Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 4
4 Helgarblað 14. júlí 2017fréttir
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Íbúar í miðborginni mót-
mæla nýju íbúðarhóteli á
gatnamótum Njálsgötu
og Barónsstígs
V
ið erum tortryggin út í hið
svokallaða aðalgötufyrir-
komulag, þar sem rekstr-
araðilar fá meira frelsi til
athafna en annars staðar. Við óttu-
mst að með því sé verið að lauma
trójuhesti inn í miðborgina og að
slík starfsemi skríði inn í hverfin
sem aldrei fyrr,“ segir Benóný Æg-
isson, formaður Íbúasamtaka
miðbæjarins. Benóný hefur, ásamt
fjölmörgum íbúum miðbæjarins,
mótmælt harðlega nýju íbúðar-
hóteli á Njálsgötureit sem er laum-
að, að þeirra mati, bakdyrameginn
inn í deiliskipulagið.
„Fólk þarf að geta treyst því að
ákvarðanir stjórnvalds standi“
Þann 23. mars síðastliðinn lagði
umhverfis- og skipulagssvið
Reykjavíkurborgar fram breytingu
á skilmálum Njálsgötureits nr.
1.190.3. Breytingin fólst í því að
heimilað var að hafa gististarfsemi
í húsinu enda er gengið inn í það
af Barónsstíg. Það er mikilvægt í
ljósi þess að helstu rökin eru þau
að Barónsstígur er skilgreind að-
algata sem þýðir að meira rými er
fyrir rekstur af slíku tagi á götunni.
Tillagan var auglýst frá 10. apríl til
22. maí 2016 og bárust yfir tutt-
ugu skrifleg mótmæli frá einstak-
lingum, foreldrafélagi leikskóla
og íbúasamtökunum sem Ben-
óný er í forsvari fyrir. Í mótmælum
íbúa kemur fram að byggingin hafi
upphaflega verið kynnt sem fjöl-
býlishús og þeir séu afar ósáttir við
meintan blekkingarleik borgaryf-
irvalda.
„Fólk þarf að geta treyst því
að ákvarðanir stjórnvalds standi,
sérstaklega ef það varðar búsetu
þess en íbúðakaup eru stærsta
fjárfestingin í lífi flestra,“ skrif-
aði Benóný til borgaryfirvalda til
að mótmæla framkvæmdunum.
Fór hann yfir sögu byggingafram-
kvæmda á reitnum sem að hans
mati er umhugsunarverð.
„Þar stóð áður friðað hús, byggt
1905. Sóst var eftir því að fá að rífa
það eða flytja burt og mótmæltu
Íbúasamtökin þeim fyrirætlun-
um árið 2013. Ekkert gerðist um
tveggja ára skeið nema það að
húsið varð að dópgreni eða afdrepi
fyrir útigangsfólk en árið 2015 var
gefið leyfi til að byggja fjölbýlishús,
fjórar hæðir og kjallara með átta
íbúðum og er það sú bygging sem
nú er risin. Friðaða húsið var fjar-
lægt,“ ritar Benóný.
Að hans sögn var síðan sótt um
leyfi árið 2016 til að breyta húsinu
í gististað í flokki II, með tíu gisti-
einingum en því var synjað. „Nú rís
þessi krafa enn á ný og ekki er gott
að sjá hvers vegna ljáð er máls á
henni núna en samkvæmt mynd-
um á Facebook er vinna í fullum
gangi við að innrétta íbúðahótel í
byggingunni. Nágrannar og aðrir
íbúar í miðborginni gera þá kröfu
til skipulagsyfirvalda í Reykja-
vík að þau framfylgi stefnu borg-
arinnar um að ekki rísi fleiri hót-
el í miðborginni, að umsókn um
gististarfsemi í húsinu verði aft-
ur synjað og að yfirlýstur tilgang-
ur þessarar byggingar um að hún
verði fjölbýlishús standi,“ skrifaði
Benóný.
Gagnrýnir aðalgötufyrirkomu-
lagið
Í samtali við DV segir Benóný að
einu gjaldgengu rökin frá borginni
séu þau að skýla sér á bak við áð-
urnefnt aðalgötufyrirkomulag. Að
hans mati er það misráðið. „Þetta
aðalgötufyrirkomulag kom inn
með aðalskipulagi borgarinnar
2010-2030. Þegar unnið var að því
held ég að menn hafi séð fyrir sér
eitt og eitt krúttlegt kaffihús en á
engan hátt þá sprengingu sem nú
hefur átt sér stað. Þetta fyrirkomu-
lag þarf því að endurskoða,“ segir
Benóný. Á meðan það er í vinnslu
fara hinsvegar leyfi fyrir hótel-
rekstri í gegnum kerfið.
„Að okkar mati hafa borgaryf-
irvöld alls ekki staðið sig nægilega
vel að í að tala máli okkar íbúanna.
Það dylst engum að þetta ástand
er ekki viðunandi, Íbúasamtökin
munu beita sér í því að knýja fram
breytingar,“ segir Benóný.
Bardagi um bílastæði
Þá segir hann einkennilegt
hvernig aðalgötur séu skilgreind-
ar. „Við skiljum ekki hvernig inn-
götur borgarinnar, eins og Berg-
staðarstræti og Freyjugata, geta
verið skilgreindar sem aðalgötur.
Þá er spurning með þau leyfi sem
hafa verið veitt til gististaða utan
aðalgatna, verður þeim leyfum
framlengt?“ spyr Benóný. Hann
hefur búið í miðbænum, nánar
tiltekið á Skólavörðustíg, frá ár-
inu 1984.
„Það hafa orðið gríðarlegar
breytingar á þessum tíma. Áður
fyrr var aðeins eitt veitingahús á
götunni, Mokka, en núna get ég
nánast teygt mig í fimm til tíu slík.
Þá eru íbúar orðnir langþreytt-
ir á skruðningi í ferðatöskum all-
ar nætur sem og baráttunni um
bílastæðin. Ef maður færir bílinn
eftir kl.19 á kvöldin fær maður
ekkert stæði aftur þann daginn.
Það eru um 10 þúsund bílaleigu-
bílar í samkeppni um þau fyr-
ir utan bíla miðborgarbúa,“ seg-
ir Benóný. Hann segist þó alls
ekki vera á móti túristum. „Það
eru margar góða breytingar sem
hafa átt sér stað í þessari ferða-
mannasprengju. Það er ánægju-
legt að sjá bæinn iðandi af lífi,“
segir Benóný.
Það eru stjórnmálamennirn-
ir sem hafa valdið vonbrigðum.
„Að okkar mati hafa borgaryfir-
völd alls ekki staðið sig nægilega
vel í að tala máli okkar íbúanna
og það kemur berlega í ljós með
leyfisveitingunni fyrir íbúðahót-
elinu á Barónsstíg sem geng-
ur þvert á fyrri yfirlýsingar ráða-
manna í Reykjavíkurborg um að
ekki yrðu gefin út fleiri leyfi fyr-
ir hótelum í miðborginni. Það
dylst engum að þetta ástand er
ekki viðunandi, Íbúasamtök-
in munu beita sér í því að knýja
fram breytingar,“ segir Benóný. n
„Fólk þarf að geta
treyst því að
ákvarðanir stjórnvalds
standi sérstaklega ef það
varðar búsetu þess en
íbúðakaup eru stærsta
fjárfestingin í lífi flestra.
Benóný Ægisson Segir að endurskoða þurfi aðalskipulag Reykjavíkurborgar. Þegar það var samþykkt þá sáu menn ekki fyrir þann gríðarlega fjölda ferðamanna sem nú sækir borgina
heim. Mynd dV ehF / SiGtryGGur Ari
„Óttumst að Verið sé að lauma
trÓjuhesti inn í borgina"