Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 4
Helgarblað 6.–9. janúar 20174 Fréttir
Össur og Linda vilja milljón
og afsökunarbeiðni frá Huldu
n Brá þegar bréfið barst en ætlar ekki að borga n Reykjavík Ink í aðalhlutverki í nýjum þáttum
M
ér brá auðvitað og fannst
þetta óþægilegt,“ segir
Hulda Lind Stefánsdóttir
en hún hefur verið krafin
um afsökunarbeiðni sem
skuli birtast í Stundinni og eina millj-
ón króna í skaðabætur vegna ummæla
sem hún lét falla í tengslum við frétta-
flutning af sprengjuárás á húðflúrstof-
una Immortal Art í Hafnarfirði.
Eigendur Immortal art, Ólafía
Kristjánsdóttir og Andri Engilberts-
son, náðu aldrei að opna stofuna í
Hafnarfirði. Nokkrum klukkutím-
um áður en fyrsti viðskiptavinur átti
að mæta í hús, komu tveir menn á
skellinöðru, brutu rúðu á stofunni og
köstuðu inn tívolíbombu með þeim
afleiðingum að eldur kviknaði og inn-
anstokksmunir gjöreyðilögðust. Í kjöl-
farið voru fimm handteknir en fjórir
úrskurðaðir í gæsluvarðhald en Hæsti-
réttur átti eftir að fella úrskurðinn úr
gildi nokkrum dögum síðar. Á með-
al þeirra sem úrskurðuð voru í gæslu-
varðhald en sleppt voru eigendur
Reykjavík Ink, Össur Hafþórsson og
Linda Mjöll Þorsteinsdóttir.
Ummæli Huldu
Í frétt á Stundinni sagði að Ólafíu og
Andra hefði í nokkrar vikur verið hótað
og árásin verið til að drepa samkeppni
á flúrmarkaðinum. Ekki var greint frá
hverjir lægu undir grun né að Össur og
Linda væru fyrrverandi vinnuveitend-
ur Ólafíu. Í kommentakerfi Stundar-
innar lét Stella Rut Sjafnar eftirfarandi
ummæli falla:
„Rvk ink stendur á bakvið þetta.“
Hulda Lind tjáði sig undir innleggi
Stellu og skrifaði: „Án nokkurs vafa!“
Krafa um afsökunarbeiðni
Hulda og Ólafía eru bræðrabörn,
báðar ættaðar frá Vestfjörðum og
leikfélagar í æsku. DV hefur heim-
ildir fyrir því að kröfubréf hafi verið
sent á fleiri einstaklinga sem hafi
tjáð sig um sprengjuárásina á samfé-
lagsmiðlum og kommentakerfum og
talið tengingu vera á milli hennar og
Reykjavík Ink. Stella Rut sem átti upp-
hafsinnleggið kannaðist þó ekki við
að hafa borist kröfubréf.
Gísli Kr. Björnsson, lögmaður
Lindu og Össurar vildi í samtali
við DV ekki greina frá hversu mörg
kröfubréfin eru og sagði að málin yrðu
ekki rekin í fjölmiðlum. Í kröfubréfinu
sem Huldu Lind barst segir:
„Krafa um afsökunarbeiðni og
leiðrétting – Aðvörun um málshöfð-
un. Til mín hafa leitað Össur Hafþórs-
son og Linda Mjöll Þorsteinsdóttir
vegna ummæla sem þú lést falla á
umræðuþræði á vefriti Stundarinnar,
kl 21:30 þ. 1. nóvember 2016.
Ummælum þínum er beint gegn
umbj. mínum með ærumeiðandi og
tilhæfulausum hætti og varða um-
mælin refsi- og fébótaábyrgð á sam-
kvæmt a. lið 1. mgr. 51. gr. laga nr.
38/2011 um fjölmiðla, auk þess sem
þau brjóta gegn 235. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940 sem
ærumeiðandi aðdróttanir. Ummæli
þín eru eftirfarandi:
„Án nokkurs vafa!“
Og voru þau látin falla undir
neðangreind ummæli Stellu Rutar
Sjafnar, réttu nafni Stellu Rutar
Jensdóttur.
„Rvk ink stendur á bak við
þetta.“
Er ummælum þínum ætlað
að styrkja fullyrðingu Stellu Rutar
sem fela í sér grófa ásökun um að
umbjóðendur mínir hafi framkvæmt
þann refsiverða verknað sem þar er
lýst.“
Segir Gísli að með ummælunum sé
vegið alvarlega að æru og starfsheiðri
umbjóðenda hans. Krefst Gísli
þess að Hulda biðji Lindu og Össur
afsökunar og skal það birtast eins og
áður segir í Stundinni. Þá skal Hulda
greiða eina milljón í skaðabætur, að
öðrum kosti verði höfðað dómsmál á
hendur henni án frekari viðvörunar.
Brá þegar bréfið barst
Reykjavík Ink er ein þekktasta húð-
flúrstofa landsins og hafa eigend-
ur margsinnis verið umtalsefni
fjölmiðla. Á fimmtudagskvöld var
þátturinn Flúr og fólk tekinn til sýn-
inga á Stöð 2 og leikur Reykjavík Ink
stórt hlutverk í þeim þáttum. Þættirn-
ir voru teknir upp síðasta sumar
og samkvæmt heimildum DV var
nokkur titringur í herbúðum Stöðv-
ar 2 eftir að eigendur Reykjavík Ink
voru grunaðir um aðild að sprengju-
árásinni. DV óskaði eftir svörum frá
Stöð 2 um hvort til greina hafi kom-
ið á einhverjum tímapunkti að hætta
við sýningu þáttanna. Ekki bárust
svör frá forsvarsmönnum stöðvar-
innar.
Í samtali við DV kveðst Hulda
ekki lengur vera smeyk þó að henni
hafi brugðið fyrst eftir að henni barst
kröfubréfið. Aðspurð um hvenær
krafan barst og hvað hún hefði langan
tíma til að bregðast við svarar Hulda:
„Ég hafði frest til 10. desember.
Mig minnir að ég hafi fengið hana í
mínar hendur, 5. eða 6. desember. Ég
man að ég hafði fjóra eða fimm daga
til að ákveða hvernig ég myndi taka
á málinu. Mér finnst ekki rökrétt að
senda mér kröfubréf vegna þessara
ummæla.“
Ætlar þú að biðjast afsökunar?
„Nei, mér dettur það ekki í hug né
að taka upp veskið.“ n
Vilja að Hulda biðjist afsökunar
Hulda Lind Stefánsdóttir hefur þekkt
Ólafíu lengi. Hún er ein af þeim sem
barst kröfubréf frá lögfræðingi Reykja-
vík Ink eftir að hafa tjáð sig um fréttir af
málinu.
„Nei, mér dettur
það ekki í hug né
að taka upp veskið.
Í takt við tímann
• Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa.
• Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum.
frakt flutningsmiðlun / sundagörðum 2 , 104 reykjaVík / sími: 520 1450
5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0
Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21