Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 31
Helgarblað 6.–9. janúar 2017 Kynningarblað - Heilsa 7
Slökun og upplifun
– Betra útlit og bætt líðan
Unique hár & spa
H
árgreiðslu- og snyrtistofan
Unique hár & spa fagnar
núna tíu árum í Borgar-
túni 29 en stofan hefur þó
starfað enn lengur eða í alls
16 ár. Unique hár & spa býður upp
á mjög fjölbreytta og víðtæka þjón-
ustu sem miðar að vellíðan við-
skiptavina, bættu útliti og frábæru
hári. Eigandi stofunnar er Jóhanna
María Gunnarsdóttir, sem aldrei er
kölluð annað en Jóa. Auk hennar
starfa 12 manns á stofunni, hár-
greiðslumeistarar, snyrtifræðimeist-
arar og fótaaðgerðafræðingur.
Á Unique kemur fólk í litun og
klippingu, blástur og greiðslur.
Meðferðirnar sem í boði eru inni á
spainu eru fyrir andlit, hendur, fæt-
ur, líkama og einnig vaxmeðferð –
jafnt fyrir konur sem karla.
Mikið er lagt upp úr því að miða
þjónustuna að þörfum hvers og eins,
til dæmis í mismunandi möguleik-
um í andlitsmeðferðum:
„Hægt er að velja um 30, 60 eða 90
mínútur, sem fer þá bæði eftir tím-
anum sem fólk hefur í meðferðina
og þörfum þess. Ef þú ert í 30 mín-
útur er lögð aðaláhersla á einhvern
einn þátt, ef þú ert í 60 mínútur er
áherslan á tvo þætti sem húðina
vantar. Í 90 mínútna meðferðinni er
möguleiki á þremur áhersluþáttum
sem henta þinni húð,“ segir Jóa og
bendir jafnframt á að hún telji and-
litsmeðferðirnar vera einhverja þá
bestu slökun sem hægt sé að ná sér
í: „Það er ekkert betra en 90 mínútna
andlitsbað í janúar.“
Jóa segir að mikil þörf sé á að fólk
komi í fótsnyrtingu: „Það er alltaf
vitlaust að gera hjá fótaaðgerða-
fræðingnum mínum. Fótaaðgerð-
ir eru mikilvægar fyrir heilsu og
vellíðan en geta einnig verið fyrir-
byggjandi fyrir fótavandamál seinna
meir.“
Slökum á og upplifum frábæra
þjónustu
Hjá Unique hár & spa getur fólk nýtt
sér ólíkar meðferðir í sömu ferðinni:
„Vinsælast hjá okkar viðskiptavinum
er að bóka á snyrtistofuna í litun og
plokkun, hand-, fót- eða vaxmeðferð
og nýta þannig biðtímann á meðan
liturinn bíður í hárinu,“ segir Jóa. n
Sem fyrr segir er Unique hár & spa
til húsa að Borgartúni 29 í Reykja-
vík. Opið er mánudaga frá kl. 9 til 16,
þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtu-
daga frá 9 til 18 og föstudaga frá 9 til 16.
Síminn er 552-6789.
Ítarlegar upplýsingar er að finna á
vefsíðunni unique.is og Unique hár &
spa er líka á Facebook.
Starfsfólk Unique á jólatjútti
fyrir skömmu.
Unique hár & spa
býður nýjasta
hársnyrti meist-
arann, Lilju Rut
Kristjánsdóttur,
velkomna til
starfa.