Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 8
8 Helgarblað 14. júlí 2017fréttir Ó líkt flestum Íslendingum bíður vísindamiðlarinn Sævar Helgi Bragason spenntur eftir því að það byrji að rökkva aftur. Ástæðan er fyrst og fremst sú að lítið af himin- geimnum og öllu því sem hann hefur upp á að bjóða sést í íslensku sumarnóttinni. Sævar heldur til Bandaríkjanna í byrjun ágúst þar sem hann ætlar að freista þess að sjá loftsteinadrífu og sólmyrkva. Þá gefur hann lesendum DV góð ráð um það hvað er skemmtileg- ast að sjá á himninum á þessum árstíma. Hvort sem er á Íslandi eða sunnar á hnettinum. Sjónarspil á himingeimnum „Sólmyrkvinn sem ég ætla að sjá verður þann 21. ágúst næstkom- andi í Bandaríkjunum. Hann mun ná stranda á milli. Sólmyrkvinn byrjar í Oregon og endar í Suður- Karólínu, og verður sá sólmyrkvi í sögunni sem flestir hafa séð,“ segir Sævar en um almyrkva er að ræða. Næst verður almyrkvi yfir Íslandi árið 2026. Sævar gerir ráð fyrir að berja dýrðina augum í Wyoming þar sem veðurskilyrði eru yfirleitt með besta móti. Þá ætlar Sævar að fylgjast með loftsteinadrífu sem mun sjást um allan heim í ágúst. „Það er hægt að sjá loftsteina- regnið hvar sem er ef það er nógu mikið myrkur.“ Íslendingar geta fylgst með sólmyrkvanum hér á landi en um klukkan 18.45 að kvöldi 21. ágúst mun tunglið fara um það bil 2 prósent fyrir sólina. „Það er óverulegur deildarmyrkvi. Eiginlega bara pínulítill en að sjálfsögðu sjónarspil fyrir þá sem eiga sólmyrkvagleraugu. Ég hvet fólk að sjálfsögðu til að vera búið að finna til gleraugun og fylgjast með.“ Sumar-vetrarbrautin glæsileg Þann 25. júlí næstkomandi byrjar aftur að rökkva á Íslandi. Á því tímabili, eða til 12. ágúst, má sjá svokölluð silfurský á himni. Sævar segir þau ægifögur. Nánast eins og þau séu sjálflýsandi þótt auðvitað sé það sólin sem lýsi þau upp. „Silfurskýin verða til af ískristöllum. Það veit samt enginn nákvæmlega af hverju þau myndast en veðurfræðingar hafa mikinn áhuga á að rannsaka þau. Skýin eru í um það bil 80 kílómetra hæð í 70 gráðu frosti. Þetta er mjög fallegt.” Sævar hvetur einnig fólk til að virða fyrir sér sumar-vetrarbrautina. Hún er sérstaklega falleg og áberandi sunnar á hnettinum allt sumar. Seint í ágúst verður hún einnig orðin vel sjáanleg á Íslandi. Því er mikilvægt að gleyma ekki að líta til himins í sumarfríinu. „Sumar-vetrarbrautin er sérstak- lega glæsileg. Hún er þykkari og miklu meira áberandi en á öðrum árstímum. Til dæmis má sjá Bog- manninn og Spámanninn. Það þarf ekkert annað en einfalt app í símanum sem staðsetur stjörnu- merkin og lítinn handsjónauka. Þá er hægt að sjá glæsilegar geimþokur, stjörnuþyrpingar og önnur fyrirbæri í geimnum. Það er miklu skemmtilegra að njóta náttúrunnar en að eyða tímanum á barnum á kvöldin.“ Töfrandi sumarnætur Það er þó ekki allt slæmt við björtu sumarnæturnar á Íslandi. Sævar bendir á að tunglið sé gríðarlega tilkomu- mikið síðsumars á Íslandi. „Það rís fullt í bleiku belti Venus- ar rétt fyrir ofan sjóndeildar- hringinn. Skömmu eftir að sólin er sest eða er að setjast. Rétt fyrir neðan er svo skugginn af jörðinni. Tunglið virðist því mjög lágt á lofti. Fyrir vikið eru þessar íslensku síðsumarnætur einstaklega fallegar.” n n Ætlar að ferðast til Bandaríkjanna í sumar til að upplifa sólmyrkva n Hvetur fólk til að virða sumar-vetrarbrautina fyrir sér „Það er hægt að sjá loftsteina regnið hvar sem er ef það er nógu mikið myrkur.“ Sævari leiðist sumarið Kristín Clausen kristin@dv.is Sævar hlakkar til þegar aftur fer að rökkva Hann segir sumar-vetrarbrautina vera einstaklega tignarlega. Mynd dV ehf / SigTryggur Ari Dúnþvottur Er gamla dúnsængin þín orðin slitin? Við þvoum æðardún og skiptum um ver á gömlum dúnsængum. Setjum æðardún í dúnver. Seljum einnig æðardúnsængur. Morgunroði ehf. - Sími 893 2928 Geymið auglýsinguna!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.