Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 38
Helgarblað 6.–9. janúar 201730 Skrýtið Sakamál S tundum er haft á orði að eplið falli ekki langt frá „eik- inni“ og burtséð frá þeirri staðreynd að eikur bera ekki epli þá má til sanns vegar færa að málshátturinn eigi einkar vel við Bandaríkjamanninn Gerald Armond Gallego. Uppruni Ef glæpagenum er til að dreifa yfir- höfuð og erfast þá voru þau Gerald í blóð borin, hvort tveggja í föður- og móðurætt. Þegar Gerald fæddist, árið 1946, var faðir hans, Gerald Al- bert Gallego, í San Quentin-fangels- inu. Eftir að hafa fengið reynslulausn tók Gallego eldri upp fyrri siði og var aftur settur á bak við lás og slá. Gallego eldri fékk enn og aftur reynslulausn sem síðar kostaði tvo lögregluþjóna lífið. Árið 1955 varð hann að lokum þess vafasama heiðurs aðnjótandi að verða fyrsti glæpamaðurinn sem geispaði gol- unni í nýjum gasklefa í ríkisfangelsi Mississippi sem einnig er þekkt sem Parchman Farm. Skal nú sjónum beint að elsku- legri móður Gallegos yngri, Lorraine Pullen Bennett Gallego. Innan vé- banda stórfjölskyldu hennar fyrir- fundust hvort tveggja morðingjar og barnaníðingar. Sjálf stundaði Lorraine vændi í skuggahverfum Sacramento og Ger- ald litli var ósjaldan notaður í sendi- ferðir af hórmöngurunum sem þar héldu til. Framtíðareiginkona Ef Gerald yngri moraði í glæpa- genum (ef svo má að orði kom- ast) þá var slíkt hið sama ekki uppi á teningnum hvað eina framtíðar- eiginkonu hans, Charlene Williams, áhrærði. Bernska Charlene var ævin- týri líkust. Faðir hennar, Charles, var dugnaðarforkur sem hafði unnið sig upp úr starfi búðarloku í stöðu fram- kvæmdastjóra keðju matvöruversl- ana. Charlene naut alls hins besta, óx úr grasi í einu af fínni hverfum Sacra- mento, var hæfileikaríkt og vel gef- ið einkabarn sem sýndi ótvíræða hæfileika í fiðluleik. En … svona upptalning býður oft upp á „en“ … í menntaskóla kom í ljós takmarkalítið dálæti Charlene á kynlífi, fíkniefnum og áfengi. Slíkt var dálætið að það var með naumindum að hún útskrifaðist úr menntaskóla, síðar flosnaði hún upp úr námi í háskóla og státaði, nán- ast á sama tíma, af tveimur skammlíf- um hjónaböndum. Hvað sem öllu þessu leið var það mat flestra sem til Charlene þekktu að hún væri einfaldlega ráðvillt og fordekruð ung kona. En það hékk sennilega fleira á spýtunni. Snemma beygist krókurinn Sem fyrr segir varð Gallego yngri aldrei þeirrar ánægju aðnjótandi að berja föður sinn augum; Lorraine sagði að faðir hans hefði látist af slys- förum og tók Gallego yngri þá sögu trúanlega. „Illvirki bernsku hans náðu eins konar hámarki þegar hann, þrettán ára, var fangelsaður fyrir að hafa kynmök við sex ára nágrannastúlku. » Loftsíur » Smurolíusíur » Eldsneytissíur » Kælivatnssíur » Glussasíur Túrbínur Bætir ehf. býður upp á viðgerðarþjónustu fyrir flestar gerðir túrbína. Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík Viðgerða- og varahlutaþjónusta í yfir 30 ár Bætir ehf hefur í rúm 30 ár boðið uppá alhliða viðgerða- og varahlutaþjónustu fyrir breiðann hóp viðskiptavina. Við þjónustum og útvegum varahluti í flestar tegundir dísilvéla og höfum mikla reynslu í ZF og Twin Disc gírum. Bætir ehf hefur um árabil boðið uppá há gæða varahluti, frá framleiðendum á borð við IPD og Interstate Mcbee, sem henta m.a. í vélar frá: Caterpillar® Cummins® Detroit Diesel® Nöfn vélaframleiðenda eru hér aðeins til upplýsinga og eru vörumerkin eign hvers framleiðanda. Cat® og Caterpillar® eru skrásett vörumerki í eigu Caterpillar Inc. Cummins® er skrásett vörumerki í eigu Cummins Engine Company. Detroit Diesel® er skráett vörumerki í eigu Detroit Diesel Corporation. n Vegur dyggðar var Gerald framandi n Charlene var blinduð af ást SkaðræðiSSkötuhjú Hjónakornin Charlene kolféll fyrir Gerald.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.