Fréttablaðið - 02.09.2017, Síða 84

Fréttablaðið - 02.09.2017, Síða 84
 10 KYNNINGARBLAÐ 2 . s e p t e m B e R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U ReNsKI BoLtINN Barátta José Mourinho og Pep Guardiola um Manchester-borg síðasta vetur stóð ekki undir væntingum. Það var afskaplega grunnt á því góða milli Mourinho og Guardiola þegar þeir stýrðu erkifjendunum Real Madrid og Barcelona á Spáni. Mourinho var ráðinn til Madrídar- liðsins til að fella Guardiola og Börsungana af stalli sínum. Mour- inho beitti öllum brögðum til þess og náði á endanum markmiði sínu. Real Madrid varð spænskur meistari vorið 2012 og Guardiola hætti hjá Barcelona. Ári seinna fór Mourinho sömu leið. Leiðir þeirra lágu aftur saman í fyrra þegar þeir voru ráðnir knattspyrnustjórar Manchester- liðanna, United og City. Fyrir fram var búist við því að þau myndu berjast um Englandsmeistara- titilinn. En svo fór ekki. Liðin ollu bæði vonbrigðum í ensku úrvalsdeildinni og Mourinho og Guardiola voru stilltir og létu vera að bauna hvor á annan. Bæði lið byrjuðu vel í fyrra og þá sérstaklega City sem vermdi toppsætið framan af tímabili. En svo kom Chelsea á fullu stími, hirti toppsætið í 12. umferð og lét það ekki af hendi það sem eftir lifði tímabils. City endaði að lokum í 3. sæti, 15 stigum á eftir Chelsea. United hafnaði í 6. sæti deildar- innar, heilum 25 stigum á eftir Antonio Conte og hans mönnum. United vann hins vegar enska deildabikarinn og Evrópudeildina sem hleypti liðinu bakdyramegin inn í Meistaradeild Evrópu. City spilaði á köflum frábæran fótbolta í fyrra en varnarleikurinn og sérstaklega markvarslan varð liðinu að falli. Guardiola lánaði Joe Hart til Ítalíu og fékk Claudio Bravo í markið. Sílemaðurinn átti góð ár hjá Barcelona en var eins og fiskur á þurru landi í ensku úrvals- deildinni. Á tímabili virtist það vera nóg fyrir andstæðinga City að hitta markið til að skora því það lak allt inn. Guardiola fór því í markvarðaleit og fann Brasilíu- manninn Ederson sem hann gerði að dýrasta markverði sögunnar. eitthvað verður undan að láta í manchester José Mourinho og Pep Guardiola mæta aftur til leiks með Manchester-liðin, United og City, í vetur. Þau stóðu ekki undir væntingum í ensku úrvalsdeildinni í fyrra en í ár er allt lagt undir í baráttunni. Það fór vel á með þeim pep Guardiola og José mourinho á síðasta tímabili og þeir létu vera að skjóta á hvor annan. NoRdIcphotos/GettY Sumarkaup Man. City Komnir Benjamin mendy 51,8 milljónir punda Kyle Walker 45,9 milljónir punda Bernardo silva 45 milljónir punda ederson 36 milljónir punda danilo 27 milljónir punda samtals: 205,7 milljónir punda Sumarkaup Man. Utd Komnir Romelu Lukaku 76,2 milljónir punda Nemanja matic 40,2 milljónir punda Victor Lindelöf 31,5 milljónir punda Zlatan Ibrahimovic frítt samtals: 147,9 milljónir punda Guardiola skipti einnig alveg um bakverði. Pablo Zabaleta, Bacary Sagna, Gaël Clichy og Aleksandar Kolarov, sem eru allir komnir yfir þrítugt, voru látnir fara. Í staðinn keypti Spánverjinn Benjamin Mendy, Kyle Walker og Danilo á samtals tæplega 125 milljónir punda. Auk þess keypti City Portúgalann Bernardo Silva frá Monaco. Vandamál United á síðasta tímabili voru af allt öðrum toga. Liðið skoraði bara 54 mörk í ensku úrvalsdeildinni, aðeins fjórum mörkum meira en Crystal Palace sem endaði í 14. sæti, og gekk bölvanlega að klára leiki. Strákarnir hans Mourinho töp- uðu aðeins fimm leikjum á síðasta tímabili en gerðu 15 jafntefli, þar af 10 á Old Trafford. Til að ráða bót á þessu sótti Mourinho Romelu Lukaku til Everton. Hann hefur stundum verið gagnrýndur fyrir að skora aðallega gegn lakari liðum en það er nákvæmlega það sem United þarf; mörk til að klára leiki gegn minni liðum. Mourinho endurnýjaði einnig kynnin við Nemanja Matic sem hefur byrjað frábærlega í rauða búningnum og gert Paul Pogba kleift að blómstra. Þá keypti United sænska miðvörðinn Victor Linde- löf frá Benfica og samdi aftur við landa hans, Zlatan Ibrahimovic. Líkt og fyrir síðasta tímabil búast flestir við því að Man- chester-liðin berjist um Eng- landsmeistaratitilinn í vetur. Það virðist þó vera meiri innistæða fyrir þeim spám í ár. Bæði lið eru betur skipuð og betur samansett en í fyrra. Svo er það staðreynd að bæði Mourinho og Guardiola verða alltaf landsmeistarar á öðru tíma- bili með sín lið. Það verður því eitthvað undan að láta í Man- chester í vetur. ENSKI BOLTINN ER HAFINN! *m ið að v ið 12 m án að a bi nd in gu Tryggðu þér áskrift á aðeins 399 kr. á dag* 11.990 kr. á mán. 0 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D A 6 -0 9 7 0 1 D A 6 -0 8 3 4 1 D A 6 -0 6 F 8 1 D A 6 -0 5 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 0 s _ 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.