Fréttablaðið - 02.09.2017, Side 67
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í
heimilislækningum ásamt sálfræðingi, félagsráðgjafa,
hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og
aðstoðarmönnum. Hafin er innleiðing heildstæðrar
teymisvinnu í sjúklingamóttöku sem byggir á náinni
samvinnu fagstétta þar sem samfelld, persónuleg
þjónusta við skjólstæðinga er höfð að leiðarljósi. Um
er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem áhuga
hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Nánari
upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef
Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Nánari upplýsingar
Svava Kristín Þorkelsdóttir - 585 1300
svava.kristin.thorkelsdottir@heilsugaeslan.is
Ragnar Logi Magnason - 585 7600
Helstu verkefni og ábyrgð
Almennar lækningar
Heilsuvernd
Vaktþjónusta
Kennsla nema
Þátttaka í vísindarannsóknum, gæða- og
umbótaverkefnum
Hæfnikröfur
Sérfræðimenntun í heimilislækningum
Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð
vinnubrögð
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla af teymisvinnu er kostur
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt gögnum sem staðfesta menntun, fyrri störf og vísinda- og
kennslustörf. Þau gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði. Tekið er mið af jafnréttisstefnu
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið.
Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is), undir laus störf eða á Starfatorgi
(www.starfatorg.is).
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Sérfræðingur í heimilislækningum
Heilsugæslan Grafarvogi
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Grafarvogi. Um er að ræða
100% ótímabundið starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2017
AUGLÝSING UM
DEILISKIPULAGS-
BREYTINGAR Í GARÐABÆ
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með
kynningu á breytingum eftirfarandi
deiliskipulagsáætlana í samræmi við 1.mgr.
43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
• Suðurhraun 1 og 3. Tillaga að
breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns.
Tillagan gerir ráð fyrir því að grunnflötur
húss getur orðið allt að 60 % af stærð
lóðar í stað 40 % og að nýtingarhlutfall
geti orðið allt að 1 í stað 0,6. Ennfremur
er gert ráð fyrir breytingu á grein 2.3. í
skilmálum þannig að hægt sé að veita
byggingarleyfi fyrir færri bílastæðum á
lóð en skilmálar miða við ef sýnt sé fram
á hvernig bregðast megi við ef aðstæður
breytast sem kalla á fleiri stæði.
• Hlið. Tillaga að breytingu á
deiliskipulagi Hliðs.
Tillagan gerir ráð fyrir því að
byggingarreitur c færist til norðurs og
verður vestan við núverandi íbúðarhús.
Tillögurnar liggja frammi á bæjarskrifstofum
Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 1. september
2017 til og með 16. október 2017. Þær eru
einnig aðgengilegar á heimasíðu
Garðabæjar www.gardabaer.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
er gefinn kostur á að gera athugasemdir við
tillögurnar. Frestur til þess að skila inn
athugasemdum rennur út 16. október 2017.
Skila skal athugasemdum á
bæjarskrifstofur Garðabæjar og skulu þær
vera skriflegar og undirritaðar. Þeir sem
ekki gera athugasemdir við tillögurnar fyrir
tilskilinn frest teljast samþykkir þeim.
Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar
GARÐATORGI 7 • SÍMI 525 8500 • GARDABAER.IS
Upplýsingar veitir Inga Björg Hjaltadóttir ráðgjafi hjá Attentus
mannauður og ráðgjöf, inga@attentus.is
Umsóknir óskast fylltar út á attentus.umsokn.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2017
Starfslýsing
Samstarf við fyrirtæki um markaðssetningu erlendis
• Tengslamyndun og öflun þekkingar á fyrirtækjum og lausnum
• Gerð áætlana um kynningu á fyrirtækjum og lausnum erlendis
• Gerð markaðsefnis fyrir hverja atvinnugrein
Samstarf við samtök, sendiráð og stofnanir
• Öflun/miðlun upplýsinga um fyrirtæki og fyrirtækjahópa
• Miðlun upplýsinga til fyrirtækja og fyrirtækjahópa
• Öflun upplýsinga um tölfræði og markaði
• Skipulag viðburða erlendis
Kröfur um menntun og hæfni
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla á íslensku atvinnulífi
• Þekking og reynsla af markaðsstarfi erlendis
• Góð tungumálakunnátta
• Áhugi á fólki og íslenskum fyrirtækjum
• Mjög góðir samskiptahæfileikar
Íslandsstofa leitar að verkefnastjóra á svið Iðnaðar & þjónustu.
Starfið felst í að efla og þróa útflutningsþjónustu sviðsins.
Hlutverk sviðs iðnaðar og þjónustu er að auka vitund, áhuga og eftirspurn erlendis eftir vörum,
þjónustu og sérfræðiþekkingu íslenskra fyrirtækja. Við styðjum við markaðsstarf og kynnum
lausnir þeirra fyrir erlendum aðilum. Við vinnum með fyrirtækjum og hagsmunaaðilum að því
að meta þarfir starfsgreinahópa varðandi erlenda markaðssókn og köllum innlenda jafnt sem
erlenda sérfræðinga til ráðgjafar. Við söfnum hagnýtum upplýsingum og framleiðum markaðs-
efni sem eykur trúverðugleika gagnvart erlendum viðskiptavinum.
Lykilþáttur í starfi sviðsins er samvinna við atvinnulífið og stuðningsumhverfið, með aðstoð
fagráðs iðnaðar og þjónustu.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 21 L AU G A R DAG U R 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
6
-2
C
0
0
1
D
A
6
-2
A
C
4
1
D
A
6
-2
9
8
8
1
D
A
6
-2
8
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K