Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 54
Helgarblað 6.–9. janúar 201746 Fólk Hrakfallabálkur Íslands n Grétar ætlar ekki að heimsækja sjúkrahús í heilt ár n Stunginn með skrúfjárni í Serbíu Þ etta eru nú eingöngu fjög- ur síðustu ár og þessar myndir voru bara á sím- anum. Ég er búinn að vera hrakfallabálkur allt mitt líf. Ég ólst upp í Neskaup- stað og mamma vann á spítal- anum. Ef nokkrir dagar liðu án þess að ég kæmi með áverka upp á spítala fóru læknarnir að undr- ast um mig,“ segir Grétar Sigurðs- son í samtali við DV og hlær um leið. Tilefni samtalsins er nýárs- heit Grétars sem vakið hefur tals- verða athygli. Grétar birti heitið á Facebook-síðu sinni en það snýr að því að Grétar stefnir á að leita ekki læknis eða fara á sjúkrahús í heilt ár. Með heitinu fylgja allsvakalegar myndir af Grétari með áverka eftir hin ýmsu óhöpp undanfarinna ára. Stunginn með skrúfjárni í Serbíu Fyrir utan áverkana á myndunum hefur Grétar, undanfarin fjögur ár, brotið fingur, rifið sin í löngutöng með þeim afleiðingum að fingurinn er fastur, brotið ristina á sér, lagst inn á spítala út af vírussýkingu auk þess sem viðbein fór úr liði. Þá hefur Grétar brotið rif og fengið gat á lung- að en svakalegasta atvikið átti sér þó stað í Serbíu en þar dvelur hann langdvölum vegna viðskipta. „Ég var á veitingastað þar ytra þegar ég heyrði konu öskra á hjálp. Ég rauk upp og athugaði hvað væri í gangi en sá þá nokkra menn vera að draga konuna inn í sendiferða- bíl,“ segir Grétar. Hann segist ekki hafa ætlað að leika neina hetju en af- skipti hans hafi fyrst og fremst skrifast á hvat- vísi og hugsunarleysi. „Ég spurði þá hvað eig- inlega væri í gangi en þá réðust þeir til atlögu við mig,“ segir Grét- ar. Til talsverðra átaka kom en Grétar náði að verja sig að mestu leyti, allt þar til einum árásarmanninum tókst að stinga hann í kviðinn með skrúfjárni. „Stúlk- an komst sem betur fer undan og ég jafnaði mig nú á þessu,“ segir Grétar, eins og ekkert sé sjálfsagðara. „Ég var skorinn á háls í Serbíu“ Fleiri áverka má rekja til Serbíu, þar á meðal stóran skurð á hálsi. „Ég var skorinn á háls í Serbíu. Væri það ekki flott fyrirsögn? “ seg- ir Grétar og hlær. Blaða- maður er eitt spurningar- merki en Grétar útskýrir að hann hafi greinst með æxli í hálsi en átt erfitt með að fá úrlausn mála hér heima. „Ég fór því í aðgerðir í Serbíu og í þeirri seinni tókst að fjarlægja meinið alveg. Það er náttúrlega ekki allt eins og það á að vera þegar íslenskur ríkis- borgari þarf að leita sér læknisaðstoðar í Serb- íu,“ segir Grétar. Leggur inn í karmabankann DV fjallaði í október- lok um góðverk Grétars þegar hann keypti mat og aðr- ar nauðsynjar fyrir þurf- andi einstaklinga í stað þess að halda afmælisveislu. „Að hitta þessi krakkagrey um helgina. Aug- un sýndu glögglega hversu glor- hungruð, hrædd og þreytt þau voru. Það er of margt fólk í samfélaginu sem bráð- vantar allt,“ sagði Grét- ar og lét svo sannar- lega kné fylgja kviði í góðverkunum. „Þegar upp var staðið hafði ég keypt mat fyrir rúm- lega hálfa milljón og rétt fyrir jólin eldaði ég mat fyrir um 170 manns. Ég er að leggja inn í karmabankann og von- andi skilar það sér í færri slysum og óhöppum á árinu,“ segir Grétar. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Marinn Grétar þurfti að fara í tvær aðgerð- ir á brjósti fyrir rúmum þremur árum. Blóðugur Þessi skurður var afleiðing þess að Grétar var að festa spegil á vegg. Hann gekk aðeins of hart fram með þeim afleiðingum að spegillinn sprakk og glerbrotum rigndi yfir hann. „Ég er búinn að vera hrak- fallabálkur allt mitt líf. Vinnum fyrir öll tryggingafélög Skútuvogi 12h, Reykjavík S: 568-9620 - bilaretting.is Útvegum bifreið meðan á viðgerð stendur Glæsibær · Sími: 571 0977 · Opið 10-18 · www.deluxe.is Fjölbreyttar vörur og úrval meðferða Andlitsbað með lúxusmaska eftir húðgerð hvers og eins, þar sem leitast er eftir því að ná fram því besta fyrir húðina þína með hágæða vörum. Frábær slökun og vellíðan. Skorinn á háls í Serbíu Skurður eftir að æxli var fjarlægt úr hálsi Grétars.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.