Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 2
2 Helgarblað 14. júlí 2017fréttir Spurning vikunnar „Nei, ég hef ekki mikinn áhuga á íþróttum yfirhöfuð.“ Þorbjörg Anna Gísladóttir „Algjörlega. Ég held að þeim muni ganga mjög vel. Ég spái því að þær vinni mótið.“ Hannes Arnarson „Já og er byrjaður. Ég spái því að þær fari í undanúrslit.“ Hreiðar Stefánsson „Jú, auðvitað. Þær eru svo duglegar að þær lenda örugglega ofarlega.“ Guðrún Einarsdóttir Ætlarðu að fylgjast með stelpunum okkar á EM? Stóraukinn lestur DV Samkvæmt nýbirtum niðurstöð- um Gallup um lestur prentmiðla jókst lestur á DV um 36% á milli mánaðanna maí og júní. Þannig mældist blaðið með 10,5% lestur í júní en hafði mælst með 7,7% lestur í maí. Í könnuninni mæld- ist Fréttablaðið með mestan lestur eða 44,6%, Morgunblað- ið með 25,7% og Viðskiptablað- ið með 9,6% lestur. Þetta er fyrsta lestrarmæling Gallup sem birt- ist eftir að útgáfudögum DV var fækkað og helgarblaðið stóreflt með tilkomu fylgiblaðsins Birtu. Þá hefur netmiðillinn dv.is verið í mikilli sókn undanfarin misseri og er þriðji vinsælasti netmið- ill landsins, að jafnaði með um 90 þúsund daglega notendur og um 300 þúsund notendur í síð- ustu viku. Starfsfólk DV er afar ánægt með góðar viðtökur og mun halda áfram að reyna að bæta og styrkja blaðið með hverri vikunni sem líður. Umfangsmikil viðskipti ReykjavíkUR- boRgaR við kennitölUflakkaRa Sex fyrirtæki eigandans hafa farið í þrot frá árinu 2007 v erktakafyrirtæki sem nú er starfrækt að minnsta kosti á fjórðu kennitölunni hef- ur á árinu landað tveim- ur stórum verkefnum í útboð- um Reykjavíkurborgar. Þá hefur stofnandi fyrirtækisins keyrt sex félög í þrot frá árinu 2007. Verk- in sem fyrirtækin lönduðu er bygging nýrrar stúku við leikvöll Þróttar í Laugardalnum sem og rúðuskipti í gjörvöllum Kletta- skóla. Áætlaður kostnaður við verkin er um 125 milljónir króna. Eigandi fyrirtækisins er með slóð gjaldþrota í sinni viðskiptasögu og rannsakar skattrannsóknar- stjóri meint brot í tengslum við rekstur fyrirtækjanna. Innkaupa- reglur Reykjavíkurborgar ganga ekki nógu langt til þess að stöðva athæfið. Sex gjaldþrot frá árinu 2007 Verktakafyrirtækið sem um ræð- ir heitir Viðhald og viðgerðir ehf. Félagið var stofnað í nóvember 2015 af athafnamanninum Krist- jáni Ólasyni sem hefur frá árinu 2007 stofnað eða verið í forsvari fyrir sex önnur verktakafyrir- tæki sem öll eru orðin gjaldþrota. Skattrannsóknarstjóri hefur rannsakað málefni fyrirtækjanna undanfarin misseri. Í nóvember 2007 samþykkti Samband íslenskra sveitarfé- laga fyrirmynd að innkauparegl- um sveitarfélaga. Þar var mælst til þess að sveitarfélögum væri heimilt að kanna viðskiptasögu eigenda og ef sú könnun leiddi í ljós að eigandi eða fyrirtæki hans hafi lent í greiðslustöðvun eða gjaldþroti undanfarin fimm ár bæri að vísa honum frá útboð- inu, enda ætti í hlut samskon- ar rekstrareining, með sömu eða nær sömu eigendur, í sömu eða nær sömu atvinnustarfsemi, en nýja kennitölu. Gildandi innkaupareglur Reykjavíkurborgar voru sam- þykktar á borgarráðsfundi þann 8. maí 2014 í borgarstjórnartíð Jóns Gnarr. Í þeim var ekki gengið jafnlangt og Samband íslenskra sveitarfélaga lagði til sjö árum fyrr. Aðeins er heimilt að kanna viðskiptasögu stjórnenda fyrir- tækja ef talið er að fyrirtæki hafi gefið rangar upplýsingar um fjár- hagslega og tæknilega getu sína eða hefur ekki lagt slíkar upplýs- ingar fram. Þessi tregða embættismanna og borgarfulltrúa þess tíma til að stemma stigu við kennitölu- flakki hefur gert það að verkum að erfitt er að koma í veg fyrir að fyrirtæki, hvers eigendur eru með sviðna jörð eftir sig í viðskiptalíf- inu, landi stórum verkefnum hjá Reykjavíkurborg. DV óskaði eftir nánari útskýringum frá Reykja- víkurborg í byrjun vikunnar en svör höfðu ekki borist áður en blaðið fór í prentun. DV gaf Kristjáni Ólasyni færi til þess að tjá sig um málið en hann kaus að þiggja það ekki. Hann vildi einnig bíða þar til dómstól- ar myndu kveða upp sinn dóm um rannsókn skattrannsóknar- stjóra. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is 1. Í ágúst 2007 stofnaði Kristján verktakafyrirtækið TS Málun ehf. ásamt Kjartani Inga Kjartanssyni. Félagið var úrskurðað gjaldþrota þann 14.september 2009. 2. Í október 2007 stofnaði Kristján verktakafyrirtækið TS Hús ásamt áðurnefndum Kjartani og Lúðvíki Vilhelmssyni. Félagið var úrskurðað gjaldþrota þann 17.maí 2010. 3. Í janúar 2008 stofnaði Kristján TS Byggingar ehf. ásamt Jóni Óskarssyni og Sæmundi Arngrímsson. Félagið var úrskurðað gjaldþrota þann 19.desember sama ár 4. Í febrúar 2009 stofnaði Kristján, eins síns liðs, fyrirtækið Allt viðhald ehf. Félagið var úrskurðað gjaldþrota þann 4.mars 2015. 5. Í apríl 2013 stofnaði Kristján félagið Viðhald og múr ehf. ásamt Hermanni Ragnarssyni og Ingþóri Pétri Þorvaldssyni. Fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota þann 18.febrúar 2015. 6. Í desember 2014 tók Kristján yfir félagið IÞ Flutningar ehf. og breytti heiti þess í Viðhald og endurbætur ehf. Hann varð fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins og fór með prókúruumboð. Kristján lét af framkvæmdastjórastöðunni þann 8.júní 2015. Hann hélt prókúruumboðinu allt þar til að fyrirtækið var úrskurðað gjald- þrota þann 16.júní 2016. 7. Í nóvember 2015 stofnaði Kristján Viðhald og viðgerðir ehf. Félagið er enn í rekstri og tveimur stórum verkefnum í útboði hjá Reykjavíkurborg á árinu. Samanlagt andvirði verkanna er um 125 milljónir króna sviðin jörð brot af viðskiptasögu kristjáns Ólasonar Klettaskóli Áætlaður kostnaður við gluggaski ptin var 26 milljónir króna. Viðhald og viðgerðir ehf. bauð 24,5 milljónir, 94,2% af kostnaðaráætluninni, og landaði verkinu. MynD DV Sigtryggur Ari Stúkan í Laugardalnum Kostnaðurinn við að endurbyggja stúkuna er um 100 milljónir króna. MynD DV Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.