Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Qupperneq 34
Umboðsmaður keppninnar hér á landi er athafnakonan Manuela Ósk Harðardóttir og Bandaríkja-
maðurinn Jorge Esteban. Þau kynntust
fyrir nokkrum árum þegar vinkona hans
leigði íbúð móður Manuelu í gegnum
Airbnb. „Jorge hefur starfað í kringum
fegurðarsamkeppnir í fjölmörg ár og
hann setti sig í samband við mig eftir
þessa ábendingu frá vinkonu hans,“ segir
Manuela. Síðar lentu þau saman í flugi
til Bandaríkjanna og létu færa sig saman.
„Þá ræddum um tækifæri á þessum vett-
vangi hér heima og í kjölfarið ákváðum
við að sækja um Miss Universe fyrir
Ísland og fengum, þannig að árið í ár er í
annað sinn sem við höldum keppnina.“
Manuela þekkir sjálf vel heim
fegurðarsamkeppna en hún vann Ungfrú
Ísland árið 2002. Í fyrra var það Hildur
María Leifsdóttir, Miss Glacier Lagoon,
sem bar sigur úr býtum í Miss Universe
Iceland og tók hún þátt í aðalkeppninni
á Filippseyjum í janúar 2017. Í ár taka 20
stúlkur þátt og fjórar þeirra endurtaka
leikinn frá því í fyrra.
„Þær fjórar sem tóku þátt í fyrra,
höfðu forgang inn aftur,“ segir Manuela.
„Í ár verður ný dómnefnd, allt erlendir
gestir eins og í fyrra.“
Það er Aníta Ísey Jónsdóttir sem sér
um sviðsmynd líkt og í fyrra og má búast
við spennandi keppni í september. Birta
mun fjalla nánar um keppnina og alla
keppendur eftir því sem nær dregur.
Myndir Björn Blöndal
Miss
Universe
iceland 2017
Undirbún
ingur hafinn
fyrir fegurðar
samkeppnina
Þátttakendur í keppninni um Miss Universe Iceland
2017 eru nú byrjaðir í undirbúningi fyrir keppnina,
sem haldin verður mánudaginn 25. september
næstkomandi í Gamla bíói. Í ár taka 20 stúlkur
víðs vegar að af landinu þátt.
Spenntar að hefja undirbúning
Lilja Dís Kristjánsdóttir, 22 ára Miss Mosfells
bær, Helena Hrönn Haraldsdóttir, 19 ára Miss
Western Iceland, og Viktoría Diljá Eðvarðs
dóttir, 20 ára Miss Sólfar.
töff vinkonur Vinkonurnar
Jenný Sulollari, 23 ára Miss Gull
foss, og Dagbjört Rúriksdóttir, 22
ára Miss East Reykjavík.