennskan. Við
þrífum alltaf á sunnudagsmorgn-
um klukkan 10 og ég elda nánast
öll kvöld. Annars er byggt á grófri
skiptingu verkefna og ábyrgðar.
Mér finnst skipta máli að fram-
kvæma allt smálegt strax. Það gerir
allt annað einfaldara,“ segir Snorri.
Skutlið hefur ekki yfirtekið líf fjöl-
skyldunnar þar sem starfsfólk frí-
stundaheimilisins fylgir börnunum
í KR í íþróttir. „Enn sem komið er
dugar það frekar vel,“ segir Snorri.
Öll börnin eru í fæði í skólanum
svo nestisundirbúningur er í lág-
marki. Það reynir helst á skipulags-
gáfuna að hafa til fatnað á leikskóla
í byrjun viku en um tíma voru þrjú
börn þeirra öll á sama tíma í leik-
skóla. „Það var frekar óskemmtilegt
að vera með þrjú börn á leikskóla,
það kallaði á heilmikla fataflutninga
sem þurftu að útfærast á sunnudags-
kvöldum. Iðulega gleymdist eitt-
hvað. Nú er skólinn svo stutt frá að
þetta gengur yfirleitt mjög vel.“
Snorra finnst betra að sjá alfarið
Leyndarmál
hinna
skipulögðu
Mundir þú eftir að
bursta og skola í morgun?
GUM eru hágæða tannvörur
tannlæk
nar
mæla m
eð
GUM
tannvör
um
... fæst í næsta apóteki
og helstu stórmörkuðum
allar upplýsingar
á www.icecare.is
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
um eldamennskuna. Það einfaldi
málin. „Það er betra að hafa þetta á
einni hendi svo innkaupin og skipu-
lagið fari ekki í rugl. Mér finnst best
að elda yfir sexfréttunum svo ég
þurfi ekki að horfa á sjónvarps-
fréttir.“
Fer snemma í ræktina
Snorra reynist vel að stunda lík-
amsrækt snemma á morgnana til
þess að missa ekki úr. „Ég fer hálf-
sjö tvisvar í viku. Það truflar engan
nema mig sem þarf að fara aðeins
fyrr að sofa. Mér finnst aðalmálið
vera að hafa fastan tíma og gefa sér
aldrei frí. Svo reyni ég að stela hálf-
tíma eða svo eftir vinnu eða um
helgar til þess að fara út að hlaupa.
Það er nú samt eiginlega fyrst þegar
börnin eru hætt að vera smábörn
sem ég hef átt möguleika á að ná
árangri í ræktinni. Ef árangur skyldi
kalla.“
Gæði eru betri en magn í námi
Sigrún Ingibjörg Gísladóttir lög-
fræðingur starfar hjá Rétti lögfræði-
stofu og lærði í Harvard-háskóla
í Bandaríkjunum. „Ég held það
skipti mestu máli að setja sér raun-
hæf markmið og ekki ætla sér að
læra allan sólarhringinn. Gæði eru
betri en magn í mínum huga þegar
kemur að lærdómi, þótt auðvitað
taki mislangan tíma að meðtaka
efni sem er útgangspunkturinn.
Maður græðir voða takmarkað á því
að sitja tímunum saman og stara á
bækurnar ef einbeitingin er ekki til
staðar. Þá er betra að sinna áhuga-
málum og leyfa sér að hugsa ekkert
um lærdóm á meðan og mæta svo af
fullum hug í lærdóminn þess á milli.
Síðan, þegar vel liggur á manni þarf
að nýta þann tíma til hins ýtrasta og
vinna sér í haginn. Og umfram allt ef
planið gengur ekki eftir; þá þarf að
aðlaga það!“
Ekki lært utanbókar í Harvard
Sigrún Ingibjörg segir að í Harvard
hafi verið minna um utanbókarlær-
dóm. Það hafi verið hvetjandi. „Þess
í stað skipti öllu máli að skilja efnið
og geta rökrætt það frá mörgum
hliðum. Það vill enginn gera sig að
fífli í tíma svo ég fór ósjálfrátt að
lesa efnið öðruvísi, hugsa út í hverja
staðhæfingu og velta fyrir mér hvort
ég væri sammála henni, hver rökin
væru gegn henni og svo framvegis,
ekki bara „læra hana“ utan að eins
og ég hafði ef til vill gert of mikið af
áður. Síðan komst maður ekki hjá
því að ræða efnið í þaula í tímum
og fyrir vikið skildi ég efnið betur
og mundi það til lengri tíma,“ segir
Sigrún Ingibjörg.
Gott að fækka skrefunum
Ragnheiður Þórðardóttir, sál-
fræðingur og líkamsræktarþjálfari,
lumar á mörgum þjóðþrifaráðum
þegar kemur að því að skipuleggja
hollan lífsstíl. Eins og Ólafur Ævars-
son nefnir þá er mikilvægt að sleppa
ekki hreyfingunni. Ráð Ragnhildar,
eða Röggu nagla eins og hún er jafn-
an kölluð, miða að því að auðvelda
holla hætti í hreyfingu og mataræði.
„Þegar við erum stressuð, pirruð
og þreytt í hungurörvæntingu eftir
langan vinnudag er viljinn til að
útbúa hollan snæðing frá grunni
langt niðri í tojlettinu. Þú gerir það
sem er auðveldast sem oftar en
ekki er teikavei eða örbylgjupizza.
Hannaðu umhverfið þitt þannig að
heilsuhegðun verði aðgengileg og
fljótleg. Byrjaðu á að fækka skref-
unum í átt að góðum venjum eins og
hollri máltíð,“ segir Ragga og segir
best að elda mikið magn tvisvar í
viku.
„Eldaðu mikið magn á sunnu-
dögum og aftur á miðvikudögum
og heilsumelurinn innra með þér
verður þér ævinlega þakklátur eftir
langan vinnudag.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
Sigrún Ingibjörg Gísladóttir lög-
fræðingur lærði í Harvard.
Snorri Stefánsson segir þrif og
eldamennsku í föstum skorðum.
Ólafur Ævarsson geðlæknir segir
fólk þurfa að greina vel álagsþætti.
2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r30 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
5
-B
0
9
0
1
D
A
5
-A
F
5
4
1
D
A
5
-A
E
1
8
1
D
A
5
-A
C
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K