Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 60
36 menning Helgarblað 14. júlí 2017
Í
stigagangi blokkar við Baróns-
stíg er starfrækt lítið gallerí með
stórt nafn, Listasafníslands.is.
Það er myndlistarmaðurinn
Sindri Leifsson sem rekur galleríið
í gömlu baðherbergi sem staðsett
er undir stiga í kjallara hússins.
„Nágrannarnir af efri hæðunum
hafa tekið mjög vel í þetta og hafa
svolítið verið að kíkja á sýningarn-
ar. Þetta er náttúrlega frábær nýt-
ing á rýminu - að nota það undir
innsetningar í staðinn fyrir að fylla
það með drasli,“ segir Sindri.
Galleríið var opnaði formlega í
júlí í fyrra með sýningu Unndórs
Egils Jónssonar Bílrúðuskafa #5 og
nú stendur yfir önnur sýning gall-
erísins. „Það er alltaf haldin opnun
þar sem er skálað í rósavíni – sem
er drykkur Listasafnsíslands.is –
en eftir það er bara opið eftir eftir-
spurn. Fólk getur sent mér tölvu-
póst á info@listasafnislands.is og
fær þá að kíkja á sýningum og í
kaffibolla hjá mér ef það vill.“
En af hverju ákvaðstu að nefna
galleríið þessu sérstaka nafni?
„Ég sá að vefsíðan var laus og
hoppaði bara á þetta. Mér finnst
þetta vera svolítil tilvísin í það
post-2000 neo-digital fyrirbæri á
Íslandi þegar léninu .is var bætt
við vel þekkt vörumerki til að gefa
þeim ferskt yfirbragð: Skyr.is, Ung-
frúÍsland.is og svo framvegis. Á
sama hátt vona ég að ég nái að
koma með nýtt sjónarhorn á þetta
fyrirbæri: þjóðarsafn Íslendinga,“
segir Sindri.
Hann telur ekki að nafnið muni
fara fyrir brjóstið á aðstandend-
um Listasafns Íslands og segir þau
ekki hafa kvartað yfir líkindum
nafna þessara tveggja ólíku list-
stofana hingað til. „Ég hef boðið
þeim á báðar opnanirnar en það
hefur enginn látið sjá sig – sem er
leiðinlegt því ég mæti alltaf á opn-
anir hjá þeim. Nýlega höfðu þau
reyndar samband og voru eitthvað
að forvitnast, en þau hafa ekki lagt
fram neinar kröfur. Ég er náttúr-
lega ekki að reyna að græða neitt
á þessu, heldur fyrst og fremst að
gera þessar innsetningar sem að-
gengilegastar. En ég hef líka glugg-
að örlítið í reglur Isnic, og mér sýn-
ist reglan um lénin vera einföld:
fyrstur kemur fyrstur fær.“
Sýningin sem stendur nú yfir
í galleríinu nefnist Re-sieve og er
eftir listakonuna Florence Lam,
sem er alin upp í Hong Kong en
búsett hér á landi. Eldhússigti full
af hveiti hangir í miðju rýminu
en nokkur korn af hveiti hafa far-
ið í gegnum sigtið og liggja nú á
jörðinni. „Þetta verk virkjast með
íbúum sameignarinnar. Í hvert
skipti sem að fólk gengur niður
stigann í sameigninni eða skellir
útidyrahurðinni þá sigtast pínu-
lítið af hveiti úr sigtinu. Þaðan kem-
ur nafnið re-sieve,“ segir Sindri en
orðið er snúningur á enska orðið
„receive“ sem þýðir að taka á móti
eða veita inngöngu en með þessari
óvenjulegu stafsetningu þýðir það
frekar að endur-sigta.
„Florence vinnur verk sín yfir-
leitt út frá einhverjum gjörningi,
gerir performatífar innsetningar.
Mér fannst það hvernig hún hugs-
ar rými og stað akkúrat smella hér
inn,“ segir Sindri. „Ég vil líka nota
vefsíðuna sem rými þar sem efni
tengt sýningunni verður gert sér-
staklega aðgengilegt. Í þessu tilviki
verða reglulega teknar og birtar
myndir af hveitihrúgunni sem er
á gólfinu – þar safnast alltaf meira
og meira upp eftir því sem fólk
gengur oftar um sameignina.“ n
„Þetta er tilvísin í
það post-2000
neo-digital fyrirbæri á
Íslandi þegar léninu .is var
bætt við vel þekkt vöru-
merki til að gefa þeim
fersk yfirbragð: Skyr.is,
UngfrúÍsland.is og svo
framvegis.
Listasafníslands.is starfrækt
í stigagangi við Barónsstíg
Sindri Leifsson rekur lítið gallerí sem stórt nafn í gömlu baðherbergi
„Mér sýnist reglan
um lénin vera einföld:
fyrstur kemur fyrstur
fær,“ segir Sindri Leifsson
um vefsíðuna Listasafnís-
lands.is og galleríið sem hann
heldur úti undir sama nafni í
stigaganginum heima hjá sér.
Mynd Sigtryggur Ari
Kristján guðjónsson
kristjan@dv.is
Endur-sigtað Listasafníslands.is er staðsett í kjallararými sem áður hýsti baðherbergi
undir stiganum í blokk við Barónsstíg. Nú stendur þar yfir sýningin Re-sieve eftir Florence
Lam. Mynd Sigtryggur Ari
Skrifar undir
útgáfusamning
Á miðvikudag var tilkynnt að
Högni Egilsson, tónskáld og tón-
listarmaður, sem meðal annars
hefur gert garðinn frægan með
hljómsveitunum Hjaltalín og
GusGus, hefði skrifað undir út-
gáfusamning við breska útgáfu-
fyrirtækið Erased Tapes. Útgáfu-
fyrirtækið leggur sérstaka áherslu
á framúrstefnutónlist og meðal
listamanna sem gefa út hjá fyr-
irtækinu eru Nils Frahm, Ólafur
Arnalds og Kiasmos. „Ég hef
fylgst mikið með fyrirtækinu á
undanförnum árum og get ekki
beðið eftir að starfa með þeim
í framtíðinni. Spennandi tím-
ar framundan,“ skrifaði Högni á
opinbera Facebook-síðu sína.
Vilja inn í
senuna
Austurríski orkudrykkjaframleið-
andinn Red Bull er nú að gera
sig líklegan til að færa sig inn á
íslenskan tónleika- og viðburða-
markað í auknum mæli með
nýráðnum viðburðastjóra og
nokkuð reglulegu tónleikahaldi.
Ein helsta auglýsing fyrirtækisins
á heimsvísu felst í skipulagi list-
og íþróttaviðburða sem flagga
merki fyrirtækisins í hvívetna. Á
tónlistarsviðinu heldur Red Bull
úti svokallaðri tónlistarakadem-
íu sem stendur fyrir kennslu,
tónleikum, netútvarpsstöðv-
um og fjölmörgu öðru tónlistar-
tengdu efni. Í sumar hefur Red
Bull Music Academy orðið meira
áberandi í íslensku tónlistar-
lífi en áður, meðal annars haldið
rapptónleika á Kex Hostel og nú
um helgina stendur fyrirtækið
fyrir fyrirlestri og klúbbakvöldi
með bandaríska teklife-plötu-
snúðinum DJ Earl á Húrra.
nafnið þótti of
pólitískt
Artgallerí-Gátt er nýtt nafn lista-
mannarekna gallerísins sem áður
hét Anarkía. Galleríið hefur verið
starfrækt í Kópavogi undanfarin
fjögur ár og hefur bæði sýnt verk
eftir lærða listamenn og leikna.
Nafnbreytingin var ákveðin á
aðalfundi gallerísins í júní. „Er-
lendum listamönnum finnst
Anarkía einfaldlega of pólitískt
tengt og eru þess vegna hikandi
við að sýna hjá okkur. Það var
því ákveðið á síðasta aðalfundi
að taka upp ARTgallerý-Gáttar
nafnið og nú strax á sumarsýn-
ingum gallerísins erum við að fá
marga erlenda listamenn sem
sýna hjá okkur undir nýju nafni,“
segir í tilkynningu frá galleríinu.
Næsta sýning í galleríinu verð-
ur opnuð 20. júlí þegar Mon-
ique Becker og Hugo Mayer opna
sýningu á verkum sínum auk Jó-
hönnu Þórhallsdóttur.