Fréttablaðið - 02.09.2017, Side 81

Fréttablaðið - 02.09.2017, Side 81
Mohamed Salah skoraði og lagði upp mark í stórsigri Liverpool á Arsenal um síðustu helgi. Álvaro Morata 24 Ára FraMherji Landsleikir fyrir Spán: 21 Mörk fyrir Spán: 9 Keyptur á 58,5 milljónir punda frá Real Madrid Það er ekkert smá verkefni sem bíður Álvaros Morata hjá Chelsea; að fylla skarð félaga síns í spænska landsliðinu, Diegos Costa. Chelsea hefur tvisvar sinnum orðið Englandsmeistari á síðustu þremur árum. Hinn geðstirði Costa átti risastóran þátt í báðum titlunum. Hann skoraði 20 mörk bæði tímabilin sem Chelsea varð meistari og hefur alls skorað 52 mörk í 89 leikjum í ensku úrvals- deildinni sem er frábær árangur. Costa gerir líka meira en að skora; hann er duglegur, bindur varnir andstæðinganna í fjötra og býr til pláss fyrir aðra leikmenn. Morata er allt öðruvísi framherji en Costa. Það er ekki sami djöful- gangur í honum og hann hefur ekki sömu áhrif á leikinn. En hann getur skorað. Á síðasta tímabili skoraði Morata t.a.m. 15 mörk fyrir Real Madrid í spænsku úrvals- deildinni þrátt fyrir að vera aðeins 14 sinnum í byrjunarliðinu. Þrátt fyrir farsælan feril hefur hinn 24 ára Morata aldrei verið framherji númer eitt hjá sínum félagsliðum, fyrr en núna. Og miðað við fyrstu leikina með Chelsea virðist Morata finna sig vel í því hlutverki. Þegar þrjár umferðir eru búnar af ensku úrvalsdeildinni hefur Morata skorað tvö mörk og lagt upp önnur tvö. Chelsea vann Englandsmeistara- titilinn á sannfærandi hátt í fyrra. Og ef Morata heldur áfram að spila eins og hann hefur gert í upphafi tímabils á Lundúnaliðið góða möguleika á að endurtaka leikinn. Þarf að fylla í skarð hins geðstirða Costa Álvaro Morata hefur byrjað af krafti í búningi Englandsmeistara Chelsea. jordan Pickford 23 Ára Markvörður Enginn landsleikur fyrir England Keyptur á 25,7 milljónir punda frá Sunderland Þrátt fyrir að hafa aðeins spilað eitt tímabil í ensku úrvalsdeildinni með fallliði Sunderland ákvað Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Everton, að gera Jordan Pickford að dýrasta markverði Bretlandseyja í sumar. Pickford þurfti að bíða lengi eftir tækifærinu hjá Sunderland. Hann var lánaður til sex liða í neðri deild- unum á árunum 2012-16 og byrjaði síðasta tímabil sem varamark- vörður fyrir Vito Mannone. Ítalinn meiddist hins vegar illa í upphafi tímabils, Pickford fékk tækifærið og greip það með báðum höndum. Honum tókst ekki að koma í veg fyrir að Sunderland félli en frammistaða hans vakti athygli stærri félaga og hann var tilnefndur sem besti ungi leikmaður síðasta tímabils. Þá var hann valinn í enska A-landsliðið. Pickford, sem á fjölda leikja fyrir yngri landslið Englands, á hins vegar enn eftir að leika sinn fyrsta A-landsleik. Bláa liðið frá Liverpool var í vandræðum með markvörsluna á síðasta tímabili. Maarten Stekelen- burg og Joel Robles skiptu mark- varðarstöðunni á milli sín en hvorugur þeirra var nógu sannfær- andi. Það var því ljóst að Koeman þyrfti að finna nýjan mann á milli stanganna. Pickford er mjög sjálfsöruggur og hugrakkur að koma út í teiginn og hirða fyrirgjafir. Hann er líka með frábærar spyrnur og fljótur að koma boltanum í leik. Pickford býr ekki yfir mikilli reynslu og svo þarf hann að venjast nýjum veruleika hjá Everton þar sem hann verður ekki í hlutverki skotskífu eins og hjá Sunderland. En hann hefur hæfileikana og sjálfs- traustið til að komast í fremstu röð. Framtíðarmaður milli stanganna hjá everton Mohamed Salah 25 Ára hægri kantMaður Landsleikir fyrir Egyptaland: 53 Mörk fyrir Egyptaland: 29 Keyptur á 37,8 milljónir punda frá Roma Þetta er í annað sinn sem lið í ensku úrvalsdeildinni kaupir Mohamed Salah. Hann vonast til að dvölin hjá Liverpool verði ánægjulegri en tíminn sem hann átti hjá Chelsea Salah fékk fá tækifæri hjá José Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea á þessum tíma, og lék aðeins 19 leiki og skoraði tvö mörk fyrir Lundúnaliðið. Egyptinn var lánaður til Fior- entina seinni hluta tímabilsins 2014-15 og fór svo til Roma eftir það. Þar blómstraði Salah. Hann var góður tímabilið 2015-16 og enn betri tímabilið þar á eftir þegar hann skoraði 15 mörk og gaf 11 stoðsendingar í 31 leik í ítölsku úrvalsdeildinni. Salah er eldfljótur, leikinn og afskaplega hættulegur í skyndi- sóknum. Það eru eiginleikar sem Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, kann að meta. Salah hefur farið mjög vel af stað með Liverpool. Hann skoraði í 3-3 jafnteflinu við Watford og í 4-2 sigrinum á Hoffenheim í umspili um sæti í riðlakeppni Meistara- deildar Evrópu. Egyptinn var svo óstöðvandi þegar Liverpool rúllaði yfir Arsenal, 4-0, um síðustu helgi. Salah skoraði og lagði upp mark og var síógnandi á hægri kant- inum. Stuðningsmenn Liverpool vona að frammistaðan í þeim leik sé fyrirboði um það sem koma skal í vetur. hentar fullkomlega fyrir leikstíl Liverpool Pickford varði næstflest skot allra markvarða í ensku úrvalsdeildinni í fyrra. Morata hefur spilað þrjá úrslitaleiki í Meistaradeild Evrópu. Salah lagði upp næstflest mörk í ítölsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Miklar vonir eru bundnar við Jordan Pickford hjá Everton. xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxKYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 2 . S E p t E m b E R 2 0 1 7 ENSKI BoLtINN 0 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 0 8 1 K _ N Y .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D A 6 -2 2 2 0 1 D A 6 -2 0 E 4 1 D A 6 -1 F A 8 1 D A 6 -1 E 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 0 s _ 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.