Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 10
10 fólk Helgarblað 14. júlí 2017
Marpól ehf. • Nýbýlavegur 18,
Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur
Sími: 660 1942 • marpol.is
Alvöru
kísilhreinsir
sem virkAr!
Frábær á sturtugler, baðkör,
vaska, keramikhelluborð,
bakaraofna og margt fleira.
Marpól ehf. • Nýbýlavegur 18,
Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur
Sími: 660 1942 • marpol.is
Alvöru
kísilhreinsir
sem virkAr!
Frábær á sturtugler, baðkör,
vaska, keramikhelluborð,
bakaraofna og margt fleira.
Marpól ehf. • Nýbýlavegur 18,
Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur
Sími: 660 1942 • marpol.is
Alvöru
kísilhreinsir
sem virkAr!
Frábær á sturtugler, baðkör,
vaska, keramikhelluborð,
bakaraofna og margt fleira.
Marpól ehf. • Nýbýlavegur 18, Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur • Sími: 660 1942 • marpol.is
Marpól ehf. • Nýbýlavegur 18, Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur Sími: 660 1942 • marpol.is
Alvöru
kísilhreinsir
sem virkAr!
Frábær á sturtugler, baðkör, vaska, keramikhelluborð, bakaraofna og margt fleira.
M
yndlistarmaðurinn Krist-
inn Guðmundsson hefur
vakið athygli undanfarna
mánuði fyrir matreiðslu-
þættina SOÐ. Þættina tekur hann
upp einn síns liðs á vinnustofu
sinni í miðborg Brussel. Fyrstu
þættirnir voru birtir á Youtube og
hafði Kristinn að eigin sögn engar
væntingar varðandi móttökur.
Viðtökurnar hafa hins vegar verið
frábærar og verkefnið undið veru-
lega upp á sig. Nýlega festi Sjón-
varp Símans kaup á fyrstu serí-
unni. Galdur þáttanna er sá að
þeir fara í þveröfuga átt við aðra
íslenska matreiðsluþætti þar sem
gerilsneydd fágunin er allsráð-
andi og hugað er að hverju atriði
við útlit þáttanna. Í Soði er allt á
tjá og tundri, pottar og tól bera
með sér áralanga notkun, eldað
er á sjúskaðri ferðagashellu, upp-
skriftirnar eru ekki alltaf alveg
réttar enda ekki að undra því oft-
ar en ekki er Kristinn að elda þá í
fyrsta skipti. Það er ekki síst sviðs-
framkoma Kristins og sjarmi sem
gerir Soð-þættina að því sem þeir
eru enda hafa þessir eiginleikar
hans meðal annars landað hon-
um hlutverkum í danssýning-
um þrátt fyrir að hann hafi aldrei
lært dans. Kristinn er staddur
hér á landi þessa dagana í fríi
ásamt belgískri kærustu sinni og
því greip blaðamaður tækifærið
og skipulagði viðtal á kaffihúsi í
borginni.
Eldar heilan lambaskrokk í
heitum potti
Hið fyrsta sem kemur upp úr
dúrnum er að sumarfrí Kristins er
ekki meira afslappandi en svo að
hann nýtir tímann til þess að taka
upp nýja Soð-þætti með íslensku
ívafi. Þá mun hann í vikunni
bjóða vinum og aðdáendum þátt-
arins í Soð-boð, hið fyrsta sinnar
tegundar. „Ég ætla að draga út að
minnsta kosti þrjá dygga áhorf-
endur þáttarins og síðan mun ég
bjóða vinum og vandamönnum.
Ég elska að halda partí og þannig
kom hugmyndin til að halda Soð-
boð,“ segir Kristinn. Hann mun
beita hinni vinsælu sous-vide
matreiðsluaðferð í boðinu en
með heldur stórkarlalegum hætti.
„Ég ætla að elda heilan skrokk
í heita pottinum hjá foreldrum
mínum,“ segir Kristinn grafalvar-
legur. Hann skellir svo upp úr og
segist ætla að vera tilbúinn með
hamborgara á hliðarlínunni ef
hin metnaðarfulla matseld fer út
um þúfur.
Fann sig ekki í skóla
Kristinn er alinn upp í Keflavík og
snemma í samtalinu kemur í ljós
að hann ber íslensku skólakerfi
ekki vel söguna. „Ég fann mig
aldrei í skólanum. Ég hef mestan
áhuga á einhvers konar sköpun
og fór alveg á mis við það í skóla-
kerfinu. Afleiðingin var sú að ég
hafði ekki hugmynd um hvað ég
ætlaði að verða,“ segir Kristinn.
Að loknu grunnskólanámi skráði
hann sig í ljósmyndanám í Dan-
mörku en segja má að þaðan hafi
honum verið ýtt í myndlistar-
nám í Hollandi, við Gerrit Riet-
veld-akademíuna í Amsterdam.
Þaðan útskrifaðist hann með BFA
árið 2012 og hélt leið sinni áfram
í meistaranám við Dutch Art
Institute. „Ég byrjaði í deild sem
kenndi listsköpun með mynd og
hljóði. Það var gott enda kann
ég ekki að teikna,“ segir Kristinn.
Hann segir að mikið frelsi hafi
einkennt hans deild í skól anum
sem hentaði honum afar vel.
„Mér finnst gaman að leika mér
og prófa sem flest. Ég fékk rými til
þess í Hollandi og lærði helling af
því,“ segir Kristinn.
Strax á fyrsta degi kynntist
hann Austurríkismanninum
Peter Sattler og náðu þeir vel
saman. „Við urðum strax góðir
vinir og höfum síðan unnið
saman að margs konar listsköp-
un eftir að náminu lauk. Vin-
áttan hefur einmitt verið okkur
mikill innblástur,“ segir Kristinn.
Hann og Peter hafa unnið að
gjörningum, myndbandaverkum,
skúlptúrum, prenti og innsetn-
ingum. „Við líkjum oft listsköp-
un okkar við tré. Við byrjum í rót-
unum, með einhverja tiltekna
hugmynd, og vinnum okkur síð-
an upp í greinarnar. Þar fer hug-
myndavinnan oft í allar áttir eins
og greinar trésins. Síðan grisj-
um við tréð þannig að það standi
„Matreiðslu-
þættirnir SOÐ eru
ekki síst einstakir vegna
þeirrar staðreyndar að
mistökin sem eiga sér
stað eru ekki klippt burt
heldur látin fljóta með.
SOÐ-matreiðsluþættir myndlistarmannsins Kristins Guðmundssonar hafa vakið athygli
Heldur í
kærustuna
með matnum
Kristinn Guðmundsson
Matreiðsluþættirnir SOÐ sem
Kristinn tók upp einn síns liðs á
vinnustofu sinni í Brussel njóta
vaxandi vinsælda. Sjónvarp
Símans fjárfesti á dögunum í
fyrstu þáttaröðinni.
Mynd SiGtryGGur Ari
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is