Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 28
Helgarblað 6.–9. janúar 20174 Heilsa - Kynningarblað Yogasmiðjan – Yoga- og heilsustöð í Grafarvogi, Spönginni Jóga er fyrir alla J óga er fyrir alla, unga, gamla, stirða, liðuga, fólk í yfirvigt … það eru engin takmörk. Við hvetjum þig til að prófa jóga.“ Þetta segir þær Andrea Mar- geirsdóttir og Hildur Gylfadóttir hjá Yogasmiðjunni. Og lesendur ættu að hugleiða vandlega eftirfarandi spurningar því ef þær eiga við þig hefur þú sannarlega þörf fyrir að komast í jógatíma: Viltu öðlast sálarró? Viltu minnka streitu í þínu lífi? Viltu styrkja líkama þinn? Ertu stirð/stirður? Ertu með gigt, bakverki? Ertu í góðu líkamlegu formi? Ertu í afleitu líkamlegu formi? Þá er jóga fyrir þig ! Yogasmiðjan var stofnuð í janúar 2014 af Andreu Margeirsdóttir og í dag er hún rekin af Andreu og Hildi Gylfadóttur. Andrea lauk BA í sál- fræði við HÍ og einnig starfsréttinda- námi í félagsráðgjöf við HÍ. Andrea hefur jafnframt lokið jógakennara- námi. Hildur lauk námi í grafískri hönnun og kennararéttindanámi og hefur lokið kennaranámi í Hatha- og Kundalini-jóga og hefur kennt jóga í fjöldamörg ár. Yogasmiðjan er notaleg og persónuleg jógastöð, hún var áður staðsett í Kópavogi en var opnuð á nýjum stað og í enn betra húsnæði í ágúst 2016, í Spönginni 37, Grafar- vogi. Í Yogasmiðjunni er boðið upp á opna tíma og lokuð námskeið, sem hafa það að markmiði að auka líkam lega og andlega vellíðan. Þarna er afar notalegt andrúmsloft og unnið í litlum hópum þannig að hver einstaklingur fær persónulegri þjón- ustu. Boðið er upp á fjölbreytt jóga- námskeið og opna tíma þannig að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Einnig er nú nýtt námskeið í boði, kröftugt pilates-námskeið fyrir þá sem vilja enn meiri kraft og svita. Öll námskeiðin rúlla áfram alla önnina og alltaf er hægt að skrá sig. Einnig er hægt að kaupa sér kort í opna tíma Yogasmiðjunnar. Allar upplýsingar um verð og stundaskrá má nálgast á heimasíðu Yogasmiðjunnar: yogasmidjan.is og á Facebook: yoga- smiðjan Í Yogasmiðjunni eru reynslu- miklir meðferðaraðilar með aðstöðu, í boði er t.d. nudd, nálar stungur, með- göngunudd, Auyrveda-slökunarnudd, heilun, reikiheilun, svæðanudd, höfuð beina- og spjaldhryggjarjöfnun og tímar í miðlun. Frekari upplýsingar um meðferðaraðila má sjá á heimasíð- unni yogasmidjan.is. Í boði eru fjölbreyttir viðburðir í Yogasmiðjunni og er salurinn leigður út fyrir hina ýmsu viðburði. Jóga er fyrir alla. Margar tegundir af jóga eru til og því geta flestir fundið tíma sem henta sér. Allar tegundirnar eru sprottnar út frá hefðbundnu jóga, svokölluðu Hatha Yoga og eru því tímarnir byggðir upp frá sama grunni. Meirihluti viðskiptavina Yogasmiðjunnar eru konur en Yoga- smiðjan er fyrir bæði konur og karla og þær Andrea og Hildur hvetja karl- ana til að láta sjá sig. „Við stefnum að því að bjóða upp á jógatíma sem eru eingöngu fyrir karla,“ segja þær jafn- framt. Yogasmiðjan býður upp á Grunn- yoga, Kundalini Yoga, Hatha Yoga í núvitund, slökunarjóga, kraftjóga, heilandi Gong-slökun, Yoga Nidra djúpslökun, Rope Action og Pilates. Þessa vorönn býður Yogasmiðjan upp á frían aðgang fyrir alla í heilandi Gong slökun öll fimmtudagskvöld kl. 20.10–21.10 Allir hjartan lega vel- komnir meðan pláss leyfir. „Öllum býðst frír prufutími í opinn tíma. Hlökkum til að sjá ykkur í Yogasmiðjunni.“ n Hildur Gylfadóttir Andrea Margeirsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.