Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 47
Helgarblað 6.–9. janúar 2017 Menning 39
K
öld, harðger og groddaleg
en jafnframt melódísk raf-
tónlist, sem vísar í hljóð-
heim níunda og tíunda
áratugarins, með hrjúfa
og lífræna áferð sem fæst með-
al annars með heimasmíðuðum
hljóðgervlum og trommuheilum.
Þannig mætti lýsa tónlistinni á
fyrstu plötu Kuldabola, Vafasamur
lífsstíll, sem kom út á dögunum
hjá grasrótarútgáfunni Hið Myrka
Man.
Seldi bassann og
keypti gamla hljóðgervla
Kuldaboli er sólóverkefni Arnars
Más Ólafssonar sem hefur meðal
annars gefið út raftónlist undir
nafninu Ultraorthodox en var áður
gítar- og bassaleikari í ýmsum
þungarokkhljómsveitum.
„Ég byrjaði í hardcore-pönki
og metalcore-i – spilaði á gítar og
bassa í jaðarsenunni sem var þá í
gangi – en ég hafði alltaf áhuga á
raftónlist samhliða því. Þegar síð-
asta hljómsveitin sem ég var í, Cel-
estine, hætti sá ég ekki fram á að
nenna að spila meira pönk eða
þungarokk, svo ég fór að gera tón-
list einn í tölvunni og gefa út und-
ir nafninu Ultraorthodox,“ seg-
ir Arnar Már, en tvær plötur hafa
komið út undir þeim hatti á síð-
ustu árum og vakið nokkra athygli.
Hann segir hins vegar vera
grundvallarmun á þessum tveim-
ur verkefnum, enda sé tón-
list Ultraorthodox öll smíðuð á
tölvuhugbúnað en hljóðin á Kulda-
bola komi úr utanáliggjandi raf-
hljóðfærum, jafnt aðkeyptum sem
heimasmíðuðum.
„Fyrir um það bil tveimur árum
seldi ég bassann minn og keypti
nokkra gamla eitís-„syntha“ í stað-
inn og fór að smíða lög á þá. Upp
frá því fór ég að hafa mjög mikinn
áhuga á „analog hardware“ og datt
inn á D.I.Y. samfélag á netinu með
áherslu á heimasmíðuð hljóðfæri,
þá byrjaði ég að smíða mínar eig-
in græjur: hljóðgervla og trommu-
heila. Smám saman söfnuðust
upp lögin sem ég hafði gert á þessi
hljóðfæri svo ég ákvað að stofna
Kuldabola. Um það bil helming-
ur hljóðanna á plötunni er fram-
kallaður á heimasmíðuð hljóðfæri.
Þannig að ég held ennþá í D.I.Y.
nálgun pönksins,“ segir Arnar og
vísar þar í hin alþekktu einkunnar-
orð pönksins „gerðu það sjálfur“
eða „do it your self.“
Nýtt heimsmet
í kvíðakasti karla
„Kuldaboli hljómar allt öðruvísi
en það sem ég hef verið að gera
með Ultraorthodox. Það er allt
önnur stemning, þetta átti líka að
vera meira „In-your-face“, hrárra,
ekki jafn dularfullt og svo vildi ég
leyfa mér að vinna með einhvern
svartan húmor,“ segir Arnar Már
en húmorinn má ekki síst greina
í yfirmáta þungbúnum lagatitlum
á borð við Alvarleiki ástandsins,
Maður er negldur, Hugarfóstur-
eyðing og Nýtt heimsmet í kvíða-
kasti karla.
„Góður lagatitill getur gert lag
miklu sterkara. Þetta eru bara mis-
munandi hliðar á sama teningnum.
Það skiptir máli fyrir upplifunina á
laginu að nafnið passi,“ segir Arnar
Már.
Vafasamur lífsstíll kemur út
hjá grasrótarútgáfunni Hið myrka
man, sem er rekið af Sólveigu
Matthildi og Margréti Rósu úr Kæl-
unni miklu.
„Við Sólveig höfðum lengi talað
um að hún myndi gefa eitthvað út
eftir mig. Þær eru að gera mjög kúl
hluti með þessa útgáfu. Þetta er al-
gjör grasrót og ég fíla stemninguna
í kringum hana. Dulvitund-plat-
an er mjög góð og líka tónleikarnir
sem þær hafa verið að halda.“
Nú er platan þegar komin út á
netinu en er væntanleg á kassettu
og geisladisk, af hverju notast þú
við það útgáfuform?
„Það er svo ógeðslega dýrt að
pressa vínyl, en það er ekki dýrt að
gera geisladiska. Mér fannst kúl að
nota þetta format – sem er alveg
að verða úrelt. Mig langaði líka að
gera eitthvað meira en stafræna út-
gáfu, eitthvað sem fólk gæti fengið
í hendurnar.“
Útgáfutónleikar Kuldabola fara
fram á Gauknum í kvöld, föstu-
daginn 6. janúar. Húsið verður
opnað klukkan 21.00 en tónleik-
arnir hefjast seint. Aðgangseyrir er
1.000 krónur og Vafasamur lífsstíll
2015-2016 verður til sölu. n
Myrkur kuldaboli
með heimasmíðuð
hljóðfæri
n Kuldaboli gefur út sína fyrstu plötu n Vafasamur lífsstíll er gefin út af Hið myrka man„Fyrir um það bil
tveimur árum
seldi ég bassann minn
og keypti nokkra gamla
eitís-„syntha“ í staðinn og
fór að smíða lög á þá.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Við tökum upp söngvara,
hljóðfæraleikara, hljómsveitir,
hljóðbækur, og margt fleira
Stúdíó
NORN
Síðumúla 17, 108 Reykjavík • Sími 561 7200 • studionorn.is • facebook.com/studionorn
GlerborG
Mörkinni 4, reykjavík | SíMi 565 0000 | www.GlerborG.iS
„Ég held ennþá í D.I.Y.
nálgun pönksins