Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 58
Vallaskóli auglýsir eftir
þroskaþjálfa, sérkennara og
stuðningsfulltrúa
Laus er til umsóknar 100% staða þroskaþjálfa og 100%
staða stuðningsfulltrúa á yngsta stigi við Vallaskóla á
Selfossi. Ennfremur er laus tímabundin 100% staða
sérkennara vegna afleysinga skólaárið 2017-2018.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Þroskaþjálfi og sérkennari
Leitað er að einstaklingum með menntun á sviði þroska-
þjálfa annars vegar og sérkennslu hins vegar. Umsækjandi
þarf að hafa góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í
mannlegum samskiptum. Reynsla af teymisvinnu og áhugi
á þróunarstarfi eru mikilvægir eiginleikar.
Stuðningsfulltrúi á yngsta stigi
Stuðningsfulltrúi er kennara til aðstoðar við að sinna
einum eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð í
skólanum og á skólavistun. Leitað er að einstaklingi með
ríka samstarfs- og samskiptahæfileika. Uppeldismenntun
sem nýtist í starfinu er kostur.
Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og
umsagnaraðilum sendist á Þorvald H. Gunnarsson skóla-
stjóra á netfangið thorvaldur@vallaskoli.is.
Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2017.
Viðamiklar upplýsingar um skólann er að finna á vefslóð-
inni: www.vallaskoli.is . Störfin henta jafnt körlum sem
konum. Launakjör fara eftir kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Verkfræðingur
á hönnunardeild
Vegagerðin auglýsir eftir byggingarverkfræðingi á hönnunardeild í Reykjavík. Um er að
ræða fullt starf við hönnun brúa. Á hönnunardeild vinna um 18 manns við ýmis hönnunar-,
þróunar- og rannsóknarverkefni, sem tengjast umferðarmannvirkjum.
Við erum að leita eftir verkfræðingi sem hefur áhuga á að takast á við krefjandi verkefni
á sínu fagsviði frá frumstigum hönnunar til framkvæmda. Um er að ræða spennandi starf
við hönnun brúa.
Starfssvið
• Vinna við hönnun brúa
• Vinna við verkefnastjórn hönnunar
• Verkefni tengd viðhaldi brúa
• Þátttaka í rannsóknarverkefnum
tengdum brúarmannvirkjum
Menntunar- og hæfniskröfur
• Masterspróf í byggingarverkfræði, með áherslu á burðarvirki
• Þekking og reynsla í notkun teikni- og hönnunarforrita
s.s. AutoCad, Revit, SAP2000,CSI Bridge
• Þekking og reynsla við hönnun brúa er æskileg
• Góðir samskiptahæfileikar
• Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
• Frumkvæði og faglegur metnaður
• Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
• Góð íslenskukunnátta
• Kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2017. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið
starf@vegagerdin.is. Umsókninni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Valur Guðmundsson, forstöðumaður
hönnunardeildar (gudmundur.v.gudmundsson@vegagerdin.is) í síma 522 1000 og Auður
Bjarnadóttir (audur.bjarnadottir@capacent.is) hjá Capacent ráðningum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
FÍLAR ÞÚ
FJÓLUBLÁAN?
Við leitum nú að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingum
sem vilja verða hluti af okkar frábæra hópi flugliða
fyrir árið 2018.
Áhugasamir þurfa að hafa hreint sakavottorð, bílpróf,
vera heilsuhraustir og fæddir eigi síðar en árið 1996.
Kröfur eru gerðar um stúdentspróf eða sambærilega
iðngráðu og að viðkomandi hafi áhuga á að veita
framúrskarandi þjónustu í splunkunýju flugvélunum
okkar þar sem öryggi er ávallt í fyrirrúmi. Góð íslensku-
og enskukunnátta er skilyrði. Önnur tungumálakunnátta
kemur sér einnig vel. Því fleiri tungumál, því betra!
Umsóknarfrestur er til miðnættis 25. september 2017.
Vinsamlegast athugið að þeir sem hafa áður sent inn umsókn
um starf hjá WOW air eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar.
SJÁ NÁNAR Á WOWAIR.IS /STARF
12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 . S e p T e m b e R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
6
-1
3
5
0
1
D
A
6
-1
2
1
4
1
D
A
6
-1
0
D
8
1
D
A
6
-0
F
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K