Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 8
8 Helgarblað 14. júlí 2017fréttir
Ó
líkt flestum Íslendingum
bíður vísindamiðlarinn
Sævar Helgi Bragason
spenntur eftir því að það
byrji að rökkva aftur. Ástæðan er
fyrst og fremst sú að lítið af himin-
geimnum og öllu því sem hann
hefur upp á að bjóða sést í íslensku
sumarnóttinni. Sævar heldur til
Bandaríkjanna í byrjun ágúst þar
sem hann ætlar að freista þess að
sjá loftsteinadrífu og sólmyrkva.
Þá gefur hann lesendum DV góð
ráð um það hvað er skemmtileg-
ast að sjá á himninum á þessum
árstíma. Hvort sem er á Íslandi
eða sunnar á hnettinum.
Sjónarspil á himingeimnum
„Sólmyrkvinn sem ég ætla að sjá
verður þann 21. ágúst næstkom-
andi í Bandaríkjunum. Hann mun
ná stranda á milli. Sólmyrkvinn
byrjar í Oregon og endar í Suður-
Karólínu, og verður sá sólmyrkvi í
sögunni sem flestir hafa séð,“ segir
Sævar en um almyrkva er að ræða.
Næst verður almyrkvi yfir Íslandi
árið 2026. Sævar gerir ráð fyrir að
berja dýrðina augum í Wyoming
þar sem veðurskilyrði eru yfirleitt
með besta móti. Þá ætlar Sævar að
fylgjast með loftsteinadrífu sem
mun sjást um allan heim í ágúst.
„Það er hægt að sjá loftsteina-
regnið hvar sem er ef það er nógu
mikið myrkur.“ Íslendingar geta
fylgst með sólmyrkvanum hér
á landi en um klukkan 18.45 að
kvöldi 21. ágúst mun tunglið fara
um það bil 2 prósent fyrir sólina.
„Það er óverulegur deildarmyrkvi.
Eiginlega bara pínulítill en að
sjálfsögðu sjónarspil fyrir þá sem
eiga sólmyrkvagleraugu. Ég hvet
fólk að sjálfsögðu til að vera búið
að finna til gleraugun og fylgjast
með.“
Sumar-vetrarbrautin glæsileg
Þann 25. júlí næstkomandi byrjar
aftur að rökkva á Íslandi. Á því
tímabili, eða til 12. ágúst, má
sjá svokölluð silfurský á himni.
Sævar segir þau ægifögur. Nánast
eins og þau séu sjálflýsandi þótt
auðvitað sé það sólin sem lýsi
þau upp. „Silfurskýin verða til
af ískristöllum. Það veit samt
enginn nákvæmlega af hverju
þau myndast en veðurfræðingar
hafa mikinn áhuga á að rannsaka
þau. Skýin eru í um það bil 80
kílómetra hæð í 70 gráðu frosti.
Þetta er mjög fallegt.” Sævar
hvetur einnig fólk til að virða fyrir
sér sumar-vetrarbrautina. Hún
er sérstaklega falleg og áberandi
sunnar á hnettinum allt sumar.
Seint í ágúst verður hún einnig
orðin vel sjáanleg á Íslandi. Því
er mikilvægt að gleyma ekki
að líta til himins í sumarfríinu.
„Sumar-vetrarbrautin er sérstak-
lega glæsileg. Hún er þykkari og
miklu meira áberandi en á öðrum
árstímum. Til dæmis má sjá Bog-
manninn og Spámanninn. Það
þarf ekkert annað en einfalt app í
símanum sem staðsetur stjörnu-
merkin og lítinn handsjónauka.
Þá er hægt að sjá glæsilegar
geimþokur, stjörnuþyrpingar og
önnur fyrirbæri í geimnum. Það
er miklu skemmtilegra að njóta
náttúrunnar en að eyða tímanum
á barnum á kvöldin.“
Töfrandi sumarnætur
Það er þó ekki allt slæmt
við björtu sumarnæturnar
á Íslandi. Sævar bendir á að
tunglið sé gríðarlega tilkomu-
mikið síðsumars á Íslandi. „Það
rís fullt í bleiku belti Venus-
ar rétt fyrir ofan sjóndeildar-
hringinn. Skömmu eftir að sólin
er sest eða er að setjast. Rétt
fyrir neðan er svo skugginn af
jörðinni. Tunglið virðist því
mjög lágt á lofti. Fyrir vikið eru
þessar íslensku síðsumarnætur
einstaklega fallegar.” n
n Ætlar að ferðast til Bandaríkjanna í sumar til að upplifa sólmyrkva
n Hvetur fólk til að virða sumar-vetrarbrautina fyrir sér „Það er hægt að sjá
loftsteina regnið
hvar sem er ef það er
nógu mikið myrkur.“
Sævari leiðist sumarið
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Sævar hlakkar til þegar aftur fer að
rökkva Hann segir sumar-vetrarbrautina vera
einstaklega tignarlega. Mynd dV ehf / SigTryggur Ari
Dúnþvottur
Er gamla dúnsængin
þín orðin slitin?
Við þvoum æðardún og skiptum um ver á gömlum dúnsængum.
Setjum æðardún í dúnver. Seljum einnig æðardúnsængur.
Morgunroði ehf. - Sími 893 2928
Geymið
auglýsinguna!