Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Qupperneq 4
Helgarblað 6.–9. janúar 20174 Fréttir Össur og Linda vilja milljón og afsökunarbeiðni frá Huldu n Brá þegar bréfið barst en ætlar ekki að borga n Reykjavík Ink í aðalhlutverki í nýjum þáttum M ér brá auðvitað og fannst þetta óþægilegt,“ segir Hulda Lind Stefánsdóttir en hún hefur verið krafin um afsökunarbeiðni sem skuli birtast í Stundinni og eina millj- ón króna í skaðabætur vegna ummæla sem hún lét falla í tengslum við frétta- flutning af sprengjuárás á húðflúrstof- una Immortal Art í Hafnarfirði. Eigendur Immortal art, Ólafía Kristjánsdóttir og Andri Engilberts- son, náðu aldrei að opna stofuna í Hafnarfirði. Nokkrum klukkutím- um áður en fyrsti viðskiptavinur átti að mæta í hús, komu tveir menn á skellinöðru, brutu rúðu á stofunni og köstuðu inn tívolíbombu með þeim afleiðingum að eldur kviknaði og inn- anstokksmunir gjöreyðilögðust. Í kjöl- farið voru fimm handteknir en fjórir úrskurðaðir í gæsluvarðhald en Hæsti- réttur átti eftir að fella úrskurðinn úr gildi nokkrum dögum síðar. Á með- al þeirra sem úrskurðuð voru í gæslu- varðhald en sleppt voru eigendur Reykjavík Ink, Össur Hafþórsson og Linda Mjöll Þorsteinsdóttir. Ummæli Huldu Í frétt á Stundinni sagði að Ólafíu og Andra hefði í nokkrar vikur verið hótað og árásin verið til að drepa samkeppni á flúrmarkaðinum. Ekki var greint frá hverjir lægu undir grun né að Össur og Linda væru fyrrverandi vinnuveitend- ur Ólafíu. Í kommentakerfi Stundar- innar lét Stella Rut Sjafnar eftirfarandi ummæli falla: „Rvk ink stendur á bakvið þetta.“ Hulda Lind tjáði sig undir innleggi Stellu og skrifaði: „Án nokkurs vafa!“ Krafa um afsökunarbeiðni Hulda og Ólafía eru bræðrabörn, báðar ættaðar frá Vestfjörðum og leikfélagar í æsku. DV hefur heim- ildir fyrir því að kröfubréf hafi verið sent á fleiri einstaklinga sem hafi tjáð sig um sprengjuárásina á samfé- lagsmiðlum og kommentakerfum og talið tengingu vera á milli hennar og Reykjavík Ink. Stella Rut sem átti upp- hafsinnleggið kannaðist þó ekki við að hafa borist kröfubréf. Gísli Kr. Björnsson, lögmaður Lindu og Össurar vildi í samtali við DV ekki greina frá hversu mörg kröfubréfin eru og sagði að málin yrðu ekki rekin í fjölmiðlum. Í kröfubréfinu sem Huldu Lind barst segir: „Krafa um afsökunarbeiðni og leiðrétting – Aðvörun um málshöfð- un. Til mín hafa leitað Össur Hafþórs- son og Linda Mjöll Þorsteinsdóttir vegna ummæla sem þú lést falla á umræðuþræði á vefriti Stundarinnar, kl 21:30 þ. 1. nóvember 2016. Ummælum þínum er beint gegn umbj. mínum með ærumeiðandi og tilhæfulausum hætti og varða um- mælin refsi- og fébótaábyrgð á sam- kvæmt a. lið 1. mgr. 51. gr. laga nr. 38/2011 um fjölmiðla, auk þess sem þau brjóta gegn 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem ærumeiðandi aðdróttanir. Ummæli þín eru eftirfarandi: „Án nokkurs vafa!“ Og voru þau látin falla undir neðangreind ummæli Stellu Rutar Sjafnar, réttu nafni Stellu Rutar Jensdóttur. „Rvk ink stendur á bak við þetta.“ Er ummælum þínum ætlað að styrkja fullyrðingu Stellu Rutar sem fela í sér grófa ásökun um að umbjóðendur mínir hafi framkvæmt þann refsiverða verknað sem þar er lýst.“ Segir Gísli að með ummælunum sé vegið alvarlega að æru og starfsheiðri umbjóðenda hans. Krefst Gísli þess að Hulda biðji Lindu og Össur afsökunar og skal það birtast eins og áður segir í Stundinni. Þá skal Hulda greiða eina milljón í skaðabætur, að öðrum kosti verði höfðað dómsmál á hendur henni án frekari viðvörunar. Brá þegar bréfið barst Reykjavík Ink er ein þekktasta húð- flúrstofa landsins og hafa eigend- ur margsinnis verið umtalsefni fjölmiðla. Á fimmtudagskvöld var þátturinn Flúr og fólk tekinn til sýn- inga á Stöð 2 og leikur Reykjavík Ink stórt hlutverk í þeim þáttum. Þættirn- ir voru teknir upp síðasta sumar og samkvæmt heimildum DV var nokkur titringur í herbúðum Stöðv- ar 2 eftir að eigendur Reykjavík Ink voru grunaðir um aðild að sprengju- árásinni. DV óskaði eftir svörum frá Stöð 2 um hvort til greina hafi kom- ið á einhverjum tímapunkti að hætta við sýningu þáttanna. Ekki bárust svör frá forsvarsmönnum stöðvar- innar. Í samtali við DV kveðst Hulda ekki lengur vera smeyk þó að henni hafi brugðið fyrst eftir að henni barst kröfubréfið. Aðspurð um hvenær krafan barst og hvað hún hefði langan tíma til að bregðast við svarar Hulda: „Ég hafði frest til 10. desember. Mig minnir að ég hafi fengið hana í mínar hendur, 5. eða 6. desember. Ég man að ég hafði fjóra eða fimm daga til að ákveða hvernig ég myndi taka á málinu. Mér finnst ekki rökrétt að senda mér kröfubréf vegna þessara ummæla.“ Ætlar þú að biðjast afsökunar? „Nei, mér dettur það ekki í hug né að taka upp veskið.“ n Vilja að Hulda biðjist afsökunar Hulda Lind Stefánsdóttir hefur þekkt Ólafíu lengi. Hún er ein af þeim sem barst kröfubréf frá lögfræðingi Reykja- vík Ink eftir að hafa tjáð sig um fréttir af málinu. „Nei, mér dettur það ekki í hug né að taka upp veskið. Í takt við tímann • Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa. • Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum. frakt flutningsmiðlun / sundagörðum 2 , 104 reykjaVík / sími: 520 1450 5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0 Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.