Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 14
Helgarblað 6.–9. janúar 201714 Fréttir Þú færð fallega borð- búnaðinn og fullt af fíneríi frá greengate hjá okkur Austurvegi 21, Selfoss / Sími 482 3211 facebook.com/sjafnarblom Höfðabakka 3, Reykjavík / Sími 587 2222 facebook.com/litlagardbudin Sigmar freistar þess að fá lóðasölu Skúla dæmda ógilda Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur mánudaginn 9. janúar Þ ann 9. janúar næstkomandi verður fyrirtaka í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli athafna­ mannsins Sigmars Vilhjálms­ sonar gegn Stemmu hf., félagi sem er í meirihlutaeigu Skúla Gunnars Sigfússonar, sem iðulega er kenndur við Subway. DV greindi frá málinu í nóvember­ lok í fyrra en þá freistaði lögmaður Skúla, Sigurður G. Guðjónsson, þess að fá málinu vísað frá á þeim grund­ velli að Sigmar væri ekki aðili að því. Á það sjónarmið vildi héraðsdómur ekki fallast og því verður málið tekið til efnislegrar meðferðar eftir helgi. Hvorki Skúli Gunnar né Sigmar vildu tjá sig um málið við DV þegar eftir því var leitað en sá síðarnefndi sagði þó að hann vonaðist til þess að mál­ ið myndi ekki hafa áhrif á samstarf þeirra á öðrum vígstöðvum. Dóm­ stólar væru til þess að fá skorið úr deilumálum. Sigurður G. var hins vegar vígreifari og lét hafa eftir sér að Skúli og Sigmar væru „engir vinir“. Mörg sameiginleg verkefni Sigmar og Skúli Gunnar hafa verið viðskiptafélagar um langt skeið og komið að mörgum verkefnum saman. Þekktasta verkefnið er Ham­ borgarafabrikkan en Skúli Gunnar hefur verið viðloðandi rekstur fyrir tækisins, ásamt Sigmari og Jóhannesi Ásbjörnssyni, frá upp­ hafi. Skúli Gunnar var einnig hlut­ hafi í Konung lega kvikmyndafé­ laginu sem rak sjónvarpsstöðvarnar Bravó og Miklagarð sem Sigmar var í forsvari fyrir. Þá var Sigmar mark­ aðsstjóri Subway hérlendis um sex mánaða skeið árið 2014 en skömmu síðar voru áform félaganna um eld­ fjallasetur á Hvolsvelli kynnt. Þúfa varð að fjalli Upphaflega hugmyndin var að opna sýningu um Eyjafjallajökul í litlu húsnæði en smám saman þróaðist hugmyndin yfir í að reisa stóra fast­ eign sem gegnt gæti hlutverki þjón­ ustumiðstöðvar fyrir ferðaþjónustu á Suðurlandi. Þar yrði að finna af­ þreyingu, verslanir, veitingastaði og hótel. Stemma hf. fékk úthlutað lóð­ um við Austurveg 12 og 14 þar sem reisa átti miðstöðina og var áætl­ aður kostnaður við verkefnið einn milljarður. Utan um það var félagið Stemma hf. stofnað. Stemma hf. er í eigu Gufupressunnar (45,45%) og Leiti eignarhaldsfélags (18,18%) sem bæði eru í 100% eigu Skúla Gunnars, hið fyrrnefnda í gegnum Leiti. Þriðji og síðasti hluthafinn er félag­ ið Sjarmur og Garmur ehf. (36,36%) sem Skúli Gunnar og Sigmar eiga helmingshlut í. Segir verðið of lágt Dómsmálið snýst um þá kröfu Sig­ mars að sú ákvörðun hluthafafund­ ar Stemmu hf., sem haldinn var 9. maí 2016, að selja Fox ehf. lóðirn­ ar að Austurvegi 12 og 14 og önnur réttindi, verði ógilt. Fox ehf. er í 100% eigu fjárfestis­ ins Harðar Jóns­ sonar. Í úrskurði héraðsdóms um frávísunar­ kröfu Skúla, sem DV hefur undir höndum, kemur fram að Skúli hafi ólmur viljað selja lóðar­ réttindi Stemmu hf. en Sigmar lagð­ ist gegn þeim viðskiptum þar sem hann taldi kaupverðið of lágt. Kemur fram að hann hafi leitað annarra til­ boða og fengið allt að 50% hærra kauptilboð í lóðirnar. Þrátt fyrir það hafi Skúli í krafti meirihlutaeignar sinnar knúið söluna, á lágu verði, í gegn. Það hafi skert rétt hluthafa til arðgreiðslna þar sem kaupverðið hafi verið mun lægra en raunveru­ legt verðmæti lóðanna. Þá telur Sig­ mar að ákvörðun hluthafafundar­ ins hafi verið tekin með ólögmætum hætti, meðal annars hafi atkvæðis­ réttur verið ranglega skráður og því hafi salan ekki hlotið til­ skilinn fjölda at­ kvæða. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Eldfjallamiðstöð á Hvolsvelli Athafnamennirnir Skúli Gunnar Sigfússon og Sigmar Vilhjálmsson deila fyrir héraðsdómi um réttmæti þess að lóðirnar þar sem miðstöðin mun rísa hafi verið seldar út úr sameiginlegu félagi þeirra. Skúli og Sigmar Sigmar Vilhjálmsson freistar þess fyrir dómstólum að fá lóðarsölu Stemmu hf. dæmda ógilda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.