Fréttablaðið - 02.09.2017, Page 88
Nú þegar fótboltaheimurinn virðist gjörsamlega farinn á hliðina er gott að vita til þess að enn leynast örlítil ævin
týri. Huddersfield er eitt af þessum
ævintýrum en 12 árum eftir að félag
ið var við það að lognast út af er það
ofar en Manchester City, Chelsea,
Tottenham og Arsenal í ensku
úrvalsdeildinni. Vissulega eru bara
þrír leikir búnir en félagið fór upp í
úrvalsdeildina með neikvæða marka
tölu, vann báða umspilsleikina í víta
spyrnukeppni þar sem liðið skoraði
ekki mark í venjulegum leiktíma. Því
var eðlilega spáð að liðið myndi eiga
langan vetur fyrir höndum.
Enginn bjóst við að Huddersfield
gæti komist upp um deild í fyrra,
en þetta er í fyrsta sinn sem liðið er
í efstu deild síðan 1972. „Það sem
gerðist hér á Wembley er ótrúlegt,
þetta er sannkallað ævintýri sem
fékk góðan endi,“ sagði stjórinn,
David Wagner, eftir vítaspyrnu
keppnina gegn Reading eftir að liðið
tryggði sér sæti í skemmtilegustu
deild í heimi.
Wagner þessi er einn besti vinur
Jürgens Klopp, knattspyrnustjóra
Liverpool, og var svaramaður í
brúðkaupinu hans. Hann þreytti
frumraun sína í þýsku deildinni
árið 1990 fyrir Eintracht Frankfurt
en það var eini leikur hans með
liðinu. Hann flakkaði svo um
og endaði ferilinn árið 2005.
Hann lék átta landsleiki fyrir
Bandaríkin en náði ekki að
pota inn marki. Faðir hans er
Bandaríkjamaður og móðir
hans Þjóðverji.
„Ég hef þekkt Jürgen
lengur en konuna mína,“
sagði Wagner í viðtali við
Guardian fyrir tveimur
árum. „Við hittumst hjá
Mainz og ég tók stöðuna
hans þannig hann þurfti að
fara í vörnina. Það var auð
veldara fyrir hann,“ sagði
kappinn og hló. Þegar rætt
er um Klopp við Wagner
eða um Wagner við Klopp
er yfirleitt stutt í húmorinn.
Þeir eru oft bornir saman
enda með líkan stíl og ekki
bara að þeir séu með der
húfu, gleraugu og hafi
mikla ástríðu fyrir
sínum leikmönn
um. Liðin þeirra hafa svipaðan leik
stíl enda er Wagner trúr þungarokks
stílnum sem Klopp kynnti.
En á meðan Klopp var nánast
orðinn þjálfari áður en hann hætti
að spila var þjálfaraferill Wagners
lengur að komast á flug. Eftir að hann
hætti að spila ákvað hann að taka sér
frí frá fótbolta og læra íþróttavísindi
við háskólann í Darmstadt. Klopp
hvatti hann þó til dáða og svo fór að
þeir hittust á ný eftir að Klopp hafði
ráðið Wagner til að taka við varaliði
Dortmund. Þar var hann fljótur að
sýna hvers hann var megnugur. Það
gerði honum þó lífið leitt að
Klopp tók alltaf bestu leik
menn hans upp í aðalliðið
og eftir mikinn meiðslavetur
og fall hætti Wagner í nóv
ember 2015. Flestir héldu
að hann myndi setjast
við hlið góðvinar síns
á Anfield en svo var
ekki.
Hann tók við
Huddersfield nokkr
um dögum síðar af
Chris Powell og erfði
lið sem sat í 18. sæti.
Þrátt fyrir nokkra
ágæta leiki og fínustu
tilþrif þá endaði liðið í
19. sæti. Wagner fór að
taka til og sótti nokkra
þýs k a l e i k m e n n .
Christo pher Schindl
er, Michael Hefele og
Chris Lowe komu og
mynduðu varnarlínuna
ásamt vonarstjörnunni
Tommy Smith. Wagner
vantaði líka mark
mann og sótti hann til
Klopps því að Danny
Ward var á milli stang
anna.
Miðjan var einn
ig endurnýjuð. Aaron Mooy kom
að láni frá Manchester City, Elias
Kachunga kom frá Þýskalandi og
Izzy Brown kom að láni frá Chelsea.
Wagner fór með liðið fyrir tímabilið
til Svíþjóðar þar sem það dvaldi í
einhvers konar eyðibyggð fjarri
tækni og tólum. Þar var jafnvel ekki
rafmagn. Huddersfield vann átta af
fyrstu 11 leikjum sínum og gaf tón
inn fyrir komandi baráttu. Þeir héldu
ekki alveg út til loka, en komust í
umspilið þar sem þeir skoruðu ekki
mark, unnu báðar viðureignirnar í
vítaspyrnukeppni og komust upp í
úrvalsdeildina, ótrúlegt en satt.
Þeir byrjuðu tímabilið af miklum
krafti og sendu skýr skilaboð strax í
fyrsta leik með því að vinna Cryst
al Palace 0:3 á útivelli. Næst var
það Newcastle, svo Rotherham í
bikarnum áður en þeir gerðu jafn
tefli 0:0 við Southampton. Sjö stig
eftir þrjá leiki er draumi líkast.
Liðið gæti líka haldið áfram að gera
góða hluti því leikirnir í septem
ber eru gegn West Ham, Leicester
og Burnley áður en liðið fær Tot
tenham í heimsókn. Það skal þó
tekið fram að Huddersfield hefur
ekki náð að halda út undir stjórn
Wagner. Í fyrra tapaði liðið sex af
síðustu 10 deildarleikjum. Það mun
ekki ganga í ensku úrvalsdeildinni.
„Við erum ekki komnir hingað bara
til að segja halló,“ sagði Wagner fyrir
tímabilið. Hann er með stuðnings
menn á sínu bandi en hann hefur
passað að leikmenn þakki fyrir sig
eftir leiki. Hann vann stuðnings
menn á sitt band með því að taka
smá slagmsál við Garry Monk, stjóra
Leeds en þeir eru erkifjendur félags
ins og stuttur þráðurinn þar á milli.
Haldi Huddersfield sér í ensku
úrvalsdeildinni eru miklar líkur á því
að stærri lið horfi til Wagner. Hann
neitaði Wolfsburg í desember en
hvað gerist í maí, ef liðið er í öruggu
sæti, er ómögulegt að segja. Stærri lið
hafa oft tekið kraftaverkamönnum
opnum örmum.
Öskubuskuævintýri
Huddersfield
Nýliðar Huddersfield eru enn taplausir eftir þrjár umferðir í ensku úrvalsdeildinni og aðeins tveimur stigum frá toppliði Manchester United. Fréttablaðið/Getty
Dean Hoyle, stjórnarformaður Huddersfield, og knattspyrnustjórinn David
Wagner fagna úrvalsdeildarsætinu síðastliðið vor. Fréttablaðið/Getty
Aðeins eru 12 ár síðan Huddersfield var sett í greiðslustöðvun, eina
leiðin virtist niður á við. En nú eru allir kátir í borginni enda komnir í
ensku úrvalsdeildina og virðast ekki vera neitt fallbyssufóður. David Wagner,
Þjálfari Hudders-
field Town
Fæddur: 19. október 1971
Hæð: 1,83 m
Spilaði sem framherji
leikmannaferill
Ár, Lið, Leikir, Mörk
1990–1991 Eintracht Frankfurt
1 (0)
1991–1995 Mainz 05 94 (19)
1995–1997 Schalke 04 29 (2)
1997–1999 FC Gütersloh 49 (7)
1999 SV Waldhof Mannheim 5
(0)
1999–2002 SV Darmstadt 98 76
(21)
2002–2004 TSG Weinheim
Huddersfield town
Stofnað 15. ágúst 1908
Leikvöllur: John Smith leik-
vangurinn
Stjórnarmaður: Dean Hoyle
Titlar:
Meistarar: 1923–24, 1924–25,
1925–26
Enski bikarinn: 1922
Samfélagsskjöldurinn: 1922
leikmannakaup Huddersfield
fyrir tímabilið:
Steve Mounie (Montpellier), Tom
Ince (Derby County), Aaron Mooy
(Manchester City), Laurent Depo-
itre (FC Porto), Scott Malone
(Fulham), Mathias Jorgensen
(Copenhagen), Danny Williams
(Reading), Elias Kachunga (Ingol-
stadt), Jonas Lossl (Mainz 05),
Kasey Palmer (Chelsea)
*Heimild Wikipedia
Jóhannes Karl
Guðjónsson
spilaði með
Huddersfield á
sínum tíma.
Leikvangurinn
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r36 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
A
5
-E
1
F
0
1
D
A
5
-E
0
B
4
1
D
A
5
-D
F
7
8
1
D
A
5
-D
E
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K