Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 40
Helgarblað 6.–9. janúar 201732 Heilsa V ið höfum heyrt um og jafnvel orðið vitni að því þegar ungt fólk er bráð­ kvatt í blóma lífsins, mögulega fyrir framan mörg þúsund manns á íþróttaleik­ vangi í fótboltaleik eins og dæmi eru um. Þá eru fjöldamörg tilvik um skyndidauða hjá ungu fólki í öðrum íþróttagreinum sem og utan íþrótt­ anna. Þetta eru fyrirvaralausir atburð­ ir alla jafna og líkurnar á að lifa slíkt af byggja á því að einhver sé ná­ lægur og geti brugðist við á réttan hátt. Orsök fyrir slíkum hörmu­ legum atburðum er oft og tíðum hjartsláttaróregla, en afar mikil­ vægt er að hjartað slái í réttum takti og viðhaldi þannig dælugetu sinni. Ýmsar ástæður geta legið til grundvallar slíku og það er munur á einstaklingum eftir aldri. Mörg atriði þarf að hafa í huga Hjá þeim eldri er líklegasta orsök­ in fyrir skyndidauða undirliggjandi hjarta­ sjúkdóm­ ur og bráð kransæðastífla þar sem blóðflæði til hjartans rask­ ast skyndilega. Þegar slíkt gerist getur hjartað ekki starfað eðlilega, fer á yfirsnúning og hættir að dæla blóði til líkamans. Það köllum við sleglatif og er ígildi hjartastopps. Þó eru mjög mörg atriði sem þarf að hafa í huga sem geta valdið hjart­ sláttartruflunum en þar á meðal eru veggbreytingar í hjartanu, ör í hjartavegg eins og eftir fyrra hjarta­ áfall, hár blóðþrýstingur, sykursýki, skjaldkirtilssjúkdómur, áfengis­ og vímuefnanotkun, koffeindrykkir, streita, lyf og svo auðvitað ýmis fæðubótarefni. Ekki alltaf hætta á ferð Ekki eru allar takttruflanir hættu­ legar og þá er afar mismunandi hversu mikið einstaklingurinn finnur fyrir þeim. Þær geta komið fram á nóttunni þegar viðkom­ andi sefur, undir álagi í íþróttum en einnig í hvíld uppi í sófa. Al­ mennt er þeim skipt í flokka sem eru annars vegar skilgreindir út frá því hvar í hjartanu þær eiga sér stað, hraða þeirra og því hvort þær eru reglulegar eða óreglulegar, við­ varandi eða tilfallandi. Yfirleitt er ekki hægt að greina nákvæmlega hvers eðlis truflanirnar eru nema með því að taka hjartalínurit og getur verið talsverður höfuðverk­ ur að ná því þar sem ekki þarf að vera nein regla á því hvenær takt­ truflanir koma fram og geta jafnvel liðið margir mánuðir eða ár á milli atburða. Sumir, þá sérstaklega eldri einstaklingar, greinast fyrir tilviljun með breytingar á hjartslætti sem jafnvel eru viðvarandi en þeir taka ekkert eftir. Slíkt getur í sumum til­ vikum leitt til hjartabilunar og eða heilaáfalla. Vertu meðvitaður Eins og dæmin sanna getur það þó verið spurning um líf eða dauða að finna þær truflanir sem eru alvar­ legar og er skynsamlegt að leita læknis ef einstaklingurinn finnur fyrir slíku, jafnvel þótt þær séu ekki til staðar við komu þangað getur sagan og lýsing einkenna gefið vís­ bendingar um hver næstu skref ættu að vera. Vísindaheimurinn er enn að reyna að verða sammála um það hvenær sé skynsamlegt að taka hjartalínurit í hraustum einkenna­ lausum einstaklingum samanber íþróttamenn og sitt sýnist hverjum. Ljóst er þó að til þess að greina einstaklinginn rétt þarf í grunninn hjartalínurit í hvíld, stundum und­ ir álagi og mjög oft með sírita til að geta séð truflunina. Oftsinnis þarf að bæta við þessar rannsóknir óm­ skoðun og annarri myndgreiningu og jafnvel gera hjartaþræðingu auk þess sem gerðar eru blóðrannsókn­ ir. Hjá þeim sem greinast og þurfa meðferð getur hún verið býsna margbrotin og allt frá lyfjum sem halda hjartsláttartruflunum í skefj­ um yfir í það að rafvenda hjartanu í réttan takt. Ýmsar aðgerðir eru til sem eiga að tryggja réttan gang hjartans eða stoppa óreglu fari hún af stað með litlum eða engum fyrir­ vara. Þar er átt við brennslu á leiðni­ brautum, ísetningu gangráðs og/ eða bjargráðs yfir í stórar hjartað­ aðgerðir allt eftir því á hvaða grunni vandi viðkomandi einstaklings er. Vertu því meðvitaður um hjartað þitt og láttu fylgjast með þér reglubundið til að tryggja það að þú tikkir rétt! n Að tikkA rétt n Hjartsláttaróregla getur verið orsök skyndidauða n Mikilvægt að vera meðvitaður Teitur Guðmundsson læknir „Eins og dæmin sanna getur það þó verið spurning um líf eða dauða að finna þær truflanir sem eru alvarlegar Hjartasjúkdómar Mikilvægt er að fólk sé meðvitað um hjarta sitt og láti fylgjast með sér reglubundið. Sönn samkeppni Allar gerðir hleðslutækja fyrir Apple tölvur. Verð: 11.990 kr. Magsafe hleðslutæki → Inni- og útimerkingar → Sandblástursfilmur → Striga- og ljósmyndaprentun → Bílamerkingar → Gluggamerkingar → Prentun á símahulstur → Frágangur ... og margt fleira Skoðaðu þjónustu okkar á Xprent.is SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.