Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 34
Ég og konan mín, Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir, vorum á kafi í líkamsrækt, fitness og
heilbrigðum lífsstíl. Þá notuðum
við fæðubótarefni til að ná enn
betri árangri,“ segir Halldór. „Í
mars 2007 fórum við saman á risa-
íþrótta- og líkamsræktarviðburð í
Columbus, Ohio sem heitir Arnold
Classic og er einn stærsti íþrótta-
viðburður í heimi. Þar fórum við
á risavörusýningu og áttuðum
okkur á hvað flóran heima var
óspennandi.“
Halldóri og Sunnu fannst vanta
bestu merkin frá Bandaríkjunum,
Optimum Nutrition og BSN, hér
heima og að fólk með metnað sem
vildi ná árangri ætti skilið að fá
bestu vörurnar sem í boði væru.
Þau fóru því að hugsa hvernig
þau gætu kynnt þessi vörumerki
á Íslandi, enda fannst þeim ekki
annað hægt en að finna leið til að
vörurnar væru í boði hér heima
Í júlí 2007 lagði Halldór
síðan allan sinn sparnað í fyrstu
sendinguna frá Bandaríkjunum og
bjó til litla búð í herberginu sínu
heima hjá foreldrum sínum. „Þar
afgreiddi ég fyrst um sinn allar
helgar milli þess sem ég var í námi
á Bifröst. Ári seinna opnuðum við
síðan verslun í Holtasmára og höf-
um verið þar alla tíð síðan.“
Góðar viðtökur og vöruúrval breikkað
Það hefur gengið ótrúlega vel
hjá okkur í þessi 10 ár og höfum
við verið að vaxa ár frá ári,“ segir
Halldór. „Fyrstu árin afgreiddum
við Sunna sjálf, en árið 2009 fórum
við að útvíkka starfsemina og selja
í heildsölu til Hagkaupa og annarra
smásöluaðila. Núna er það orðinn
mjög stór hluti af rekstrinum og við
erum með um 150 endursöluaðila
og höfum breikkað vöruúrvalið í
heildsölu og erum núna dreifingar-
aðilar fyrir vörumerki eins og
Sparkling Ice, Coldpress, Mr
Organic, auk þess að dreifa Amino
Energy og öðrum ON-vörum. Við
einbeitum okkur að því að koma á
markað vörum sem eru hollar og
góðar og geta verið hluti af hollu en
bragðgóðu mataræði."
Hvað hefur breyst á 10 árum?
Þegar við byrjuðum í þessu voru
fitness, vaxtarrækt og kraftsportið
algjörar jaðaríþróttir og svolítið
undir yfirborðinu. Í dag eru þessar
íþróttir orðnar mjög almennar og
fleiri flott ar íþróttir bæst við eins
og til dæmis Crossfit þar sem við
Ís lendingar erum að gera góða
hluti,“ segir Halldór. „Neyslu-
mynstrið hefur breyst gríðarlega þar
sem fæðubótar efni eru orðin hluti
af daglegu mataræði mjög margra
og fólk kaupir oftar en minna í einu.
Þetta er orðið hluti af matarkörfunni
hjá fólki og það er mikil sala sem fer
í gegnum smásöluaðila eins og til
dæmis Hagkaup og Krónuna.“
10 ára afmæli haldið með pomp og
prakt
„Afmælið gekk bara rosalega
vel,“ segir Hafsteinn Vilbergsson,
mark aðs stjóri Perform.is, „nema
sól in mætti loksins þegar við vorum
að pakka niður.“ Gestir létu það ekki
á sig fá, þótt væri skýjað og smá-
rigning og voru allir ánægðir með
það sem boðið var upp á.
„Við buðum upp á grillaða
hamborgara og ís frá Valdísi,“ segir
Hafsteinn. Afsláttur var gefinn í
búðinni og ráðgjöf i boði frá fitness-
þjálfurum og -keppendum. Einnig
voru hoppukastali og risabox á staðn-
um fyrir börnin. „Síðan vorum við
með dekkjaveltukeppni fyrir bæði
kyn, þar sem í verðlaun var úttekt í
versluninni fyrir besta tímann og það
voru þau Jóhanna og Hafsteinn Máni
sem unnu þau.“
Að sögn Hafsteinn er Perform.is
alltaf til í að brydda upp á nýjungum
og viðburðum og þau eru þegar byrj-
uð að hugsa um hver næsti viðburður
eigi að vera. „Við erum alltaf til í að
gera eitthvað nýtt og skemmtilegt,
en fyrst og fremst viljum við sinna
viðskiptavinum okkar vel og gera
betur fyrir þá.“
Styrkir fjölda íþróttamanna
Perform.is sem fékk viðurkenningu
Credit Info árið 2016 sem eitt af
framúrskarandi fyrirtækjum lands-
ins, er meira en bara verslun, því
þau Halldór og Sunna, auk Þormóðs
Jónssonar sem síðar varð meðeigandi
Perform.is, styrkja fjölda frábærra
íþróttamanna og þjálfara. „Í teyminu
okkar góða má meðal annars nefna:
OfurGísla sem er massaðasti lög-
fræðingur landsins, Konna, þjálfara
í World Class, snillingana í Betri
árangri, þau Ale Sif, Katrínu Evu og
Magga Bess, Teit Ara fitnessmeistara,
Hrönn og Hafdísi fitness drottningar
og Þröst Óla Crossfit,“ segir Halldór.
Síðastliðna helgi hélt Perform.is upp á 10 ára afmæli sitt en verslunin byrjaði í einu her-
bergi heima hjá foreldrum eins eigandans, Halldórs Arinbjarnar. Síðan þá hefur búðin
færst niður í Holtasmára, þar sem eigendur og starfsfólk gera sitt besta til að aðstoða
viðskiptavini sína við val á því sem þau telja bestu fæðubótarefnin sem eru í boði í dag.
AfmælisveislA hAldin
með pomp og prAkt
Perform bauð í 10 ára afmæli
Grill er Gott Haffi, Viktor og rakel
starfsmenn Perform.is sáu um að grilla ham-
borgara handa gestum. Mynd MuMMi Lú
VinninGsHafinn Hafsteinn Máni
náði 1. sæti. Mynd MuMMi Lú
sú fljótasta Jóhanna rúllaði upp 1. sætinu. Mynd MuMMi Lú
Velt á tíma Keppt var um hver væri
fljótastur að velta dekkinu. Mynd MuMMi Lú