Fréttablaðið - 02.09.2017, Page 93

Fréttablaðið - 02.09.2017, Page 93
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Agnes Guðnadóttir Skálatúni 10, Akureyri, lést á heimili sínu umvafin fjölskyldu sinni 22. ágúst síðastliðinn. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 4. september kl. 13.30. Konráð Alfreðsson Guðni Konráðsson Linda Ólafsdóttir Lára Steina Konráðsdóttir Friðjón Sigurðsson Valdís Konráðsdóttir Ellert Jón Þórarinsson og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir, Ásta Kjeldahl Þórsdóttir Grønhøjgade 18, Vejen, Jótlandi, lést mánudaginn 28. ágúst. Útförin fer fram frá Vejen kirkju þriðjudaginn 5. september kl. 13.30. Minningarathöfn verður haldin í Grensáskirkju laugardaginn 9. september kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hugarafl. Thomas Kjeldahl Þór Kjeldahl Anna Kjeldahl Eva Kjeldahl Þór Aðalsteinsson Bjarnsteinn Þórsson Guðfinna Björnsdóttir Brynjólfur Þórsson Sigrún Gunnarsdóttir Þröstur Þórsson Jørn Kjeldahl Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi, Hreinn Úlfarsson lést 16. ágúst. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 7. september kl. 15.00. Sigurveig Júlíusdóttir synir og barnabörn. Ástkær frænka okkar, Sigríður Jónasdóttir Meistaravöllum 35, lést á Vífilsstöðum laugardaginn 12. ágúst. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fjölskyldan þakkar ættingjum og vinum auðsýnda samúð. Aðstandendur Elskulegi sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, Sverrir Örn Sverrisson lést fimmtudaginn 24. ágúst. Útförin fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík þann 4. september kl. 13.00. Dóróthea S. Róbertsdóttir Sverrir Jensson Heimir Sverrisson Ómar Örn Sverrisson Daníel Örn Heimisson Dagur Leó Ómarsson Helgi Jóhann Ómarsson Lára M. Fleckenstein Brynhildur Guðjónsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Unnur Björk Gísladóttir Fríholti 4, Garði, áður búsett í Bræðraborg, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 27. ágúst, verður jarðsungin frá Útskálakirkju þriðjudaginn 5. september klukkan 14.00. Gunnar M. Magnússon Magnea Inga Víglundsdóttir Unnar Már Magnússon Erna Nilssen Sigfús K. Magnússon Gyða Minný Nilssen Hreinn R. Magnússon Elísabet S. Steinsdóttir Kristvina Magnúsdóttir G. Pétur Meekosha Björgvin Magnússon Laufey Þorgeirsdóttir Sigurður H. Magnússon Birna Björk Skúladóttir Magnea B. Magnúsdóttir Sigurjón Sigurðsson barnabörn og langömmubörn. Bókin er mikilvægt gagn í íslenskri listasögu og góður efniviður til að rannsaka. Hún er búin dýrmætu myndefni og áður óbirtu, meðal annars af verkum sem hafa glatast að eilífu, enda voru sum þeirra úr forgengilegum efnum,“ segir Áslaug Thorlacius skólastjóri um nýja bók, Útisýningarnar á Skólavörðuholti 1967-1972 eftir þær Ingu Ragnarsdóttur myndlistarmann og Kristínu G. Guðna- dóttur listfræðing. Útgáfunni verður fagnað í dag klukkan 16 í Ásmundarsal við Freyjugötu. Sýningarnar á Skólavörðuholti þóttu ögrandi og óheflaðar. Bókin er gefin út í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá þeirri fyrstu og jafnframt fagnar Myndlista- skólinn í Reykjavík 70 ára afmæli sínu, sýningarnar voru einmitt haldnar að frumkvæði hans. „Þarna sýndu bæði nemendur og kennarar. Svona var þetta frjálslegt,“ segir Áslaug sem er skólastjóri Myndlistaskólans nú og var í ritstjórn bókarinnar fyrir hönd hans. Sjálf fór hún á útisýningu með foreldrum sínum þegar hún var barn. „Ég man eftir stóru flugunni hans Magnúsar Tómassonar sem var sýnd 1970,“ nefnir hún og segir myndirnar í bókinni ómetanlega heim- ild um gróskutíma í þrívíðri myndlist. „Á þessum tíma er Ísland að tengjast umheiminum í listum. Bæði Dieter Roth og hinn kóreski Nam June Paik urðu eins og vörður á þeim vegi. Við höfðum verið dálítið einangruð. Listamenn höfðu farið til náms í konunglegu akademíurnar en voru ekki þar sem mesta gerjunin var í heiminum,“ útskýrir hún og segir vissu- lega marga hafa litið niður á þessa nýju list. „Þetta var líka á þeim tíma sem fólk var með afdráttarlausar skoðanir á hlutunum. Hún varð nú fræg brauð- varðan hans Kristjáns Guðmundssonar sem heilbirgðisyfirvöld bönnuðu. En auðvitað voru einhverjir hrifnir og sáu tjáningarfrelsið sem birtist í verkunum.“ Minningarsjóður um Ragnar Kjartans- son, Myndlistaskólinn í Reykjavík og Myndhöggvarafélagið standa að útgáfu bókarinnar. Áslaug segir Ásmundar- sal á Freyjugötunni verða opinn líka á morgun, sunnudag, milli klukkan 16 og 18 og að bókin verði á tilboðsverði um helgina. gun@frettabladid.is Man eftir stóru flugunni Útgáfu bókarinnar Útisýningarnar á Skólavörðuholti 1967-1972 verður fagnað í dag, 50 ára afmælis sýninganna minnst og 70 ára afmælis Myndlistaskólans í Reykjavík. Áslaug fór á útisýningarnar á Skólavörðuholti með foreldrum sínum þegar hún var barn og heillaðist. FRéttaBLaðIð/aNtoN BRINK Kassi, umslög, dót. Verk eftir Dieter Roth. Breska herskipið Eastbourne tók níu varðskipsmenn af Þór og Maríu Júlíu og færði þá um borð. Varðskipsmenn af Þór höfðu áður staðið breska togarann Northern Foam að ólöglegum veiðum út af Austfjörðum og hugð- ust færa hann til hafnar á Seyðisfirði. Skipherra á Þór var Eiríkur Kristófersson. Landhelgin hafði verið færð út í tólf mílur úr fjórum fáum sólarhringum fyrr og var sú aðgerð viðurkennd af öllum þjóðum nema Bretum. Fallbyssur Eastbourne voru mannaðar og skipverjar báru kylfur og stálhjálma. Ander- son, skipherra á Eastbourne og yfirmaður flotadeildar- innar, kom yfir í Þór og ræddi við Eirík sem hvikaði hvergi, hvorugur vildi beita ofbeldi. Íslensku varðskipsmennirnir níu voru samt umkringdir og fluttir um borð í herskipið og haldið þar í ellefu daga en síðan laumað í land í Keflavík í skjóli nætur. Þ ETTa G E R ð I ST : 2 . S E P T E M B E R 1 9 5 8 Íslenskir varðskipsmenn teknir höndum af Bretum Herskip Breta siglir á varðskip. Landhelgin. Þorskastríð. t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ðT T T T 41L a U G a R D a G U R 2 . s e p T e m B e R 2 0 1 7 0 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D A 5 -C 4 5 0 1 D A 5 -C 3 1 4 1 D A 5 -C 1 D 8 1 D A 5 -C 0 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 0 s _ 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.